Leitin að draumakartöflunni

Þær eru bleikar, dökk­rauðar, bláar, fjólu­bláar, svar­bláar og jafn­vel gular, kart­öfl­urnar sem koma upp úr beð­unum hjá Dagnýju Her­manns­dóttur. Hún ræktar þær af fræi, sem gerir það að verkum að útkoman getur orðið óvænt og oft mjög skraut­leg.

Leitin að draumakartöflunni
Óð í kart­öflur Dagný Her­manns­dóttir var ein þeirra fyrstu til að rækta kart­öflur af fræjum hér á landi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nokkuð hefur færst í vöxt hér á landi að rækta kart­öflur af fræjum, í stað þess að rækta af útsæði eins og algeng­ast er. Ein af upp­hafs­mann­eskjum þess­arar rækt­unar hér á landi er Dagný Her­manns­dóttir sem sjálf lýsir sér sem dellu­mann­eskju af verstu sort. Garð­yrkja hefur verið ástríða hennar um áraraðir. Margir tengja hana helst við súr­kál og ekki af ástæðu­lausu, því um það hefur hún skrifað heila bók, heldur úti Facebook-síð­unni Súrkál og heima­síð­unni www.surkal.is, auk þess að fram­leiða „Súrkál fyrir sæl­kera“ sem fæst í ýmsum versl­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Svo er þetta ótrú­lega gott saman, súr­kál og kart­öflur,“ segir hún. „En ég fór aðal­lega út í að rækta kart­öflur af fræjum því þær geta verið svo ótrú­lega fal­legar.“

 

Grund­vall­ar­munur er á því að rækta kart­öflur af fræjum ann­ars vegar og af útsæði hins vegar. Fyrr­nefnda aðferðin er tals­vert áhuga­verð­ari, í það minnsta fyrir þá sem vilja láta koma sér …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár