Leiðtogar Evrópuríkja lýstu í dag yfir stuðningi við Volodimír Zelensky Úkraínuforseta eftir að samskipti hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta versnuðu til muna. Áhyggjur fara vaxandi af því að Trump leggist sífellt meira á sveif með Rússum á sama tíma og Úkraína glímir við harðar árásir og versnandi fjárhagsstöðu.
Samskipti stjórnvalda í Kænugarði og Washington hafa versnað frá því í síðustu viku þegar Trump slakaði á refsiaðgerðum gegn Rússum gegn því að rússnesk stjórnvöld hleyptu miklu magni af dísilolíu á heimsmarkað.
Zelensky reitti Trump enn frekar til reiði með því að fyrirskipa úkraínska hernum að hefja á ný árásir á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar, þvert á kröfur bandarískra stjórnvalda.
Reiðin í Úkraínu hefur jafnframt aukist vegna truflana á mikilvægu gervihnattakerfi sem Bandaríkin hafa útvegað landinu. Truflanirnar hafa torveldað úkraínska hernum að verjast hörðum loftárásum Rússa nú þegar erfiðir vetrarmánuðir eru fram undan.
„Nú er ekki rétti tíminn til að draga úr stuðningi …























































Athugasemdir