Innanbúðarkona boðar að Grænland verði bráðum bandarískt

Fyrr­ver­andi tals­maður úr Trump-stjórn­inni og eig­in­kona eins helsta hug­mynda­fræð­ings hennar segir að Grænland verði bráðum banda­rískt.

Innanbúðarkona boðar að Grænland verði bráðum bandarískt
Katie Miller Segir Grænland vera næst á dag­skrá. Mynd: Wikipedia / By Office of the Vice President

Skömmu eftir að banda­rískum her­sveitum tókst að hand­sama þjóð­ar­leið­toga Venes­ú­ela birti áhrifa­kona úr MAGA-hreyf­ing­unni sem styður Donald Trump Banda­ríkja­for­seta kort af Græn­landi með banda­ríska fán­anum yfir öllu land­svæð­inu. „BRÁÐUM,“ skrif­aði konan, Katie Miller, í færslu sinni á X.

Donald Trump kynnti í gær áform Banda­ríkj­anna um beina stjórn Venes­ú­ela og fyr­ir­ætl­anir um að banda­rísk fyr­ir­tæki noti olíu­auð­lindir lands­ins. Engu að síður var hern­að­ar­að­gerðin sem koll­steypti ein­ræðs­sinn­aðri stjórn Niculas Maduros í Venes­ú­ela gerð undir því yfir­skini að hann væri eft­ir­lýstur vegna ákæru fyrir aðild að fíkni­efna­smygli.

Katie Miller er starfs­maður Elons Musk, rík­asta manns heims, sem lagði lóð sitt á vog­ar­skál­arnar til að fá Trump kjör­inn aftur sem for­seta haustið 2024. Hún var áður tals­maður heima­varna­ráðu­neytis Trumps frá 2017 til 2019 og tals­maður vara­for­seta Banda­ríkj­anna 2019 til 2020.

Hún er eig­in­kona Stephens Miller, sem hefur verið ráð­gjafi Trumps í innsta hring frá því á fyrra kjör­tíma­bili hans. Miller hefur vakið athygli fyrir að öfga­kenndar skoð­anir sínar og verið gagn­rýndur fyrir að vera and­lýð­ræð­is­legur í við­horfum.

Banda­rískt GrænlandKatie Miller, starfs­maður Elons Musk og inn­an­búð­ar­kona í MAGA-hreyf­ing­unni, segir að Grænland verði brátt banda­rískt.

Trump hefur ítrekað lýst yfir „þörf“ Banda­ríkj­anna til að yfir­taka og inn­lima Grænland, sem er hluti af danska kon­ungs­rík­inu og hefur stefnt að sjálf­stæði á næstu árum. Í des­em­ber skip­aði Trump sér­stakan sendi­full­trúa gagn­vart Græn­landi.

Erind­rek­inn, Jeff Landry, rík­is­stjóri Louisiana, hét því strax að gera Grænland „að hluta af Banda­ríkj­unum“.

„Við þurfum á því að halda vegna þjóðar­ör­yggis. Við verðum að fá það,“ sagði for­set­inn og bætti við að Landry „vildi leiða þá sókn“.

Banda­ríkin hafa her­stöð í Pituffik nyrst á Græn­landi og opn­uðu ræð­is­manns­skrif­stofu á eyj­unni í júní 2020.

Í ágúst kall­aði danska utan­rík­is­ráðu­neytið banda­ríska sendi­full­trú­ann á sinn fund eftir að að minnsta kosti þrír banda­rískir emb­ætt­is­menn nákomnir Trump sáust í Nuuk, höf­uð­borg Græn­lands, reyna að kom­ast að því hvernig fólki lit­ist á aukin tengsl við Banda­ríkin.

Ein­beittur vilji Trumps til að taka yfir Grænland kom Dönum á óvart, en Danmörk er sam­herji í NATO og hefur barist við hlið Banda­ríkj­anna í stríðum þeirra í Afganistan og Írak.

Í jan­úar til­kynntu stjórn­völd í Kaup­manna­höfn um 2,0 millj­arða dala áætlun um að auka hern­að­ar­við­veru sína á norð­ur­slóðum.

Talsmenn Græn­lands hafa ítrekað hafnað við­leitni Banda­ríkj­anna og beðið Trump að hætta. „Ég mun ávallt berj­ast fyrir frelsi okkar og rétti til að ákveða sjálf og móta fram­tíð okkar,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands, Jens-Frederik Nielsen í jóla­kveðju sinni á Þor­láks­messu.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Mesti hálfviti heimsins er sá sem fylgir mesta hálfvita heimsins.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár