Skoða að bjóða út rekstur „troðfullra“ bílahúsa

Fram­kvæmda­stjóri Bíla­stæða­sjóðs telur sjálf­sagt að bjóða út rekstur bíla­húsa ef einka­að­ilar telja sig geta rekið þau betur. Einka­að­ilar muni þurfa að hækka gjald­skrá ef rekstur gengur illa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lagði fram til­lögu þess efnis sem var tekin til skoð­unar af meiri­hlut­anum í borg­ar­stjórn.

Ráðhúsið
Ráðhúsið Bíla­stæða­húsin í Kvosinni eru troð­full, að sögn fram­kvæmda­stjóra Bíla­stæða­sjóðs. Mynd: Af vef Reykjavíkurborgar

Bíla­húsin í Reykja­vík eru rekin með tapi, en þrír fjórðu af kostn­aði við rekstur þeirra skýrist af leigu­greiðslum til Reykja­vík­ur­borgar. Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn og borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks hafa sam­þykkt að láta skoða útboð á rekstri hús­anna. Fram­kvæmda­stjóri Bíla­stæða­sjóðs segir sjálf­sagt að bjóða út þjón­ust­una ef einka­að­ilar telji sig geta rekið þau betur en borgin.

96 millj­óna króna tap­rekstur var á rekstri bíla­hús­anna sjö, sem Bíla­stæða­sjóður rekur, árið 2017. Megnið af kostn­að­inum við rekst­ur­inn, 73% eða tæpar 214 millj­ónir, skýrist af leigu­greiðslum til Eigna­sjóðs Reykja­vík­ur­borgar.

„Bíla­húsin eru búin að vera smátt og smátt að nálg­ast núllið,“ segir Kolbrún Jón­atans­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Bíla­stæða­sjóðs. „Það er búið að vera gegn­um­gang­andi tap, að miklu leyti af því að það var tregða við að breyta gjald­skránni. Núna eru reglu­lega hækkuð bíla­stæða­gjöld úti á götu og í hús­unum. Til árs­ins 2010 hafði ekk­ert hækkað á öld­inni. Svo þetta er allt á réttri leið.“

Hagnaður var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár