Verslunareigendur af erlendum uppruna í borginni Halle í austurhluta Þýskalands lögðu niður störf í einn dag á fimmtudag til að mótmæla uppgangi öfgahægri. Þeir óttast um framtíð sína eftir stórsigur AfD, sem berst harkalega gegn innflytjendum, í nýafstöðnum fylkisþingkosningum.
„Vegna AfD og kynþáttafordómanna get ég einfaldlega ekki verið áfram hér í Halle,“ sagði Mohamad-Samer, starfsmaður skyndibitastaðar, sem lokaði vegna mótmælanna, í samtali við AFP. Hann vildi ekki gefa upp eftirnafn sitt.
„Og það sama á við um alla hina, alla Sýrlendingana og alla útlendingana. Þeir geta heldur ekki verið hér áfram,“ sagði Mohamad-Samer, sem er 29 ára og hefur búið í borginni í þrjú ár.
Rakarastofur, veitingastaðir og litlar verslanir, alls um 30 fyrirtæki, tóku þátt í mótmælunum. Eigendurnir lokuðu fyrirtækjum sínum og girtu af innganga með rauðhvítum borðum.
Aðgerðirnar fóru fram undir yfirskriftinni „Halle án okkar?“ og var ætlað að sýna hversu mikilvægu hlutverki …





















































Athugasemdir