Morgunblaðið fær 600 nýjar milljónir

Langvar­andi tap­rekstur Morg­un­blaðs­ins hefur verið bættur upp af eig­endum.

Morgunblaðið fær 600 nýjar milljónir
Morg­un­blaðið Hefur skilað tapi á hverju ári frá efna­hags­hruni, fyrir utan 2013. Mynd: Bára Huld Beck

Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins og mbl.is, hefur fengið 600 millj­ónir króna í aukið hlutafé. 

Fjöl­mið­il­inn hefur verið í rekstr­ar­vanda og skilað tapi í áraraðir, en fengið jafn­óðum nýtt hlutafé frá eig­endum til að vega upp tapið.

Hluta­fjár­aukn­ingin hefur verið til­kynnt til fyr­ir­tækja­skrár Skatts­ins. Eigendur sam­þykktu heim­ild til hluta­fjár­aukn­ingar í móð­ur­fé­lag­inu Þórsmörk ehf. á aðal­fundi 29. maí síð­ast­lið­inn. Síðast fékk félagið 267 millj­ónir króna í inn­borgað hlutafé 2024.

Hlutaféð nú nýt­ist ekki allt til fram­tíð­ar­rekstrar, þar sem Árvakur skuld­aði eig­anda sínum 384 millj­ónir króna undir lok árs 2024. Ekki hefur verið gefið út hver afkoman var á síð­asta ári. Tap móð­ur­fé­lags Árvakurs, Þórs­merkur ehf, var 348 millj­ónir króna árið 2024. Á því ári skuld­aði félagið lána­stofn­unum 2,1 millj­arð króna en nýjar lang­tíma­skuldir voru umfram afborg­anir þeirra. Eignir voru þó metnar meiri, þar af 2,5 millj­arðar króna í var­an­lega rekstr­ar­fjár­muni og tæp­lega 400 millj­ónir króna í við­skipta­vild og aðrar óefn­is­legar …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjölmiðlar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár