Hátekjulistinn sýnir okkur virði kvótans

Baráttan á Alþingi um veiði­gjöldin varð til þess að tekjur rík­is­ins hækka um nokkra millj­arða á ári. Útgerð­ar­kóngar toppa Hátekju­list­ann um land allt, sumir með millj­arða í tekjur hver. Sex fjöl­skyldur eiga um helm­ing kvót­ans og gróð­inn streymir í óskyldar greinar og til næstu kyn­slóða.

Hátekjulistinn sýnir okkur virði kvótans
Þor­steinn Már Bald­vins­son Skatta­kóngur Íslands er hættur sem for­stjóri Samherja og börn hans hafa eign­ast fyr­ir­tækið. Hann hefur nú rétt­ar­stöðu sak­born­ings í Sam­herj­a­mál­inu svo­kall­aða. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hátekju­listi Heim­ild­ar­innar 2025 sýnir tekju­hæsta 1% íbúa Íslands, 3.542 manns, sem rit­stjórn fann með ítar­legri leit í álagn­inga­skrám Skatts­ins fyrir árið 2024.

Ólíkt tekju­listum ann­arra fjöl­miðla tekur Hátekju­list­inn mið af fjár­magnstekjum jafnt og launa­tekjum. Fjár­magnstekjur eru langstærsti hluti tekna þeirra sem ná efst á list­ann, enda eru þar á meðal arð­greiðslur til eig­enda fyr­ir­tækja, arfur og sölu­hagn­aður á eignum.

Hjónin fyrr­ver­andi sem áður áttu útgerð­ar­fé­lagið Samherja, Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga S. Guð­munds­dóttir, tróna á toppi Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar 2024 með 4,7 og 4,6 millj­arða í heild­ar­tekjur hvort fyrir sig. Samherji fer með 8,72% af öllum fisk­veiði­heim­ildum í ár en þá eru ótaldar þær sem eig­endur hans stýra í gegnum tengd fyr­ir­tæki eins og Síld­ar­vinnsl­una.

Börnin þeirra eiga nú Samherja sem þau fengu með selj­enda­láni frá for­eldrum sínum og fyr­ir­fram­greiddum arfi.

Hátekju­list­inn …

Kjósa
90
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þóra Gunnarsdóttir skrifaði
    Hvenær verður eitthvað gert?
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Árið 1978 var fyrirtækjum gert heimilt að eiga fyrirtæki!
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    "Á meðan borgar hins vegar láglaunamanneskja í neðsta skattþrepi 31,49 prósent af launum sínum í tekjuskatt en er ólíkleg til að hafa mikið af fjármagnstekjum ..."
    Nú, á hún nokkrar krónur á bankareikningi borgar hún fjármagnstekjuskatt af væntanlegum vaxtagreiðslum - þó þessar greiðslur rétt ná (eða ná ekki) að halda verðgildi innistæðunnar vegna verðbólgu.
    Hún borgar sem sagt skatt fyrir það að eign hennar í bankanum ryrnar ekki en stórfjármagnseigendur vóru með harmakvein í gegn um leppa þeirra á þingi allt vorið fyrir það að vera krafðir um sanngjarnt gjald fyrir afnot auðlindar sem þjóðin á.
    6
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Maður fyllist af mikilli sorg við að lesa þetta.
    Á meðan "eigendur" kvótans hirða milljarðar af því sem á að heita þjóðareign en er í framkvæmt eign kvótahafa eru til börn á Íslandi sem jafnvel svelta í lok mánaðar þar sem aðstandendur hafa ekki efni á að veita börnum sínum lámarkslifibrauð.
    Hér er spillingin ofboðsleg. Svo heldur stjórnarandstaða uppi málþjófi vikum saman og stoppar eðlilega starfsemi alþingins. Þetta sést best á framgöngu varaformanns Sjálfstæðinsflokkins.
    Um var að ræða smáupphæð miðað við það sem kvótaeigendur hafa í tekjur. Ég hefði talið eðlilegt að veiðigjöldin væru minnst helmimgur að þeirri upphæð sem kvótaleigan er á almennum markaði. Þannig myndi varaformaður Sjálfstæðisflokkins og hans fólk þurfa að borga hálfan milljarð í veiðigjöld og fengið þá annað eins í sinn vasa, í rauninni fyrir ekki neitt. Væri það ekki nokkuð gott fyrir að leiga frá sér eign sem sagt er að sé eign þjóðarinnar?
    Hvað með börnin á Íslandi sem fá ekki það sem önnur börn fá vegna þess að aðstandendur þeirra fá aðeins lágmarkslaun og eiga jafnvel ekki fyrir mat síðustu daga mánaðarins. Sem dæmi má nefna einstæðar mæður á leigumarknaðir.
    Ég kaus ekki Flokks fólkins og mun ekki gera það. Inga Sæland hefur ekki staðið við það sem hún talaði svo mikið um. Hún hefur valdið mér vonbrigðum. Að vísu hefur stjórnarandstaðan tafið fyrir með málþjófi sínu svo þetta er ekki fullreynt.

    Og að lokum;

    Ég vona innilega að veiðigjöldin verði hækkuð mun meira í náinni framtíð.
    Sagt er að þjóðin eigi fiskinn í sjónum en í framkvæmt eru það kvótahafendur sem eiga hann.
    12
    • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
      Inga er þó búin að koma hækkun öryrkja í gegn. Fyrir suma er þetta víst töluverð kjarabót.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár