Mynd: Heiða Helgadóttir

Rétt slapp undan bíl með eins árs son sinn

Móðir seg­ist lítil svör hafa fengið frá lög­regl­unni og Reykja­vík­ur­borg eftir að hafa sloppið undan árekstri við Háskóla Íslands. Tillögur stúd­enta um bætt öryggi gang­andi veg­far­enda við Sæmund­ar­götu eru ekki komnar til fram­kvæmda.

Mikil hætta er vegna umferðar öku­tækja við Sæmund­ar­götu hjá Háskóla Íslands að sögn konu sem varð næstum fyrir bíl ásamt ungu barni sínu á mánu­dag. Ábend­ingar Stúd­enta­ráðs um bætt öryggi gang­andi veg­far­enda við göt­una eru ekki komnar til fram­kvæmda hjá Reykja­vík­ur­borg.

Glódís Guð­geirs­dóttir, jarð­fræði­nemi og fim­leika­kona, var á gangi með eins árs son sinn í barna­vagni á gang­stétt við Sæmund­ar­götu á mánu­dags­morgun. Ökumaður bíls keyrði niður boga­laga göt­una frá aðal­bygg­ingu skól­ans og náði ein­göngu að stoppa örfáum senti­metrum frá mæðgin­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umferðarmenning

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár