Milljarðasamningur ekki borinn undir Bæjarráð Hafnarfjarðar

Milljarða­samningur vegna skóla­matar í Hafnar­firði við lítið og óreynt fyrirtæki var ekki lagður fyrir bæjarráð. Ekkert fyrirtæki bauð í verkið.

Hafnarfjörður á stilltum degi.
Hafn­ar­fjörður á stilltum degi. Mynd: Golli

Útboð á skóla­máltíðum í Hafnar­firði var ekki borið undir bæjarráð né sérstak­lega undir bæjar­stjórn. Fræðsluráð Hafnar­fjarðar skuldbatt bæinn til þriggja ára í viðskipti við fyrir­tækið Í-Mat ehf., sem hefur takmarkaða reynslu af matar­þjónustu við grunn- og leikskóla. Engin tilboð bárust utan þetta eina fyrirtæki þrátt fyrir að virði samningsins, með umsaminni fram­lengingu, hlaupi á sjöunda milljarð króna. Bæjar­fulltrúi Viðreisnar setur spurningar­merki við framkvæmd útboðsins á meðan bæjar­stjóri Hafnar­fjarðar segir markmiðið að fara betur með almannafé og minnka matarsóun eftir að skóla­máltíðir voru gerðar gjald­frjálsar. 

Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í Hafnar­firði, lét bóka sérstak­lega spurningar í tengslum við útboðið á fundi bæjar­stjórnar í september. Meðal annars var spurt, hvers vegna bauð enginn í verkið? Skóla­matur hefur sinnt verk­efninu síðan árið 2017 en ákvað að sitja hjá í þessu útboði, var því ákveðið að semja beint við Í-mat ehf.

Jón Ingi Hákon­ar­sonBæj­ar­full­trúi Við­reisnar í Hafn­ar­firði …
Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár