Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Bjarni neitar að svara spurningum þingnefndar: „Samskipti nýrrar ríkisstjórnar við þingið fara illa af stað“

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unn­ar gagn­rýna Bjarna Bene­dikts­son harð­lega.

Bjarni neitar að svara spurningum þingnefndar: „Samskipti nýrrar ríkisstjórnar við þingið fara illa af stað“

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra, neitar að koma fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og svara fyrir meðhöndlun sína á skýrslu um aflandseignir Íslendinga. Sem kunnugt er ákvað Bjarni að fresta birtingu skýrslunnar fram yfir þingkosningar og greindi svo rangt frá málavöxtum í fjölmiðlum. Skýrslan reyndist vera þungur áfellisdómur yfir stefnunni sem rekin var á sviði skattalöggjafar og skattaeftirlits á þeim árum sem Sjálfstæðisflokkurinn fór með fjármálaráðuneytið en Bjarni, formaður flokksins, hefur viðurkennt að hafa ekki viljað að skýrslan yrði sett í „kosningasamhengi“. 

Píratar upplýstu um þá ákvörðun ráðherrans að afþakka fundarboð nefndarinnar í fréttatilkynningu sem birtist á vef flokksins gær. „Nefndarmönnum efnahags- og viðskiptanefndar bárust þær fregnir að forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, hyggst ekki koma á fund nefndarinnar til þess að ræða framgöngu sína við birtingu skýrslu um mat á umfangi eigna Íslendinga á aflandssvæðum,“ segir þar. „Ráðherra telur sig ekki hafa meira um málið að segja á þessu stigi enda hafi hann tjáð sig um málið opinberlega.“

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, fjallaði um framgöngu Bjarna á Facebook-síðu sinni í morgun.

Fram kemur að hún hafi beðið um fund í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þann 7. janúar til að fara yfir skýrsluna. „Þegar í ljós kom að sú skýrsla hafði ekki verið birt í haust þegar hún var tilbúin var óskað eftir því að þáverandi fjármálaráðherra kæmi fyrir nefndina. Síðan þá hefur verið reynt að finna tíma fyrir fundinn sem hentaði ráðherra. Í gærkvöldi berst svo bréf um að ráðherra muni ekki mæta fyrir nefndina þar sem hann hafi þegar skýrt sitt mál fyrir fjölmiðlum,“ skrifar Katrín og bætir við: „Þarna er ólíku saman að jafna og óásættanlegt að ráðherrar telji það nægjanlegt að skýra slík mál fyrir fjölmiðlum. Samskipti nýrrar ríkisstjórnar við þingið fara illa af stað.“

Telja stöðu þingsins veikari eftir ráðherraskipti

Þingmenn Pírata og þingflokksformaður Vinstri grænna, Svandís Svavarsdóttir, bentu á það í síðustu viku að tilfærsla Bjarna úr embætti fjármálaráðherra í embætti forsætisráðherra kynni að setja strik í reikninginn að því er varðar athugun Alþingis á framgöngu ráðherrans og meðhöndlun hans á aflandseignaskýrslu. 

Í yfirlýsingu frá þingflokki Pírata sem birtist 9. janúar var þess krafist að málið yrði tekið fyrir í efnahags- og viðskiptanefnd áður en ný ríkisstjórn tæki formlega við þannig að Bjarni Benediktsson myndi fyrir vinnubrögð sín sem fjármálaráðherra. „Það mundi veikja stöðu þingsins, sem fer með eftirlitshlutverk gagnvart ráðherra, að þurfa mögulega að yfirheyra nýjan forsætisráðherra vegna verka sem ekki lengur heyra undir hans lögformlegu ábyrgð.“ 

Svandís Svavarsdóttir tók í sama streng í morgunútvarpi Rásar 2 daginn eftir. „Það er náttúrulega vandræðalegt að formaður VG biður um fund í efnahags- og viðskiptanefnd – og hún gerir það strax á laugardaginn – áður en lokayfirlýsing Bjarna kemur fram í málinu. Það liggur fyrir að hún mun fá fund í efnahags- og viðskiptanefnd á fimmtudaginn … þegar bæði er kominn annar formaður í nefndinni, væntanlega, og annar ráðherra í ráðuneytið. Þannig að það er engu líkara en að það standi til að gæta þess sérstaklega að Bjarni sé í raun og veru kominn í önnur verkefni þegar það kemur að því að ræða málin,“ sagði hún.

„Það er engu líkara en að það standi til að gæta þess sérstaklega að Bjarni sé kominn í önnur verkefni þegar kemur að því að ræða málin“

Nú er ljóst að Bjarni er ekki aðeins kominn „í önnur verkefni þegar kemur að því að ræða málin“ heldur hefur hann ákveðið að mæta ekki á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. 

„Mér finnst algjörlega ótækt að forsætisráðherra vilji ekki gera grein fyrir verkum sínum fyrir nefndinni. Með slíkri neitun vegur hann að eftirlitshlutverki Alþingis,“ segir í tölvupósti sem Smári McCarthy, fulltrúi Pírata í efnahags- og viðskiptanefnd, sendi nefndarmönnum í gær. „Það að hafa veitt fjölmiðlum svör er allt annað en að hafa veitt þinginu viðunandi svör. Ég ítreka því ósk um fund með forsætisráðherra vegna málsins.”

Haft er eftir Birgittu Jónsdóttur á vef flokksins að það sé sjálfsögð krafa að ráðherra gegni lögbundnu hlutverki sínu gagnvart þinginu og að sama skapi skylda þingmanna að veita framkvæmdavaldinu aðhald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an þeir dæmdu Arn­fríð­ar­mál

Arn­fríð­ur Ein­ars­dótt­ir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveim­ur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku af­stöðu um hæfi henn­ar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og mál­ið var til með­ferð­ar. Hinir þrír sem vald­ir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an Hæstirétt­ur tók fyr­ir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörðinni“
1
Innlent

„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörð­inni“

Und­ir­skrifta­söfn­un er haf­in til að mó­mæla fram­kvæmd­um í Skafta­felli. Fund­ur um breyt­ing­ar fram­kvæmd­anna var hald­inn um há­sum­ar. „Það dugði til að gera skyldu sína,“ seg­ir íbúi á svæð­inu. Íbú­ar ótt­ast að sam­keppn­is­hæfni muni minnka ef fyr­ir­hug­uð ferða­g­ist­ing rís. „Ég sé ekki ann­að en að þetta auki tekj­ur og at­vinnu á svæð­inu,“ seg­ir Pálm­ar Harð­ar­son, sem stend­ur að fram­kvæmd­inni ásamt Arctic Advent­ur­es.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sif Sigmarsdóttir
1
Pistill

Sif Sigmarsdóttir

Ert þú að eyði­leggja jól­in fyr­ir ein­hverj­um öðr­um?

Ár­ið er senn á enda. Ein þau tíma­mót sem und­ir­rit­uð fagn­aði á ár­inu var tutt­ugu ára brúð­kaup­saf­mæli. Af til­efn­inu þving­uð­um við hjón­in okk­ur til að líta upp úr hvers­dag­sam­str­inu og fara út að borða. Fyr­ir val­inu varð stað­ur­inn sem við borð­uð­um á þeg­ar við gift­um okk­ur, Ca­fé Royal, sögu­fræg­ur veit­inga­stað­ur á Re­g­ent Street í London, þar sem ekki ómerk­ari menn...
„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörðinni“
2
Innlent

„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörð­inni“

Und­ir­skrifta­söfn­un er haf­in til að mó­mæla fram­kvæmd­um í Skafta­felli. Fund­ur um breyt­ing­ar fram­kvæmd­anna var hald­inn um há­sum­ar. „Það dugði til að gera skyldu sína,“ seg­ir íbúi á svæð­inu. Íbú­ar ótt­ast að sam­keppn­is­hæfni muni minnka ef fyr­ir­hug­uð ferða­g­ist­ing rís. „Ég sé ekki ann­að en að þetta auki tekj­ur og at­vinnu á svæð­inu,“ seg­ir Pálm­ar Harð­ar­son, sem stend­ur að fram­kvæmd­inni ásamt Arctic Advent­ur­es.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég var lifandi dauð“
2
Viðtal

„Ég var lif­andi dauð“

Lína Birgitta Sig­urð­ar­dótt­ir hlú­ir vel að heils­unni. Hún er 34 ára í dag og seg­ist ætla að vera í sínu besta formi fer­tug, and­lega og lík­am­lega. Á sinni ævi hef­ur hún þurft að tak­ast á við marg­vís­leg áföll, en fað­ir henn­ar sat í fang­elsi og hún glímdi með­al ann­ars við ofsa­hræðslu, þrá­hyggju og bú­lemíu. Fyrsta fyr­ir­tæk­ið fór í gjald­þrot en nú horf­ir hún björt­um aug­um fram á veg­inn og stefn­ir á er­lend­an mark­að.
Sif Sigmarsdóttir
6
Pistill

Sif Sigmarsdóttir

Ert þú að eyði­leggja jól­in fyr­ir ein­hverj­um öðr­um?

Ár­ið er senn á enda. Ein þau tíma­mót sem und­ir­rit­uð fagn­aði á ár­inu var tutt­ugu ára brúð­kaup­saf­mæli. Af til­efn­inu þving­uð­um við hjón­in okk­ur til að líta upp úr hvers­dag­sam­str­inu og fara út að borða. Fyr­ir val­inu varð stað­ur­inn sem við borð­uð­um á þeg­ar við gift­um okk­ur, Ca­fé Royal, sögu­fræg­ur veit­inga­stað­ur á Re­g­ent Street í London, þar sem ekki ómerk­ari menn...

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár