Hélt áfram að spila eftir heilablóðfall

Salóme Mist Krist­jáns­dóttur segir að eftir að líf hennar breytt­ist skyndi­lega hafi það verið mikið lán að helsta áhuga­mál hennar hafi verið fötl­un­ar­vænt.

Hélt áfram að spila eftir heilablóðfall
Salóme Mist Á rúm­lega 200 borð­spil heima hjá sér og mætir að minnsta kosti 30 sinnum á ári á spila­kvöld Spila­vina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ég hef alltaf verið mikið fyrir spil, en dróst af alvöru inn í áhuga­málið 2012 þegar ég eign­að­ist sam­vinnu­spilið Pandemic. Ég féll gjör­sam­lega fyrir því og fór í kjöl­farið í búð­ina Spila­vini þar sem ég kynnt­ist spila­sam­fé­lag­inu þar. Það er mikið af frá­bæru fólki í þessum hópi sem er opið fyrir því að fá nýliða inn. Ég kynnt­ist sam­býl­is­manni mínum gegnum spila­kvöld Spila­vina og við eigum þetta áhuga­mál því sam­eig­in­legt og erum sam­taka í að fylla heim­ilið af spilum og halda spila­kvöld.

Aðgengi skiptir mig gríð­ar­lega miklu máli. Við í femínísku fötl­un­ar­hreyf­ing­unni Tabú tölum um „aðgeng­isk­víða“ þegar ein­stak­lingur er að fara á ein­hverja við­burði og veit ekki hvort það sé gott aðgengi þar. Það er það sem Spila­vinir hafa fram yfir aðrar versl­anir, það er alltaf starfs­fólk á staðnum sem ég veit að er boðið og búið að hjálpa, til dæmis með að ná í ramp­inn fyrir mig.

Ég fékk heila­blóð­fall í nóv­em­ber 2016 og við það breytt­ist líf mitt gjör­sam­lega á einu augna­bliki. Ég lam­að­ist og missti get­una til að lifa án aðstoðar og upp­lifði gríð­ar­legt von­leysi. Það var rosa­lega gott að hafa þetta áhuga­mál áfram sem fastan punkt í líf­inu, eitt­hvað sem hélt áfram að vera eins. Það var mikið lán að mitt helsta áhuga­mál er svona fötl­un­ar­vænt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár