Bara peð í þessum heimi

Fyrst hún var hætt í mynd­list­ar­námi ákvað Ásgerður Heim­is­dóttir, 24 ára, að ferð­ast um Indland í fjóra mán­uði með kærast­anum sínum.

Bara peð í þessum heimi

Eftir að ég hætti á sjón­list­ar­braut í Mynd­lista­skól­anum í Reykja­vík í fyrra leið mér frekar ömur­lega. Sem fimm ára stelpa var ég send á mynd­list­ar­nám­skeið á meðan aðrir krakkar voru í ball­ett eða íþróttum því ég var svo óð í að teikna. Ég fékk mikla útrás í listum, en ég fæ líka útrás í mörgum öðrum áhuga­málum þannig að ég vissi ekki hvort ég vildi gera list að ævi­starfi mínu eða ekki.

Í kjöl­farið tók ég ákvörðun um að ferð­ast til Indlands með kærast­anum mínum, en við vorum þar frá jan­úar og fram í apríl. Við tókum skeifu í gegnum landið frá Kerala í suðri til Rajast­han í norðri og síðan aftur suður til Góa. Ferðin var ótrú­leg og það var mikið menn­ing­ar­sjokk að koma aftur heim til Íslands eftir þetta ferða­lag, en síðan duttum við aftur í rútín­una bak­við hvers­dags­lífið.

Margir vinir mínir hafa farið í heims­reisu eftir mennta­skóla og sumir þeirra hafa „frels­ast“ í Indlandi, en góð vin­kona mín sagði mér að ég hefði verið eina mann­eskjan sem kom aftur og var ekki gjör­sam­lega breytt. Ég held að það sé vegna þess að mér finnst eins og ég sé alltaf að breyt­ast og þró­ast með hverjum deg­inum.

Ég held að því meira sem þú ferð­ast, því meira sérðu, og því meira minnkar þú; þú sérð að til­vera þín er stór­merki­leg, en á sama tíma alls ekki. Maður er bara peð í þessum heimi, og á meðan að peð getur fellt kon­ung­inn þá getur það líka bara ferð­ast svo­lítið um skák­borðið og notið útsýn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár