Blaða­manna­fundur Donald Trump talar um að banda­rísk olíu­fé­lög muni nú koma til Venes­ú­ela. Mynd: AFP

Bandaríkin ætla að stýra Venesúela og nota olíuna

Donald Trump ávarpar þjóð sína og segir að Banda­ríkin muni stjórna Venes­ú­ela. Fleiri hern­að­ar­að­gerðir eru ekki úti­lok­aðar.

„Við ætlum að stýra land­inu,“ sagði Donald Trump Banda­ríkja­for­seti rétt í þessu í ávarpi til þjóðar sinnar eftir árás á Venes­ú­ela og hand­töku á for­set­anum Niculas Maduro, undir því yfir­skini að hann hafi átt aðild að fíkni­efna­smygli.

Trump tal­aði opin­skátt um að banda­rísk olíu­fé­lag muni koma inn í landið og nýta olíu­forða lands­ins, sem eru þær mestu í heim­inum. Um athuga­semdir ann­arra þjóða sagði Trump að þær fengju að kaupa olíu. 

„Við munum selja olíu. Við erum í olíu­brans­anum. Við munum selja mikið magn af olíu til margra landa.“

Bandarísk olíufélög fari til landsins

Trump tal­aði um olíu­brans­ann í Venes­ú­ela. Hann sagði olíu­fram­leiðsu of litla. 

„Við ætlum að láta okkar mjög stóru banda­rísku olíu­fyr­ir­tæki, þau stærstu í heimi, fara þangað inn, eyða millj­örðum doll­ara, gera við illa farna inn­viði, olíu­inn­við­ina, og byrja að afla tekna fyrir landið,“ sagði Trump.

Þá segir Trump að Banda­ríkin hafi verið reiðu­búin í að gera meiri árásir. „Við erum til­búin að leggja upp í mun stærri árás ef þess þarf.“

Stjórn Banda­ríkj­anna á Venes­ú­ela heldur áfram þar til Trump metur sem svo að hægt sé að fram­fylgja stjórn­ar­skiptum með lög­mætum hætti.

„Við getum ekki hætt á að ein­hver annar taki yfir Venes­ú­ela sem hefur ekki hags­muni Venes­ú­ela í huga,“ sagði Trump.

Aðspurður sagði hann banda­ríska her­menn verða á svæð­inu áfram. „Við erum ekki hrædd við það. Við munum sjá til þess að land­inu verði stjórnað almenni­lega,“ sagði hann.

Kínversk sendinefnd hitti Maduro

Greint hefur verið frá því að skömmu fyrir árás­ina í morgun hafi Maduro hitt kín­verska sendi­nefnd í Caracas, sem enn er í land­inu.

Trump segir að Banda­ríkin hafi átt til­kall til olíu­inn­viða í Venes­ú­ela eftir rík­i­s­væð­ingu Venes­ú­ela á þeim. „Þeir tóku eign okkar,“ sagði hann.

Þá boðar hann end­ur­reisn Monroe-kenn­ing­ar­innar um yfir­ráð Banda­ríkj­anna í Suður-Ameríku, sem nú sé kölluð Donroe-kenn­ingin. „Við gleymdum henni,“ segir Trump. „En ekki lengur.“

„Við erum að end­ur­reisa banda­rískt vald á heima­svæð­inu okkar,“ segir Trump.

Munu beita valdi sínu hvar sem er

Samkvæmt yfir­lýs­ingum á blaða­manna­fund­inum er árásin á Venes­ú­ela fyr­ir­boði þess sem koma skal.

„Banda­ríkja getur varpað sínum vilja hvar sem er hvenær sem er,“ sagði Pete Hegseth, stríðs­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, á blaða­manna­fund­inum. Hann segir að Banda­ríkj­unum sé dauð­ans alvara með að hafa yfir­ráð yfir vest­ur­hvelinu.

„Þetta er Banda­ríkin fyrst. Þetta er friður með styrk. Velkomin í 2026. Undir Trump for­seta eru Banda­ríkin snúin aftur.“

Slökktu ljósin í Caracas

Á blaða­manna­fund­inum var aðferð­inni við árás­ina lýst. Meira en 150 loft­för fóru af stað frá 20 stöðum. Trump gaf til kynna að Banda­ríkin hefðu slökkt ljósin.

„Það var dimmt. Ljósin í Caracas voru að mestu slökkt vegna ákveð­innar sér­þekk­ingar sem við búum yfir,“ sagði Trump á blaða­manna­fundi.

Þá hafi tek­ist að slökkva á loft­varn­ar­kerfum í Caracas svo þyrlur næðu að kom­ast á áfanga­stað. 

Allar flug­vélar og þyrlur komu heil til baka og eng­inn banda­rískur her­maður lést. Ekki hefur komið fram hvert mann­fall í Venes­ú­ela hefur verið við árás­irnar.

Maduro og eig­in­kona hans eru nú á skipi á leið til New York þar sem þau verða ákærð vegna meintrar aðkomu að fíkni­efna­smygli.

Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sagði að nú ætti fólk að taka Trump alvar­lega.

„Þegar hann seg­ist ætla að gera eitt­hvað, þá gerir hann það. Nú vitið þið það. Fólk þarf að skilja að þetta er ekki for­seti sem talar bara. Ef hann segir að honum sé alvara með eitt­hvað, þá meinar hann það. Þetta er for­seti friðar,“ sagði hann.

Trump hefur til við­bótar við hót­anir gegn Venes­ú­ela boðað að hann vilji inn­lima Grænland í Banda­ríkin og kallað Kanada 51 ríki Banda­ríkj­anna.

Þingið ekki með í ráðum

Marco Rubio svar­aði því að Trump-stjórnin hefði ekki haft sam­ráð við þingið vegna árás­ar­innar, en sam­kvæmt stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna hefur þingið valdið til að lýsa yfir stríði. „Þetta var mikið til lög­reglu­að­gerð,“ sagði Rubio.

Trump sagði að þingið hefði til­hneig­ingu til að leka upp­lýs­ingum.

Spurður hvort hann hefði áhyggjur af því að þurfa að stýra Venes­ú­ela til lengra sagði Trump: „Það mun ekki kosta okkur neitt því pen­ing­ur­inn sem kemur upp úr jörð­inni verður tölu­verður.“

Kúba næst?

Spurðir hvort Kúba væri næsta skot­mark neit­uðu hvorki Trump né Rubio því. 

„Kúba er áhuga­vert til­felli. Fólkið hefur þjáðst í mörg ár. Ég held að Kúba sé eitt­hvað sem við munum enda á að tala um.“

Rubio end­ur­tók að taka ætti for­set­ann alvar­lega.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þór Saari skrifaði
    Enn ein hroðvirknis AI "þýðingin" sem er skráð a ritsjórn Heimildarinnar. Ritstjórnin hefur greinilega ekki mikinn metnað eða virðingu fyrir lesendum sínum. Það er óhæfa að ætlast til að skattfé almennings fari í fjölmiðla sem senda frá sér svona rusl.
    1
    • Þorkell Egilsson skrifaði
      Hvað ertu að tala niður? Er greinin of "Vók" kannski fyrir þig? Þessi grein er skrifuð beint uppúr erlendum fréttum og heimildum sem eru langsennilegast fundnar úr New York Times eða bara CNN. Auðvitað tekið beint frá fréttavef miðils í USA, en væntanlega ekki af sviði fréttastofu Heimildarinnar eða úr ChatGpt, eðli málsins samkvæmt.
      0
  • PG
    Palli Garðarsson skrifaði
    Meira að segja Nostradamus náði ekki að spá þessu, hvílíkur klikkhaus.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið undanfarið ár