Guðni kallar eftir miklum breytingum á stjórnarskránni

Guðni Th. Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, kallar eftir breyt­ingum á stjórn­ar­skrá sem snúa að emb­ætti for­set­ans og stöðu íslenskrar tungu, auk þess sem hann vill færa mann­rétt­inda­kafl­ann fremst. Hann vill ekki setja auð­linda­á­kvæði með þeirri vinnu vegna póli­tískra deilna um það.

Guðni kallar eftir miklum breytingum á stjórnarskránni
Guðni Th. Jóhann­es­son með öðrum for­setum Fyrr­ver­andi for­seti, sem lét af emb­ætti þegar Halla Tóm­as­dóttir tók við í fyrra, kallar eftir miklum breyt­ingum á stjórn­ar­skránni. Mynd: Valgarður Gíslason

uðni Th. Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, kallar eftir því að end­ur­skoðuð stjórn­ar­skrá verði til­búin árið 2030 í til­efni af því að ell­efu aldir verði liðnar frá stofnun Alþingis.

Kallar hann eftir því að hlut­verk for­seta verði skýrt, mann­rétt­inda­kafl­inn færður fremst og að íslensk tunga verði vernduð í stjórn­ar­skránni.

Guðni hélt erindi í Háskól­anum á Akureyri 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn með yfir­skrift­ina: „Af hverju er ekki lengur hægt að breyta stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins?“ Hann nefndi að erindið væri flutt með öðrum anda en hann hefði gert þegar hann enn var í emb­ætti og sagði yfir­skrift­ina kannski frekar eiga að vera hvers vegna svo erfitt sé orðið að breyta stjórn­ar­skránni.

Í erind­inu rifj­aði Guðni það upp hvernig stjórn­ar­skráin var stað­fest við stofnun Alþingis á Þing­völlum árið 1944. Á þeim tíma hafi öllum stjórn­mála­mönnum verið ljóst að hana hafi ein­ungis átt að nýta til bráða­birgða, þar á meðal Sveini Björns­syni, sjálfum for­seta Íslands. Guðni sagði stjórn­ar­skrána skrif­aða með kon­ungs­ríki í huga enda byggða á þeirri dönsku.

„Þetta gekk alveg og þetta gengur alveg,“ sagði Guðni. „En eigum við að hafa stjórn­ar­skrá þar sem við segjum við sjálf okkur og aðra: „Þetta gengur alveg, auð­vitað er þetta ekki alveg gott svona, en þetta er allt í lagi?“ Stjórn­ar­skrá! Stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins! Ég er ekki viss um að það sé metn­aður okkar.“

Sagði hann það ekki satt að stjórn­ar­skránni hefði alltaf verið breytt í mik­illi sátt og nefndi sögu­leg dæmi því til stuðn­ings. „Við getum ekki leyft það að hver og einn sem er á móti - finnst þetta ekki nóg eða of mikið, er ekki sáttur - þá ger­ist ekki neitt. Það þarf að stíga yfir þann þrösk­uld og þá mun eitt­hvað ger­ast.“

Óskýr kafli um forsetann

Guðni ræddi þjóð­höfð­ingjakafla stjórn­ar­skrár­innar og mál­skots­rétt­inn. Sagði hann sam­band emb­ætt­is­ins við þjóð­ina vera öðru­vísi - hvorki verra né betra - en þegar lýð­veldið var stofnað. „Að vera for­seti 2024 er allt annað en að vera for­seti 1944 ef litið er til sam­bands þjóðar við for­seta.“

Vísaði hann til þess þegar rík­is­stjórn Davíðs Odds­sonar dró til baka fjöl­miðla­lögin svoköll­uðu í stað þess að vísa þeim til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2004 eftir að Ólafur Ragnar Grímsson for­seti hafði beitt mál­skots­rétt­inum í fyrsta sinn í Íslands­sög­unni.

Kjósa
51
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Allt sæmilegt fólk og óspillt, kallar eftir því sama. Stjórnmálamenn upplysa gerræðisstjórnun sína, með því að þegja þunnu hljóði um nýju stjórnarskrána.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að viðkvæmum málum“
FréttirStjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að við­kvæmum málum“

Þor­steinn Pálm­ars­son, eig­andi Allt-af ehf, fyr­ir­tæk­is­ins sem fjar­lægði vegg­lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ seg­ist oft upp­lifa sig á milli steins og sleggju í deilu­málum milli þeirra sem mála á veggi og þeirra sem biðja um að verkin verði fjar­lægð. Hann vann við að hreinsa til eftir mót­mæli í Bús­á­halda­bylt­ing­unni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár