„Þegar ég var búinn að vera þarna í viku grét ég mig í svefn“

Ekkert kemst nálægt því að vinna á Michelin-stað, segir Ólíver Goði Dýrfjörð, 28 ára vín­þjónn á Bryggju­hús­inu.

„Þegar ég var búinn að vera þarna í viku grét ég mig í svefn“

Ég ætl­aði að verða bak­ari og fór í MK en fannst það svo leið­in­legt, eða þá öllu heldur vinnu­tím­inn, eins voru launin ekki beint í sam­ræmi við vinnu­fram­lagið svo ég skipti yfir í þjón­inn.

Að námi loknu vann ég sem þjónn á VOX og Hilton Reykja­vík Nordica frá árunum 2016 til 2018, en hætti þar um tíma og fór að vinna á Canopy-hót­el­inu þangað til í Covid. Þá fór ég aftur að vinna á VOX. Á þessum tíma var sá staður með þeim síð­ustu sem lögðu í alvöru þjón­ustu, þar sem borðin eru upp­dúkuð, lögð fram hnífa­pör, vín­par­anir og sér­glös fyrir hvert vín. Þetta er kannski gert í dag en það er orðið miklu sjald­gæfara.

Ég er búinn að sér­mennta mig í víni, lærði í London í skóla sem heitir WSET og er að klára síð­ustu gráðuna þar og verð þá annar Íslend­ing­ur­inn til þess að fá hana.

…
Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hannes Helgi skrifaði
    Líklega mikið vinnuframlag og launin lag
    0
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Vonandi voru það handföngin á veitingastaðnum en ekki handjárnin 🤣
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár