Hélt #MeToo ræðu um karlrembuna í kokkabransanum

Ólöf Jak­obs­dóttir, mat­reiðslu­meist­ari á Horninu, hélt ræðu á fundi Klúbbs mat­reiðslu­meist­ara um stöðu kvenna í grein­inni. Hún lýsir ein­elti og karl­rembu á vinnu­stað erlendis, en segir verstu atvikin hafa verið á Íslandi.

Hélt #MeToo ræðu um karlrembuna í kokkabransanum
Ólöf Jak­obs­dóttir Ólöf segir það engin tíð­indi að kokka­brans­inn sé karl­rembu­bransi.

„Ég heiti Ólöf Jak­obs­dóttir og ég er hér. Ég er kona og ég er mat­reiðslu­maður – og ég er alveg eins og þið.“ Svona lauk Ólöf Jak­obs­dóttir, mat­reiðslu­meist­ari á Horninu í Reykja­vík, ræðu sinni á aðal­fundi Klúbbs mat­reiðslu­meist­ara sem fram fór á Siglu­firði laug­ar­dag­inn 7. apríl. Ólöf vildi vekja máls á stöðu kvenna innan kokka­brans­ans og segir mót­tök­urnar hafa verið afar jákvæðar.

„MeToo bylt­ingin er komin til að vera og er ekki að fara neitt,“ segir Ólöf í sam­tali við Stundina. „Okkar bransi verður að vera jafn vak­andi fyrir því og aðrir. Þegar ég lauk máli mínu komu stelpur til mín og sögð­ust vera með hund­rað sögur af svona lög­uðu. Þegar við hugsum til baka getum við allar tengt við þetta. Ég held ég sé ekki að segja neinar fréttir þegar ég segi að kokka­brans­inn sé karla­bransi.“

Ólöf segir starf mat­reiðslu­meist­ar­ans vera krefj­andi. Vaktir séu langar, yfir­leitt 12 tímar, og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár