Ný rannsókn: Hitler líklega kynferðislega þroskahamlaður

Fjöl­þjóð­leg rann­sókn á blóði leið­toga Nas­ista­flokks­ins og Þriðja rík­is­ins sýnir að hann var með heil­kenni sem orsakar kyn­ferð­is­lega þroska­hömlun og getur fylgt örlimur.

Ný rannsókn: Hitler líklega kynferðislega þroskahamlaður
Olli dauða tug­millj­óna Adolf Hitler situr fyrir í mynda­töku.

Adolf Hitler þjáð­ist að öllum lík­indum af erfða­sjúk­dómnum Kallmann-heil­kenni sem getur lýst sér í því að eistu ganga ekki niður og getn­að­ar­limur er óeðli­lega lít­ill (e. micropenis), sögðu rann­sak­endur og heim­ild­ar­mynda­gerð­ar­menn í dag, í kjöl­far DNA-rann­sóknar á blóði nas­ista­leið­tog­ans.

Nýju rann­sókn­irnar hrekja einnig þá til­gátu að Hitler hafi verið af gyð­inga­ættum.

Hæddur í sönglögum

Vinsæl lög frá tímum seinni heims­styrj­ald­ar­innar gerðu oft grín að lík­ams­bygg­ingu Hitlers en höfðu engan vís­inda­legan grund­völl.

Nið­ur­stöður alþjóð­legs teymis vís­inda­manna og sagn­fræð­inga virð­ast nú stað­festa langvar­andi grun­semdir um kyn­þroska hans.

„Enginn hefur nokkurn tíma getað útskýrt hvers vegna Hitler var svo óþægi­legur í kringum konur allt sitt líf, eða hvers vegna hann átti lík­lega aldrei í nánum sam­böndum við konur,“ sagði Alex Kay frá Potsdam-háskóla.

„En nú vitum við að hann var með Kallmann-heil­kenni, þetta gæti verið svarið sem við höfum verið að leita að,“ sagði hann.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar eru kynntar í nýrri heim­ild­ar­mynd, „Hitler's DNA: Blu­eprint of a Dictator“, sem á að sýna á laug­ar­dag.

Rann­sóknin leiddi í ljós „miklar líkur“ á því að Hitler hafi verið með Kallmann-heil­kenni og „mjög háa“ ein­kunn – í efsta eina pró­sent­inu – fyrir til­hneig­ingu til ein­hverfu, geð­klofa og geð­hvarfa­sýki, sagði fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Blink Films.

Rann­sókn­arteymið lagði áherslu á að slíkir sjúk­dómar gætu þó ekki útskýrt eða afsakað stríðs­rekstur Hitlers eða kyn­þátta­stefnu hans.

Talið er að yfir 50 millj­ónir manna hafi lát­ist í seinni heims­styrj­öld­inni, þar á meðal sex millj­ónir gyð­inga sem voru kerf­is­bundið myrtir.

Enginn afi af gyðingaættum

Rann­sóknin var mögu­leg eftir að rann­sak­endur fengu blóð­sýni úr Hitler úr efn­is­bút sem tek­inn var úr sóf­anum sem hann skaut sig í.

Kallmann-heil­kenni leiðir oft til „lágs testó­sterón­magns, þess að eistu ganga ekki niður og getur leitt til óeðli­lega lít­ils getn­að­ar­lims“, sagði Blink Films.

Nið­ur­stöður DNA-rann­sókn­ar­innar úti­loka einnig þann mögu­leika að Hitler hafi átt afa af gyð­inga­ættum í gegnum ömmu sína, en sögu­sagnir voru um að hún hefði orðið þunguð af vinnu­veit­anda sínum í húsi þar sem hún vann.

„Greining á DNA-inu hrekur þessa goð­sögn með því að sýna að gögn úr Y-litn­ingnum passa við DNA karl­kyns ætt­ingja Hitlers. Ef hann hefði verið af gyð­inga­ættum (vegna utan­hjú­skap­ar­sam­bands) væri þessi sam­svörun ekki til staðar,“ bætti fram­leiðslu­fyr­ir­tækið við.

Hefði eytt sjálfum sér

Erfða­fræð­ing­ur­inn Turi King, þekkt fyrir að bera kennsl á lík­ams­leifar mið­alda­kon­ungs­ins Ríkharðs III og sem einnig vann að verk­efn­inu, sagði að gen Hitlers settu hann í flokk fólks sem nas­istar sendu oft í gasklef­ana.

„Stefna Hitlers snýst algjör­lega um mann­kyn­bætur,“ sagði sér­fræð­ing­ur­inn í fornu og rétt­ar­erfða­fræði­legu DNA við Bath-háskóla í vest­ur­hluta Englands.

„Ef hann hefði getað skoðað sitt eigið DNA ... hefði hann næstum örugg­lega sent sjálfan sig,“ sagði hún.

Áætlað er að sýn­ingar á heim­ild­ar­mynd­inni í tveimur hlutum hefj­ist á bresku sjón­varps­stöð­inni Channel 4 á laug­ar­dag.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Greg Hill skrifaði
    Svo rökfræðin virðist vera: Að hafa lítið typpi leiðir til slæmra samskipta við konur sem leiðir til þess að karlmaður verður fjöldamorðandi einræðisherra? Ábyrgðarlaust fullyrðing....
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár