„Ósönn frétt“ á forsíðu Morgunblaðsins, segja prófessorar sem vitnað var til

Laga­pró­fess­orar sem Morg­un­blaðið vitnar í um Evr­ópu­sam­bandið senda frá sér yfir­lýs­ingu eftir að blaðið birti ósanna stað­hæf­ingu um álits­gerð þeirra varð­andi ESB.

„Ósönn frétt“ á forsíðu Morgunblaðsins, segja prófessorar sem vitnað var til
Stefán Einar Stef­áns­son Blaða­maður Morg­un­blaðs­ins og þátt­ar­stjórn­andi Spurs­mála skrif­aði for­síðu­frétt Morg­un­blaðs­ins, sem pró­fess­orar bera til baka. Mynd: Árvakur

„Þessi frétt er ósönn,“ segja þrír laga­pró­fess­orar í yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla um for­síðu­frétt Morg­un­blaðs­ins í dag.

Þar vitna blaða­menn­irnir Stefán Einar Stef­áns­son og Andrea Sig­urð­ar­dóttir í álits­gerð pró­fess­or­anna þriggja með und­ir­fyr­ir­sögn­inni: „Þrír laga­pró­fess­orar telja engar und­an­þágur í boði við aðild.“

Þvert á efni frétt­ar­innar er fjallað sér­stak­lega um und­an­þágur við ESB-aðild í álits­gerð laga­pró­fess­or­anna.

Óska eftir vandaðri umfjöllun

Meg­in­efni frétt­ar­innar er við­tal sem Stefán Einar Stef­áns­son tók í þætti blaðs­ins Spurs­málum við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seta og einn stofn­anda sam­tak­anna Áfram Ísland, sem berj­ast gegn aðild­ar­við­ræðum Íslands við Evr­ópu­sam­bandið sem spurt verður um í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu næsta laug­ar­dag. Í aðal­fyr­ir­sögn er vitnað í Ólaf Ragnar um að utan­rík­is­ráðu­neytið sé „orðið áróð­urs­deild“ í ESB-umræð­unni.

Í frétt­inni, upp úr efni þátt­ar­ins, var vitnað í Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), um að „ný lög­fræði­leg álits­gerð þriggja laga­pró­fess­ora sýni að ekki sé raun­hæft að gera ráð fyrir var­an­legum und­an­þágum frá sam­eig­in­legri sjáv­ar­út­vegs­stefnu ESB.“

Yfir­lýs­ing­una und­ir­rita þau þrjú, Dr. Gunnar Þór Pét­urs­son, pró­fessor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, Dr. Haf­steinn Dan Krist­jáns­son, pró­fessor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, og Dr. Margrét Ein­ars­dóttir, pró­fessor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík. Þá óska þau eftir „mál­efna­legri og vand­aðri fjöl­miðlaum­fjöllun um álits­gerð­ina.“

Forseti Laga­deildar Háskól­ans í Reykja­vík, Gunnar Þór Pét­urs­son, segir í sam­tali við Rík­is­út­varpið í dag að þarna sé um að ræða „óvand­aða og ósanna fram­setn­ingu“ og hún sé „til þess fallin að afvega­leiða umræð­una.“

Niðurstöður álitsgerðarinnar

Öfugt við það sem segir í frétt Morg­un­blaðs­ins, að pró­fess­or­arnir „telji engar und­an­þágur í boði við aðild“, og virð­ist byggð á stað­hæf­ingu hags­muna­varðar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í við­tali við Stefán Einar Stef­áns­son, er eitt meg­in­efni álits­gerð­ar­innar að fjalla um und­an­þágur, eins og segir í kynn­ingu á henni á vef Stjórn­ar­ráðs­ins 19. ágúst.

„Flestar und­an­þágur sem ræddar eru, eru ótíma­bundnar, svo sem eins og tak­mark­anir við fjár­fest­ingum í sum­ar­húsum, í til­viki Möltu og Dan­merkur, en þar fyrir utan eru í aðild­ar­samn­ingum ótal dæmi um tíma­bundnar und­an­þágur, sem geta að sjálf­sögðu líka verið mik­il­vægar.“

Í útlistun álits­gerð­ar­innar á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir berum orðum: „Ekkert í ákvæð­inu sjálfu úti­lokar und­an­þágur, þar með talið frá stofnsátt­mál­unum, í aðild­ar­samn­ingum, hvorki tíma­bundnar né ótíma­bundnar.“

Álits­gerðin sjálf segir að „þó að meg­in­reglan sé að stofnsátt­málar ESB og önnur afleidd ESB-lög­gjöf gildi jafnt og fyrir öll ríkin eru fjölda­mörg dæmi um und­an­þágur frá þeirri reglu, víðs vegar í ESB-rétt­inum.“

Í álits­gerð­inni er vitnað beint til ákvæða um Sátt­mál­ann um Evr­ópu­sam­bandið, þar sem kemur fram að „skil­málar aðildar og sú aðlögun á sátt­mál­unum, sem Sam­bandið byggir á, sem slík aðild felur í sér, skulu byggj­ast á samn­ingi milli aðild­ar­ríkj­anna og umsókn­ar­rík­is­ins.“

Sá samn­ingur skuli síðan lagður fyrir öll samn­ings­ríki til full­gild­ingar í sam­ræmi við stjórn­skip­un­ar­reglur sínar. 

Frétt Morg­un­blaðs­ins„Þrír laga­pró­fess­orar telja engar und­an­þágur í boði við aðild,“ segir á for­síðu Morg­un­blaðs­ins í dag, en þeir hafna því alfarið og álits­gerð þeirra sýnir að stað­hæf­ingin er röng.

Tekið sé tillit til þjóðarhagsmuna og sérkenna

Álits­gerðin var unnin að beiðni rík­is­stjórn­ar­innar, sem ákvað að bera undir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hvort taka ætti upp að nýju aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið, eftir að þær runnu út í sand­inn og voru aft­ur­kall­aðar árin 2012 til 2013.

Meg­in­um­fjöll­un­ar­efnið er „það svig­rúm sem er fyrir hendi sam­kvæmt gild­andi ESB-rétti til að taka til­lit til mik­il­vægra þjóð­ar­hags­muna, sér­kenna og sér­stöðu aðild­ar­ríkja.“

Rakið er að sam­kvæmt stofnsátt­mála beri ESB „að virða þjóð­ar­auð­kenni, sem fel­ast í stjórn­skipu­legu og stjórn­mála­legu grunn­skipu­lagi ríkj­anna.“

Nið­ur­stöður álits­gerð­ar­innar eru í sam­ræmi við orð stækk­un­ar­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins, Mörtu Kos, sem sagði í sam­tali við frétta­stofu Sýnar í gær að mögu­leiki væri á og óvissa um hvort Íslend­ingar gætu fengið und­an­þágur varð­andi sjáv­ar­út­vegs­mál ef til aðildar að sam­band­inu kæmi.

„Ekkert annað ríki er í sam­bæri­legri stöðu og Ísland og það eru engin for­dæmi sem hægt er að miða við í þessu. Þannig að eng­inn getur sagt í dag hvernig end­an­leg nið­ur­staða yrði. Það er einmitt það sem samn­inga­við­ræð­urnar munu leiða í ljós,“ sagði hún.

Í álits­gerð­inni kemur fram að ekki hafi reynt á und­an­þágur vegna sjáv­ar­út­vegs­stefn­unnar í heild sinni, þar sem ekk­ert ríki hefði farið fram á þær.

Um sjáv­ar­út­veg í álits­gerð­inni segir að „hlut­falls­leg úthlutun veiði­heim­ilda er byggð á veiði­reynslu.“ Í því sam­hengi hafi erlendir aðilar ekki veiði­reynslu í stað­bundnum stofnum og ætla megi að „ekk­ert aðild­ar­ríki ESB fengi úthlutað veiði­heim­ildum í þeim á grund­velli núver­andi afleiddrar lög­gjafar.“

ESB hafi ekki forræði yfir auðlindum

Í umfjöllun Stjórn­ar­ráðs­ins um efni álits­gerð­ar­innar segir að „ESB hefur ekki almenna vald­heim­ild til að mæla fyrir um eign­ar­hald, notkun eða for­ræði yfir nátt­úru­auð­lindum aðild­ar­ríkja.“

Hins vegar megi „ráð­staf­anir ríkja varð­andi nátt­úru­auð­lindir samt ekki brjóta í bága við grunn­reglur ESB“ og er þar vísað til „banns við mis­munun á grund­velli rík­is­fangs, fjór­frelsis- og sam­keppn­is­reglur, þar á meðal um rík­is­að­stoð.“

Þó séu „sam­bæri­legar kröfur nú þegar gerðar sam­kvæmt EES-samn­ingnum“, sem Ísland er þegar aðili að, „en gild­is­svið hans er afmark­aðra en sátt­mála ESB.“

Álits­gerðin fjallar um önnur álita­mál ESB-aðildar Íslands. Þannig sé „þjóðar­ör­yggi ein­vörð­ungu á ábyrgð aðild­ar­ríkis“. ESB fari til að mynda ekki með heim­ild til að leggja sæstrengi til landa gegn vilja ríkj­anna. 

Álits­gerð­ina sjálfa, sem telur 126 síður, má lesa hér.

Morg­un­blaðið birti í kvöld frétt á mbl.is undir fyr­ir­sögn­inni „Und­ir­fyrir­ögn rengd“, þar sem fjallað var um yfir­lýs­ingu pró­fess­or­anna. „Vel er þekkt að fyr­ir­sagnir og und­ir­fyr­ir­sagnir lúta eigin lög­málum, þeim er ætla að vekja athygli en geta ekki sagt alla sögu. Það er gert í frétt­inni, þar sem greint er frá þeim skiln­ingi og skoðun að álits­gerðin segi engar „var­an­legar und­an­þágur“ í boði,“ segir þar.

Þá er vitnað til skýrslu Hag­fræði­stofn­unar frá 2014, þar sem kom fram að „erfitt hefði reynst að fá var­an­legar und­an­þágur frá sam­eig­in­legri stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins. „Að því virtu er umrædd ályktun fram­kvæmda­stjóra SFS, sem til var vísað í und­ir­fyr­ir­sögn, a.m.k. ekki úr lausu lofti gripin,“ segir í nýrri frétt Morg­un­blaðs­ins.

Í fyrri frétt blaðs­ins var afstaðan hins vegar eignuð álits­gerð laga­pró­fess­ora, sem hafna því ein­dregið að túlkun blaðs­ins sé rétt.

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS, hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar.

Útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins er í eigu hags­muna­að­ila í sjáv­ar­út­vegi, sem lögðu því til 600 millj­ónir króna í hlutafé í vor eftir við­var­andi tap­rekstur. Útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, Árvakur, tap­aði 461 milljón króna í fyrra, eða 1.260.000 krónum á degi hverjum, en móð­ur­fé­lagið rekur einu dag­blaða­prent­vél lands­ins og á meiri­hluta í dreif­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Póst­dreif­ingu.

Prentút­gáfa Morg­un­blaðs­ins er að með­al­tali lesin af 49 þús­und manns, eða 20,5% þjóð­ar­innar, sam­kvæmt mæl­ingum Gallups.

Kjósa
56
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    I thought politics as well as media follow a strict ethical code!?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár