Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttarstöðu rannsóknarþola

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, setti fram alvar­legar ásak­anir á hendur Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í Silfrinu síð­ustu helgi. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola eftir kaup á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga og upp­ljóstr­anir Panama­skjal­anna.

Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttarstöðu rannsóknarþola

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að gefa upp hvort Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola hjá emb­ætt­inu. 

Þór­hildur Sunnasagði „rök­studdan grun“ um að ráð­herra hefði framið skatta­laga­brot.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, hélt því fram í Silfrinu síð­ustu helgi að „rök­studdur grunur“ væri um að Bjarni hefði framið skatta­laga­brot. 

Í ljósi þess­arar alvar­legu ásök­unar beindi Stundin þeirri spurn­ingu til Bryn­dísar Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra hvort Bjarni hefði á ein­hverjum tíma­punkti, meðan hann hefur gegnt emb­ætti ráð­herra, haft rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola hjá emb­ætt­inu. 

„Ég get ekki tjáð mig um það hvort til­teknir aðilar séu eða hafi verið undir rann­sókn eða ekki,“ segir í svari Bryn­dísar við tölvu­pósti Stund­ar­innar. Sjálfur hefur Bjarni Bene­dikts­son ekki svarað fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. 

Bryndís Krist­jáns­dóttirskatt­rann­sókn­ar­stjóri

Sem kunn­ugt er tók skatt­rann­sókn­ar­stjóri mál tuga Íslend­inga til rann­sóknar eftir að emb­ættið keypti gögn um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum árið 2015 og fjallað var um Panama­skjölin í fjöl­miðlum árið 2016.

Bjarni Bene­dikts­son, faðir hans, Benedikt Sveins­son og félög tengd þeim komu fyrir í umræddum gögnum, en emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. 

Stundin vís­aði sér­stak­lega til þess í tölvu­pósts­sam­skiptum við Bryndísi Krist­jáns­dóttur að þing­maður hefði sett fram alvar­legar ásak­anir um að rök­studdur grunur væri um refsi­vert athæfi til­tek­ins ein­stak­lings, fjár­mála­ráð­herra.

Bryndís segir að þrátt fyrir þetta geti hún ekki gefið upp hvort Bjarni hafi verið til rann­sóknar. Vísar hún til þagn­ar­skyldu­á­kvæðis 117. gr. laga um tekju­skatt í þessu sam­hengi. Þar segir að skatt­stjórum, umboðs­mönnum skatt­stjóra, rík­is­skatt­stjóra, skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins og yfir­skatta­nefnd sé bannað, að við­lagðri ábyrgð eftir ákvæðum almennra hegn­ing­ar­laga um brot í opin­beru starfi, að skýra óvið­kom­andi frá því sem þeir kom­ast að í sýslan sinni um tekjur og efna­hag skatt­að­ila. 

Skilyrði ráðuneytisins olli töfum

Árið 2016 rakti Stundin í ítar­legum frétta­skýr­ingum hvernig skil­yrði sem fjár­mála­ráðu­neytið setti skatt­rann­sókn­ar­stjóra til kaupa á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga urðu til þess að dráttur varð á kaupum gagn­anna. Ekki liggur fyrir hvort eða hve mörg skatta­laga­brot fyrnd­ust vegna þessa.

Bjarni Bene­dikts­son var fjár­mála­ráð­herra á þessum tíma, en þegar hann fund­aði með skatt­rann­sókn­ar­stjóra um kaup á gögnum um aflandseignir árið 2014 lá ekki fyrir að Bjarni hefði átt aflands­fé­lag á Seychelles-eyjum en gefið skatta­yf­ir­völdum þær röngu upp­lýs­ingar að félagið væri skráð í Lúx­em­borg, né var vitað að upp­lýs­ingar um félagið, Falson & Co, kæmu fyrir í gögn­unum sem skatt­rann­sókn­ar­stjóra bauðst að kaupa. Þá hafði heldur ekki komið fram opin­ber­lega að faðir ráð­herra hefði átt félag á Tortólu og not­fært sér þjón­ustu lög­manns­stof­unnar Mossack Fonseca og væri því einnig lík­legur að koma fyrir í gögn­unum. 

Þann 4. febr­úar 2015 gagn­rýndi Bjarni Bene­dikts­son emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra harð­lega og sagði að kaup á gögnum um aflandseignir Íslend­inga hefðu „þvælst fyrir“ emb­ætt­inu alltof lengi og að málið „strand­aði svo sann­ar­lega ekki á fjár­mála­ráðu­neyt­inu“. Skömmu síðar kom í ljós að á þeim tíma sem Bjarni lét þessi orð falla var skatt­rann­sókn­ar­stjóri í bið­stöðu vegna skil­yrða sem ráðu­neyti Bjarna hafði sett emb­ætt­inu og reynd­ist tor­velt að upp­fylla. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði þá nýverið sent ráðu­neyt­inu bréf sem ekki hafði verið svarað. 

Gögn sem Stundin fékk aðgang að á grund­velli upp­lýs­inga­laga sýndu að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði sent fjár­mála­ráðu­neyt­inu tölvu­póst í des­em­ber 2014 þar sem fram kom að svo virt­ist sem fjöl­miðla­um­ræða væri að fara af stað á þá lund að tafir á kaupum gagn­anna væru emb­ætt­inu að kenna. Með ummælum sínum nokkrum vikum síðar, þann 4. febr­úar 2015, ýtti Bjarni undir að dregin væri upp slík vill­andi mynd af stöðu máls­ins. Í kjöl­farið fann skatt­rann­sókn­ar­stjóri sig knúna til að leið­rétta orð hans. Haft var eftir henni í fréttum RÚV ða hún væri slegin yfir ummælum ráð­herra.

Aðkoma ráðherra gagnrýnd

Eftir að sam­skipti ráð­herra við skatt­rann­sókn­ar­stjóra höfðu vakið fjöl­miðla­at­hygli fékk skatt­rann­sókn­ar­stjóri loks vil­yrði fyrir því að kaupa gögnin. Kaupin gengu í gegn um sum­arið, en þá var liðið um ár síðan emb­ætt­inu var tjáð að gögnin stæðu til boða. 

Sér­fræð­ingum í stjórn­sýslu­rétti, sem Stundin ræddi við þegar fjallað var um málið, bar saman um að aðkoma fjár­mála­ráð­herra kynni að hafa verið á gráu svæði með til­liti til óskráðra meg­in­reglna stjórn­sýslu­réttar um hæfi.

Þá vökn­uðu fleiri og almenn­ari spurn­ingar vegna skil­yrð­anna sem fjár­mála­ráðu­neytið setti skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, skrif­aði um stöðu ráðu­neyt­is­ins og skatt­yf­ir­valda í mál­inu þann 27. sept­em­ber 2014, löngu áður en upp­lýst var um aðkomu Bjarna og föður hans að við­skiptum í gegnum aflands­fé­lög, og lagði áherslu á að fram­kvæmd skatta­laga yrði að vera óháð póli­tísku valdi og afskipti ráð­herra sem allra minnst. „Aðkoma fjár­mála­ráð­herra eða ann­arra póli­tískra stjórn­valda að þessu máli á ekki að vera á neinum öðrum grund­velli en þeim að tryggja skatt­yf­ir­völdum nægi­legt fé til að sinna verk­efnum sem þeim er falið lögum sam­kvæmt,“ skrif­aði Indriði. 

Í ljósi full­yrð­inga Þór­hildar Sunnu um að rök­studdur grunur sé um að Bjarni Bene­dikts­son hafi framið skatta­laga­brot sendi Stundin honum fyr­ir­spurn og spurði hvort hann hefði ein­hvern tím­ann á ráð­herra- og þing­manns­ferli sínum haft rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola hjá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra eða rétt­ar­stöðu grun­aðs manns hjá ákæru­vald­inu. Bjarni hefur ekki svarað fyr­ir­spurn­inni, en hann svarar yfir­leitt ekki fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár