Ísland orðið áfangastaður mansals og skipulögðum glæpahópum fjölgar

Fjöldi skipu­lagðra brota­hópa hefur tvö­fald­ast á síð­asta ára­tug, sam­kvæmt nýrri skýrslu grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra. Lög­reglan segir að Ísland sé í auknum mæli orðið áfanga­staður mansals og að inn­lend fíkni­efna­fram­leiðsla hafi auk­ist.

Ísland orðið áfangastaður mansals og skipulögðum glæpahópum fjölgar
Upp­gangur „Skipu­lögð brota­starf­semi hag­nýtir tækninýj­ungar, fólks­flutn­inga, stríðs­á­tök og öfga­fulla hug­mynda­fræði til að útvíkka starf­semi sína og auka ólög­mætan ávinn­ing,“ segir Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, frá­far­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, í for­mála skýrsl­unnar. Mynd teng­ist frétt ekki beint. Mynd: Golli

Á örfáum árum hefur íslenskt sam­fé­lag færst inn í nýjan veru­leika skipu­lagðrar brota­starf­semi að mati rík­is­lög­reglu­stjóra. Í nýrri skýrslu emb­ætt­is­ins segir að brota­hópar séu orðnir fleiri, ofbeld­is­fyllri og betur tengdir en áður. Í henni segir að fjöldi skipu­lagðra brota­hópa hafi tvö­fald­ast á síð­asta ára­tug.

Lög­reglan segir að hér á landi séu dæmi um að brota­hópar nálgist umsækj­endur um vernd í búsetu­úræðum þeirra á Íslandi. Þekkt sé að brota­hópar nýti sér við­kvæma ein­stak­linga í brota­starf­semi sinni.

„Umsækj­endur um vernd eru í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu gagn­vart hag­nýt­ingu brota­hópa, en rétt­inda­leg staða þeirra er veik á meðan á umsókn­ar­ferl­inu stendur,“ segir í skýrslu lög­regl­unnar.

Þetta eigi sér í lagi við um ung­menni, en um 140 fylgd­ar­laus börn hafa sótt um vernd hér á landi á síð­ustu fimm árum. 

Ísland orðið áfangastaður mansals

Ísland er ekki lengur aðeins skil­greint sem gegn­um­ferðar (e. transit) land fyrir þolendur mansals. Lög­reglan seg­ist sjá í síauknum mæli vís­bend­ingar um að landið sé orðið áfanga­staður fyrir starf­semi brota­hópa í tengslum við man­sal.

Börn eru meðal þeirra sem lög­reglan segir verða sér­stak­lega fyrir ofbeldi í tengslum við man­sal. „Skipu­lagðir brota­hópar bera ábyrgð á meiri­hluta mansals­mála í heim­inum,“ segir í skýrsl­unni.

Rann­sóknir þess­ara mála sé hins vegar oft og tíðum flóknar því brota­hópar noti blekk­ingar sem leiði til þess að þolendur upp­lifi sig ekki alltaf sem fórn­ar­lömb.

Lög­reglan segir að nær allir þolendur mansals á Íslandi séu erlendir rík­is­borg­arar. Í hópi þeirra séu karlar, konur og kynsegin ein­stak­lingar frá löndum bæði innan og utan EES-svæð­is­ins. 

„Á tíma­bil­inu 2019-2024 voru 12 börn, 18 ára og yngri, af fimm mis­mun­andi þjóð­ernum skráð sem mögu­legir þolendur mansals. Í öllum til­vikum voru málin til­kynnt til barna­verndar,“ segir í skýrsl­unni. 

Á síð­asta ári skráði lög­reglan 174 mál sem hugs­an­legt man­sal og fimmtán mál sem man­sal í mála­skrá sinni. Það er veru­leg aukn­ing frá árunum þar á undan.

Innlend fíkniefnaframleiðsla aukist verulega

Lör­greglan segir að inn­lend fíkni­efna­fram­leiðsla hafi auk­ist veru­lega und­an­farin ár. Það séu fyrst og framst kanna­bis­efni, amfetamín og MDMA sem séu fram­leidd. Fram­leiðsla kanna­bis og amfetamíns hafi meira en tvö­fald­ast, sam­kvæmt gögnum lög­reglu, séu tíma­bilin 2020-2024 og 2015-2019 borin saman.

Fram­leiðslan hefði lík­lega orðið tals­vert meiri ef amfetamín­bas­inn sem lög­reglan hald­lagði í salt­dreifara­mál­inu hefði orðið að þeim 117 kílóum af amfetamíni, sem lög­reglan telur að hægt hefði verið að fram­leiða úr honum.

Í skýrsl­unni er líka dregið fram að langstærstur hluti fíkni­efna í heim­inum sé fluttur á milli landa í skipum. Það sé sér­lega erfitt við­fangs á Íslandi þar sem strand­lengjan er fimm þús­und kíló­metra löng með 30 landamæra­höfnum. „Þá eru fjöl­margar víkur og firðir þar sem minni bátar geta siglt að landi án eft­ir­lits,“ segir í skýrsl­unni.

Inn­flutn­ingur hingað til lands sé í lang­flestum til­vikum stöðv­aður á Kefla­vík­ur­flug­velli, en upp undir 95 pró­sent allra far­þega til og frá land­inu koma í gegnum flug­völl­inn. 

Lög­reglan segir að ólíkt því sem ger­ist í öðrum Evr­ópu­ríkjum sé neysla heróíns á Íslandi enn lítil sem engin. „Aftur á móti er mark­aður hér á landi fyrir aðra ópíóíða, eins og hald­lagt magn á oxýkó­don og mor­fíni gefur til kynna,“ segir í skýrsl­unni.

Bendir lög­reglan á að sam­kvæmt gögnum Land­læknis megi rekja um 40 pró­sent óhappa­eitrana á árunum 2019-2023 til ópíóíða ann­arra en heróíns. Mælingar í frá­veitu­vatni sýni hins vegar sam­drátt í neyslu ópíóíða milli áranna 2024 og 2025. 

Smygla fólki til landsins

Lög­reglan seg­ist hafa upp­lýs­ingar sem sýni að brota­hópar sem starfi bæði á Íslandi og erlendis bjóði fólki aðstoð – gegn greiðslu – til að kom­ast til Íslands í gegnum umsókn­ar­ferli um alþjóð­lega vernd. Þessi þjón­usta við smygl á fólki getur falið í sér aðstoð við að útvega fölsuð skil­ríki, afla far­miða og jafn­vel fylgd­ar­manna og leið­beina um sam­skipti við lög­reglu og yfir­völd, sam­kvæmt skýrsl­unni. 

„Fyrir brota­hópa getur verið sér­lega arð­bært að afla dval­ar­leyfa sem fela í sér frek­ari rétt til fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, fyrir maka, börn og jafn­vel for­eldra dval­ar­leyf­is­hafans, og eru dæmi um það hér á landi að smygl­arar rukki háar fjár­hæðir fyrir slík „pakka­til­boð“. Þá er sá mögu­leiki fyrir hendi að fólki sé smyglað inn á slíkum aðstand­and­a­leyfum óháð því hvort um raun­veru­leg fjöl­skyldu­tengsl sé að ræða,“ segir í skýrsl­unni.

Lög­reglan seg­ist hafa upp­lýs­ingar um að gjald fyrir smygl á fólki til Íslands sé að jafn­aði hærra en gengur og ger­ist ann­ars staðar í Evrópu. Það geti bent til þess að eft­ir­spurnin sé mikil. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár