Arnaldur og Yrsa fá 20 milljónir hvort

Arnaldur Ind­riða­son og Yrsa Sig­urð­ar­dóttir hafa bæði fjár­fest í verð­bréfum í gegnum félögin sem halda utan um rit­störf þeirra. Arnaldur á verð­bréf fyrir meira en millj­arð og Yrsa hefur fjár­fest í skráðum hluta­bréfum.

Arnaldur og Yrsa fá 20 milljónir hvort
Vegnar vel Arnaldur hefur meiri tekjur af fjár­magni en hann hefur af rit­störfum. Rekstr­ar­tekjur félags­ins hans námu 68 millj­ónum en 74 millj­óna tekjur voru af fjár­fest­ingum. Mynd: afp

Glæpa­sagna­höf­und­arnir Arnaldur Ind­riða­son og Yrsa Sig­urð­ar­dóttir fá 20 millj­ónir króna hvort í arð­greiðslur úr félög­unum sem halda utan um rit­störf þeirra. Afkoma fyr­ir­tækj­anna er þó æði mis­jöfn en bæði eru þau meðal vin­sæl­ustu glæpa­sagna­höf­unda þjóð­ar­innar. Þau byggja afkomu sína mis­mikið á rit­störfum. 

Félag Arnaldar, Gilhagi ehf., skil­aði 104 millj­óna króna hagn­aði á árinu 2024 og átti eignir að verð­mæti um 1.300 millj­óna króna. Þar á meðal voru verð­bréf sem voru metin á rúman millj­arð í lok árs og hand­bært fé upp á 220 millj­ónir króna. Meiri­hluti af tekjum félags­ins kom úr fjár­fest­ingum, en ekki af rit­störfum. 

Yrsa Sig­urð­ar­dóttir ehf., hagn­að­ist um 13,7 millj­ónir króna á sama tíma, sem tæp­lega tvö­falt meira en árið áður. Félagið átti eignir upp á 83 millj­ónir króna og stafar afkoma þess fyrst og fremst af rit­störfum Yrsu.

Milljarður í verðbréfum

Rekstr­ar­tekjur félags Arnaldar námu tæpum 68 millj­ónum króna, svipað og árið …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Svo segja menn að glæpir borgi sig ekki !
    1
  • GDE
    Guðrún Dagný Einarsdóttir skrifaði
    Þau skrifa bækur sem seljast bæði á Íslandi og erlendis, er eitthvað óeðlilegt við að fá tekjur fyrir það?
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ja hérna. Einhvern tíma hefði þetta verið saga til næsta bæjar. Vonandi láta þau eitthvað annað gott af sér leiða í samfélaginu en að raka saman gríðarlegum fjármunum. Þetta gildir jú um alla.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár