Útgefandi Viðskiptablaðsins hagnaðist í fyrra

Eftir að hafa tapað 55 millj­ónum króna á árinu 2020 hagn­að­ist Myllu­setur, sem gefur meðal ann­ars út Við­skipta­blaðið, um sam­tals þrettán millj­ónir króna á árunum 2021 og 2022.

Útgefandi Viðskiptablaðsins hagnaðist í fyrra
Rit­stjóri Trausti Haf­liða­son hefur stýrt Við­skipta­blað­inu í rúm­lega sex ár. Mynd: RÚV

Myllu­setur, útgáfu­fé­lag Við­skipta­blaðs­ins, hagn­að­ist um 5,5 millj­ónir króna á árinu 2022. Það er annað árið í röð sem útgáfan skilar hagn­aði, en hann nam 7,5 millj­ónum króna á árinu 2021. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi. 

Árið á undan því tap­aði Myllu­setur hins vegar 55,2 millj­ónum króna og setti 15 af 18 starfs­mönnum sínum á hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu, þar sem ríkið greiddi stóran hluta af launum þeirra um skeið.

Rekstr­ar­tekjur Myllu­set­urs, sem heldur einnig úti Fiski­fréttum og Frjálsri verslun, juk­ust um 15 pró­sent milli ára og voru 349 millj­ónir króna í fyrra. Inni í þeim tekjum er styrkur sem útgáfu­fé­lagið fékk úr rík­is­sjóði vegna end­ur­greiðslu á rit­stjórn­ar­kostn­aði en hann nam um 25 millj­ónum króna á árinu 2022. Skuldir Myllu­set­urs juk­ust um tæp­lega níu pró­sent milli ára og stóðu í 148 millj­ónum króna. Með­al­fjöldi starfs­manna var sá sami og árið áður, eða 16, en heild­ar­kostn­aður vegna launa og launa­tengdra gjalda …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjölmiðlar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár