Hætt verði að takmarka fjölda leigubílstjóra og binda þá við stöðvar

Starfs­hópur sam­göngu­ráð­herra vill afnema fjölda­tak­mark­anir á leyfum leigu­bíl­stjóra og losa þá undan því að þurfa að vinna fyrir leigu­bif­reiða­stöðvar. Uber og Lyft skuli upp­fylla sömu kröfur og aðrar leigu­bif­reiða­stöðvar.

Hætt verði að takmarka fjölda leigubílstjóra og binda þá við stöðvar

Starfs­hópur sam­göngu­ráð­herra telur rétt að afnema fjölda­tak­mark­anir á útgefnum atvinnu­leyfum til leigu­bif­reiða­akst­urs og að fallið verði frá lög­bund­inni stöðv­ar­skyldu. Hópurinn var settur á fót eftir að Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hóf frum­kvæð­is­rann­sókn á íslenska leigu­bif­reiða­mark­aðnum í byrjun 2017 og var skýrsla hans birt í dag.

Í dag er kveðið á um hámarks­fjölda atvinnu­leyfa, sam­tals 650 leyfi og þar af eru 580 leyfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Und­an­farin ár hafa fleiri sótt um leyfi til að aka leigu­bif­reið en úthlutun fjölda leyfa heim­ilar og árið 2017 var 109 ein­stak­lingum neitað um leyfi til að aka leigu­bif­reið.

Samkvæmt núgild­andi lögum eru leigu­bif­reiða­stjórar skyld­aðir til að starfa á leigu­bif­reiða­stöð. Hreyfill er langstærsta stöðin með 64% mark­aðs­hlut­deild á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og næst á eftir kemur BSR með tæp­lega 10% hlut­deild. Bendir starfs­hóp­ur­inn á að þró­unin á Norð­ur­löndum sé í þá átt að afnema stöðv­ar­skyldu.

„Þá leggur starfs­hóp­ur­inn til að starf­semi leigu­bif­reiða verði háð skil­yrðum sem eiga að tryggja öryggi og gæði þjón­ust­unnar og tvenns konar leyfi séu til staðar, það er atvinnu­leyfi, sem er leyfi til að aka leigu­bif­reið, og rekstr­ar­leyfi, sem er leyfi til að reka eina leigu­bif­reið,“ segir í skýrsl­unni. „Með þessu fyr­ir­komu­lagi er gert ráð fyrir að rekstr­ar­leyf­is­hafi taki á sig þær skyldur sem hvíla í dag á leigu­bif­reiða­stöðvum.“

Þá bar nokkuð á því í umsögnum við skýrsl­una að fjallað væri um mik­il­vægi þess að öryggi far­þega væri tryggt. „Þeir sem tjáðu sig um örygg­is­mál almennt voru sam­mála um það að nauð­syn­legt væri að um leigu­bif­reiða­akstur giltu reglur og að örygg­is­sjón­ar­mið mæli með því,“ segir í skýrslu starfs­hóps­ins.

Uber og Lyft uppfylli sömu kröfur

Starfs­hóp­ur­inn telur einnig ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að far­veitur á borð við Uber og Lyft bjóði þjón­ustu sína hér á landi. Það sé þó á valdi stjórn­valda að setja þær kröfur sem slík fyr­ir­tæki þurfa að upp­fylla til að mega bjóða þjón­ustu sína og telur starfs­hóp­ur­inn eðli­legt að þær kröfur séu þær sömu og til leigu­bíl­stjóra.  Þannig þurfi far­veitur á borð við Uber og Lyft að full­nægja öllum skil­yrðum sem leigu­bif­reiða­stöðvum yrði gert að full­nægja.

ESA til­kynnti í jan­úar 2017 að stofn­unin hefði hafið frum­kvæð­is­at­hugun á leigu­bif­reiða­mark­aðnum á Íslandi og mögu­legum hindr­unum á aðgengi að honum. Starfs­hóp­ur­inn var í kjöl­farið skip­aður í októ­ber og honum falið að leggja fram til­lögur til sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins um hvort og þá hvaða breyt­ingar væri nauð­syn­legt að gera á íslensku reglu­verki um leigu­bif­reiða­akstur. Í verk­efn­is­á­ætlun kemur fram að megin mark­mið verk­efnis starfs­hóps­ins sé að stuðla að góðu aðgengi að hag­kvæmri, skil­virkri og öruggri leigu­bif­reiða­þjón­ustu fyrir neyt­endur á Íslandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umferðarmenning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár