Nýja stjórnarskráin fordæmi um hvernig hunsa megi þjóðaratkvæðagreiðslu

Sigríður Andersen, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins, segir Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra hafa hunsað nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um nýju stjórn­ar­skrána. Með sama hætti megi þing­menn hunsa nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ESB-við­ræður.

Nýja stjórnarskráin fordæmi um hvernig hunsa megi þjóðaratkvæðagreiðslu
Deilt um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur Sigríður Andersen seg­ist ekki bundin af nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður við ESB, ekki frekar en að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir hafi verið bundin af þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Nýja stjórn­ar­skrá.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra var and­víg því að inn­leiða nýju stjórn­ar­skrána eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hana árið 2012. Með sama hætti geta þing­menn hunsað nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið (ESB) sem haldin verður í ágúst.

Þetta er mat Sigríðar Andersen, þing­flokks­for­manns Mið­flokks­ins, sem fram kom í hlað­varpi Mið­flokk­ins, sem ber tit­il­inn „Baráttan um Ísland“. Í þætt­inum ræddi hún mögu­lega ESB-aðild­ar­um­sókn við for­mann flokks­ins, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son.

Vísaði hún í lög um fram­kvæmd þjóð­ar­at­kvæða­greiðslna sem tóku gildi árið 2010. „Það er ekk­ert ákvæði um hversu bind­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla er, hversu hátt hlut­fall af fólki þurfi að taka þátt og svona,“ sagði Sigríður. „Við höfum eitt dæmi um svona þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2012 um hina svoköll­uðu nýju stjórn­ar­skrá. Þá fór fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla. Og ég man ekki betur en að sá utan­rík­is­ráð­herra sem nú er, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, hún hafi nú bara gefið mjög lítið fyrir nið­ur­stöð­una sem kom út úr þeirri …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hún Sigga staða önd
    er stöðugt upp á rönd
    með Sigmundi í fokki
    í hans miðalda-flokki
    þau leiðast hönd í hönd
    0
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    „Nei, ég mun áfram berjast gegn aðild,“ bætti hún við. „Ég mun áfram berjast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu.“
    Þá skal hún halda kjafti á meðan þessi þóðaratkvæðagriðsla fer fram, síðan getur hún byrjað að gjamma eins og hana langar til eftir að við erum búin að sjá samninginn sem verður til eftir samningaviðræðurnar við EB, það sem við erum að greiða atkvæð um að fara í samningar viðræður og ekkert annað, ekki láta tómutunnunar rugla ykkur, við erum ekki að greiða atkvæði um aðild núna!
    Við tökumst á þegar samningurinn er kominn og við rætt um kosti og galla!
    2
  • Garðar Garðarsson skrifaði
    Alveg stórfurðulegt þegar kjörnir fulltrúar til Alþingis geta ekki virt þjóðaratkvæðagreiðslur hvort sem um er að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá eða ESB aðildarviðræður.
    6
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Það hlægjir mig að stjórnarskrármálið skuli núna koma í bakið á Þorgerði Katrínu
    4
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Er þá svo að skilja að þjóðin eigi ekki aðkomu að ESB-málinu, að mari Miðflokksins.?
    Vill einhver upplýsa mig og aðra?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðild Íslands að ESB

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár