Fór sporlausan hring á puttanum

Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Óskar Jónasson stundar putta­ferða­lög af ástríðu og hug­sjón. Á dög­unum fór hann sína fyrstu hring­ferð um landið á putt­anum. Á átta dögum steig hann upp í 24 bíla hjá fólki frá 11 þjóð­löndum.

Fór sporlausan hring á puttanum
Putta­ferða­lang­ur­inn Óskar Jónasson gefur sig óviss­unni á vald þegar hann ferð­ast á putt­anum og segir það veita sér frels­is­til­finn­ingu sem sé sjald­gæf í hvers­dags­líf­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þetta byrj­aði af nauð­syn. Ég var í fjall­göngu fyrir vestan, gekk yfir heiði og kom niður hinum megin. Ég þurfti að koma mér aftur í bíl­inn og ákvað að fara á putt­anum. Það gekk eins og í sögu,“ segir Óskar Jónasson kvik­mynda­gerð­ar­maður. Hann er meira en til í að rifja upp ævin­týri sín sem putta­ferða­langur, ekki síst vegna þess að hann langar til að bera hróður þess ferða­máta sem víð­ast, að fleiri geri sér grein fyrir því hvað margir kostir fylgi því að sam­ein­ast í bíla og eiga gæða­stundir með blá­ó­kunn­ugu fólki. Hann segir frá því hvernig hann fór frá því að ferð­ast í þetta eina sinn á putt­anum af nauð­syn yfir í að gera það mark­visst og af ein­hvers konar hug­sjón.

Óskar á gam­alt fjár­hús og hlöðu við Pat­reks­fjörð, sem hann er búinn að breyta í híbýli. Þar allt í kring eru góðar göngu­leiðir en „liggja voða­lega sjaldan í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umferðarmenning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár