Vilja minnka hlut einkabílsins og fækka banaslysum í núll

Breyt­ingar við aðal­skipu­lag Reykja­víkur munu þétta byggð við stöðvar Borg­ar­línu. Lofts­lags­mál eru í fyr­ir­rúmi og einka­bíll­inn verður í síð­asta sæti í for­gangs­röðun sam­gangna.

Vilja minnka hlut einkabílsins og fækka banaslysum í núll
Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn Með breyt­ingum á aðal­skipu­lagi verður einka­bíll­inn settur aft­ast í for­gangs­röð­un­ina, með það að mark­miði að minnka hlut­deild hans í ferðum úr 75 í 58 pró­sent næsta ára­tug­inn.

Umfangs­miklar breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Reykja­víkur munu leggja áherslu á Borg­ar­línu og þétt­ingu byggðar í kringum stoppi­stöðvar hennar. Ný umferð­ar­ör­ygg­is­á­ætlun hefur það mark­mið að eng­inn deyi af slys­förum í umferð­inni.

Tillaga um breyt­ing­arnar var sam­þykkt í skipu­lags- og sam­göngu­ráði á mið­viku­dag, með atkvæðum meiri­hlut­ans, en full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks sátu hjá. Meg­in­mark­mið breyt­ing­anna eru að styðja við lofts­lags­stefnu borg­ar­innar og ríkis um kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2040. Auka á hlut­deild vist­vænna sam­göngu­máta og setja einka­bíl­inn aft­ast í for­gangs­röð­un­ina. Þétta á byggð í kringum stöðvar fyr­ir­hug­aðrar Borg­ar­línu og setja hús­næði sem hentar ungu fólki og fyrstu kaup­endum í for­gang á þeim svæðum.

Til að mæta þessum mark­miðum er meðal ann­ars stefnt að því að þre­falda notkun almenn­ings­sam­gangna sem ferða­máta, auka ferðir gang­andi og hjólandi en á móti minnka notkun einka­bíls­ins úr 75 pró­sent ferða niður í 58 pró­sent. Fram­kvæmdir við Borg­ar­línu, nýtt kerfi almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, er nauð­syn­leg for­senda þess að þetta tak­ist, að því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umferðarmenning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár