Bandaríkin gætu notað Ísland í innrás í Grænland

Baldur Þór­halls­son alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur varar við raun­veru­legri og mögu­legri ógn af Banda­ríkj­unum. Þögn íslenskra stjórn­mála­manna er „æpandi“.

Bandaríkin gætu notað Ísland í innrás í Grænland
Baldur Þór­halls­son Helsti sér­fræð­ingur Íslands í smárikja­fræðum sem haldið hefur úti svo­kall­aðri smá­ríkja­kenn­ingu, bauð sig fram til for­seta árið 2024, þar sem hann hafn­aði í fimmta sæti með ríf­lega 18 þús­und atkvæði. Mynd: Golli

Banda­ríkin hafa verið horn­steinn­inn í örygg­is­stefnu Íslands frá Seinni heims­styrj­öld, með Norður-Atl­ants­hafs­sátt­mál­anum árið 1949 og tví­hliða varn­ar­samn­ingi árið 1951, en helsti sér­fræð­ingur Íslands í smá­ríkja­fræðum varar nú við því að helsti banda­maður Íslands geti reynst ógn.

Alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Baldur Þór­halls­son fjallar um „hættu úr óvæntri átt“ í færslu á Facebook, þar sem hann segir að umpólun í alþjóða­málum hafi „aukið hættu­stigið hér á landi“.

„Staða Íslands í alþjóða­sam­fé­lag­inu breytt­ist árið 2025. Vá steðjar að land­inu úr austri og vestri. Hættan er þó með ólíkum hætti,“ segir Baldur og undr­ast að margir íslenskir stjórn­mála­menn horf­ist ekki í augu við þá breyt­ing­una. „Flestir þeirra þegja þunnu hljóði yfir stöðu Íslands í breyttri heims­mynd. Þögn þeirra um þá ógn sem steðjar að Græn­landi – okkar næsta nágranna­ríki – er æpandi.“

Árás á NATO-ríki frá Bandaríkjunum?

Baldur bendir á að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti virð­ist ekki „líta á inn­rás Rúss­lands í Úkraínu og skemmd­ar­verk þeirra á innviðum í Evópu sem ógn við öryggi Banda­ríkj­anna“ heldur hafi hann og Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti „enn á ný hafa sæst á yfir­ráð hvors ann­ars yfir næstu nágranna­ríkjum land­anna.“

Þannig falla ítrek­aðar yfir­lýs­ingar Banda­ríkja­for­seta um „þörf“  á að ná yfir­ráðum yfir Græn­landi að slíkri skipt­ingu.

„Nánasta banda­lags­ríki Íslend­inga í öryggis- og varn­ar­málum stefnir leynt og ljóst að því að taka yfir næsta nágranna­ríki okkar. Markmið for­set­ans og erind­reka hans ætti ekki lengur að vefj­ast fyrir neinum. Eini vaf­inn er hversu langt for­set­inn er til­bú­inn að ganga til að ná mark­mið­inu. Danska leyni­þjón­ustan telur að Danmörku stafi hern­að­ar­leg ógn af Banda­ríkj­unum,“ segir Baldur.

Hann veltir því upp hvort NATO-ríki stafi meiri hætta af Banda­ríkjum Trumps en Rúss­landi Pútíns. „Spurn­ingin sem kemur upp í hug­ann í upp­hafi árs 2026 er hvort að Rússland sé ekki ólík­legra til að ráð­ast á NATO-ríki en Banda­ríkin á NATO-ríkið Grænland.“

Þá varar hann við því að Ísland geti orðið aðili í slíkri sviðs­mynd. „Þróist mál með þeim ólík­lega hætti að Banda­ríkin her­taki Grænland má allt eins gera ráð fyrir því að Ísland verði stökk­pallur í þeirri aðgerð. Hvaða afleið­ingar myndi það hafa í för með sér fyrir Ísland - bæði gagn­vart vina­þjóðum okkar í Evrópu og Banda­ríkj­unum – ef inn­rásin yrði gerð frá Íslandi? Hafa íslensk stjórn­völd dregið upp þá sviðs­mynd hvernig bregð­ast ætti við ef önnur eins ósköp myndu eiga sér stað?“

Bandaríkin vanvirða alþjóðalög

Baldur telur að ógnin frá Banda­ríkj­unum sem steðjar að Íslandi sé óbein og stafi af fyrr­greindri stefnu­mörkun. „Í fyrsta lagi veikir virð­ing­ar­leysi Banda­ríkj­anna gagn­vart alþjóða­lögum og full­veldi ríkja, eins og Danmörku og ríkjum Suður-Ameríku, stöðu lít­ils ríkis eins og Íslands,“ segir hann.

Þá segir hann við­skipta­hindr­anir Banda­ríkj­anna rýri við­skipta­kjör Íslands og lífs­kjör almenn­ings. Lítil ríki eigi allt undir því að stór ríki virði alþjóða­lög og frjáls við­skipti.

„Í þriðja lagi boða stjórn­völd í Washington afskipti af inn­an­rík­is­málum ríkja Evrópu,“ segir Baldur og vísar þar til Evr­ópukafla nýrrar þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Donalds Trump. „Sú var tíðin að Banda­ríkin studdu dyggi­lega við bakið á lýð­ræð­is­hreyf­ingum í Evrópu - nú er boð­aður stuðn­ingur við and­lýð­ræð­is­leg öfl – hreyf­ingar sem vilja taka­marka frelsi og mann­rétt­indi.“

Baldur bendir á að rík­is­stjórn Íslands hafi styrkt varn­ar­tengslin við Banda­ríkin, sam­hliða því að taka virk­ari þátt í öryggis- og varn­ar­mála­sam­vinnu ríkja Evrópu. Þannig séu byggðar brýr bæði til Ameríku og Evrópu.

„Íslensk stjórn­völd frest­uðu hins vegar und­ir­ritun á sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu um öryggis- og varn­ar­mál við ESB eftir að í ljós kom að landið var ekki und­an­þegið vernd­ar­að­gerðum fram­kvæmda­stjórnar ESB vegna kís­il­járns. Hvort ætli sú frestun hafi nú verið meira högg fyrir Evr­ópu­sam­bandið eða Ísland?“

Evrópusambandið styðji alþjóðalög og lýðræði

Baldur lýsir því að Evr­ópu­sam­bandið hafi tekið breyt­ingum og að það standi nú „upp í hár­inu á rúss­neskum stjórn­völdum og leggur ofurá­herslu á alþjóða­lög, frjáls við­skipti, lýð­ræði og mann­rétt­indi. Málefni sem skipta sköpum fyrir fram­tíð smá­ríkja eins og Íslands.“

Baldur, sem var vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar árin 2011 og 2012, hefur sem fræði­maður fjallað ítar­lega um smá­ríkja­kenn­ingu og þörf smærri ríkja til að sækja sér skjól hjá stærri ríkjum.

Hann vísar nú til Evr­ópu­sam­bands­ins sem val­kosts fyrir Ísland, í sam­hengi við að Svíþjóð og Finnland hafa gengið í NATO og löndin tvö, ásamt Aust­ur­ríki, gengu í Evr­ópu­sam­bandið eftir fall Sov­ét­ríkj­anna.

„Ætli íslenskir jafn­að­ar­menn átti sig á umpólun alþjóða­kerf­is­ins árið 2026 og taki frum­kvæðið í utan­rík­is­málum?“ spyr Baldur.

Rík­is­stjórnin hefur boðað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort halda eigi áfram aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið „eigi síðar en árið 2027“, en Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins, dró árið 2015 aftur aðild­ar­um­sókn frá tíð rík­is­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna frá árinu 2010. Í jan­úar í fyrra kom fram sú túlkun tals­manns stækk­un­ar­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins að aðild­ar­um­sókn Íslands hefði aldrei verið „form­lega“ dregin til baka, þrátt fyrir til­kynn­ingu utan­rík­is­ráð­herra.

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Tvöfeldni ESB-áróðurs – þegar stórveldi eru aðeins hættuleg ef þau heita ekki Brussel

    Í umræðu síðustu missera hefur orðið æ algengara að ESB-sinnar vísi til atburða utan Evrópu – einkum í Suður-Ameríku – til að sanna að Bandaríkin séu orðin helsta ógn alþjóðakerfisins. Málefni Nicolás Maduro eru dregin fram sem siðferðilegt dæmi: hér sjáum við stórveldi sem virðir ekki fullveldi ríkja, beitir refsiaðgerðum, handtökutilraunum og pólitískum þrýstingi.

    En á sama tíma ríkir þögn. Þögn um Evrópusambandið sjálft.

    Valin siðferðiskennd

    Í þessari frásögn eru aðeins tvö hlutverk í boði:

    Bandaríkin sem ógn

    ESB sem skjól

    Allt sem fellur utan þess ramma er annaðhvort hunsað eða afgreitt sem „ósambærilegt“. En smáríki hafa ekki þann munað að velja sér aðeins þægilegan veruleika. Fyrir þau skiptir valdframkvæmd meira máli en orðræða.

    Útþensla sem má ekki nefna

    ESB hefur stækkað kerfisbundið í áratugi:

    landfræðilega

    lagalega

    stjórnsýslulega

    Ríki sem ganga í sambandið:

    aðlaga megnið af löggjöf sinni að regluverki sem þau móta ekki sjálf

    framselja vald til framkvæmdastjórnar og dómstóls

    sætta sig við yfirþjóðlega stefnumörkun í lykilmálum

    Þetta er útþensla – jafnvel þótt hún sé kölluð „samvinna“. Munurinn á hernámi og regluframsali skiptir litlu fyrir fullveldið ef niðurstaðan er sú sama: ákvarðanir færast fjær þjóðinni.

    Maduro sem áróðursverkfæri

    Þegar ESB-sinnar nota Maduro-málið til að reyna að skapa ógn úr Bandaríkjunum en minnast ekki á:

    refsiaðgerðir ESB

    pólitísk afskipti sambandsins af aðildarríkjum

    þrýsting á stjórnarskrár, dómskerfi og fjölmiðla innan sambandsins

    þá er ekki um heiðarlega greiningu að ræða, heldur valkvæðan réttarríkisdiskurs. Mannréttindi eru aðeins hávær þegar þau þjóna fyrirfram ákveðinni frásögn.

    Smáríki borga alltaf verðið

    Fyrir smáríki eins og Ísland er spurningin ekki:

    „Hvort Bandaríkin eða ESB séu góð“

    heldur:

    Hver krefst varanlegs fullveldisskerðingar – og hversu mikillar?

    Bandaríkin krefjast hernaðarsamstarfs. ESB krefst lagalegrar undirgefni. Hvorugt er hlutlaust. En aðeins annað er selt sem „siðferðileg nauðsyn“.

    Niðurstaða

    Tvöfeldni ESB-áróðurs felst ekki í því að gagnrýna Bandaríkin – slík gagnrýni er oft réttmæt. Hún felst í því að:

    gera ESB ósnertanlegt

    þagga niður umræðu um vald, útþenslu og lýðræðishalla

    nota atburði annars staðar í heiminum til að réttlæta eigin valdakerfi

    Smáríki þurfa ekki fleiri prédikanir. Þau þurfa heiðarlega umræðu um vald, hagsmuni og afleiðingar.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár