Sögðu skilið við „vókið“ og urðu íhaldsmenn

Tveir ungir Mið­flokks­menn hafa lýst færslu sinni frá frjáls­lyndi og vinstri­mennsku og yfir til íhalds­samra og þjóð­legra gilda í nýlegum við­tölum. „Ég held okkur gæti öllum liðið miklu betur ef við myndum bara aðeins fara að ná jarð­teng­ingu og smá skyn­semi,“ segir annað þeirra.

Sögðu skilið við „vókið“ og urðu íhaldsmenn

„Ég er alin upp í mjög vinstrisinn­uðu umhverfi. Ég fékk póli­tískt upp­eldi svo­lítið og hafði áhuga strax. En svo lærir maður aðeins inn á lífið og þá fer maður að móta sér kannski aðeins skyn­sam­legri afstöðu til ýmissa mál­efna. Og þá leitar maður aðeins inn að miðju og kannski jafn­vel til hægri.“

Svona komst hin rúm­lega þrí­tuga Hlédís Maren Guð­munds­dóttir að orði í nýjasta þætti Grjót­kasts­ins, hlað­varps Björns Inga Hrafns­sonar, aðstoð­ar­manns Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, stofn­anda og for­manns Mið­flokks­ins.

Þar var rætt við tvo unga og hægri­s­inn­aða við­mæl­endur sem voru báðir við­staddir lands­þing Mið­flokks­ins fyrr í mán­uð­inum. Í þætt­inum sagði Hlédís frá sinni veg­ferð frá því að vera inni í ung­liða­starfi Vinstri grænna yfir í Mið­flokk­inn. 

Ferðalag hennar frá frjáls­lynd­ari gildum og yfir í þau sem eru tals­vert íhalds­sam­ari svipar nokkuð til þró­un­innar sem hefur orðið á skoð­unum Snorra Mássonar, nýkjör­ins vara­for­manns Mið­flokks­ins. Hugð­ar­efni þeirra eru meðal ann­ars …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Að enda í Miðflokknum ? Þarf ekki sér skoðun varðandi svona fólk ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár