Svona bendlaði Stefán Einar mann við hryðjuverk

Stefán Einar Stef­áns­son, þátt­ar­stjórn­andi á mbl.is, birti myndir af palest­ínskum háskóla­kenn­ara og bendl­aði hann við hryðju­verk eftir að hann var við­staddur mót­mæli á Gaza gegn hung­ursneyð barna. Álykt­anir Stefáns Einars um mann­inn og ásak­anir sem hann kynnti þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra í þætti sínum virð­ast ganga illa upp.

Svona bendlaði Stefán Einar mann við hryðjuverk
Stefán Einar Stef­áns­son Hefur ítrekað fært fram ásak­anir á hendur útlend­ingum. Mynd: Spursmál / mbl.is

„Þessi maður er hér í okkar boði,“ sagði Stefán Einar Stef­áns­son, þátt­ar­stjórn­andi á mbl.is, og sýndi þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra mynd af Fouad al-Nawajha, flótta­manni frá Palest­ínu.

Stefán Einar þrýsti fast á Bjarna Bene­dikts­son í við­tali um kosn­inga­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins að útskýra hvernig hann myndi stöðva slíka menn. 

„Ertu í rónni með að fólk með þessi tengsl stiki hér göt­urnar mitt á meðal barn­anna okkar?“ spurði hann í því sam­hengi að Bjarni væri for­maður Þjóðar­ör­ygg­is­ráðs Íslands.

Sjálfur segir mað­ur­inn nú í sam­tali við Heim­ild­ina að ásk­an­irnar hafi „truflað líf hans mikið“.

Vísar á ásakanirnar sem staðfestingu fagmennsku

Í við­tali við Bylgjuna í gær end­ur­tók Stefán Einar ásak­an­irnar gegn mann­inum, til að renna stoðum undir fag­leg vinnu­brögð Morg­un­blaðs­ins og tengsl palest­ínskra flótta­manna á Íslandi við hryðju­verka­sam­tök. Þar svar­aði Stefán Einar fyrir for­síðu­upp­slátt Morg­un­blaðs­ins í gær­morgun undir titl­inum „Hamas-liðar á Höfða­torgi“, sem lög­reglan bar til baka í yfir­lýs­ingu í gær. Hann sagð­ist ekki „þekkja smá­at­riði“ máls­ins, ekki hafa komið að því „per­sónu­lega“ en full­yrti að Morg­un­blaðið hefði rétt fyrir sér, en lög­reglan rangt, um hryðju­verka­tengsl manna sem hand­teknir voru í upp­gjöri í und­ir­heim­inum í bíla­kjall­ara Höfða­torgs í síð­ustu viku.

„Vegna umfjöll­unar Morg­un­blaðs­ins og mbl.is um rann­sókn Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á alvar­legri lík­ams­árás í Túna­hverfi í Reykja­vík í síð­ustu viku vill emb­ættið taka sér­stak­lega fram að á þessu stigi bendir ekk­ert til þess að þeir sem hafa verið hand­teknir í mál­inu hafi tengsl við Hamas-sam­tökin,“ sagði í yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær. „Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóða­lög­regl­unnar yfir grun­aða hryðju­verka­menn.“

Fréttin var mest lesin á mbl.is og hefur ekki verið breytt eftir yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar. Í morgun birti Morg­un­blaðið fram­halds­frétt þar sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins brást við henni og stað­hæft er að ónafn­greindir lög­reglu­menn séu heim­ild­ar­menn.

Í fyrri umfjöllun Morg­un­blaðs­ins um hryðju­verka­tengsl seg­ist Stefán Einar hafa notað njósn­a­búnað, áður en hann birti nafn og mynd af manni sem leit­aði hælis á Íslandi. Þar virð­ist Stefán Einar hafa dregið álykt­anir á hæpnum for­sendum áður en hann ásak­aði mann­inn opin­ber­lega og þrýsti á æðstu stjórn­völd að beita sér gegn honum og öðrum í hans stöðu.

Notaði „njósnabúnað“

Stefán Einar lýsti því í við­tali við Bylgjuna í gær að hann hefði átt við­töl við Bjarna Bene­dikts­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Svandísi Svav­ars­dóttur, þáver­andi for­mann Vinstri grænna, í þing­kosn­ing­unum 2024, í þætti sínum Spurs­máli, þar sem hann birti myndir. „Við birtum upp­lýs­ingar úr mynd­grein­ing­ar­bún­aði, njósn­a­bún­aði, sem not­aður er erlendis til þess að fylgj­ast með víga­mönnum af þessu tagi. Þar var búið að keyra í gegn ljós­myndir af mönnum, meðal ann­ars frá Palest­ínu, sem höfðu komið fram í við­tali í Heim­ild­inni. Þessi bún­aður stað­festi með óyggj­andi hætti tengsl þess­ara manna við hryðju­verka­sam­tök á borð við Islamic Jihad.“

Hann sagði stjórn­mála­menn­irnir hefðu „varið sig fim­lega“ og að Bjarni Bene­dikts­son hafi full­yrt að lög­reglan hefði „mun meiri vit­neskju um þessi mál heldur en við teldum“.

Stefán Einar segir að grein­ing­ar­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra hafi haft sam­band við hann klukku­stund síðar og „óskaði eftir að ég myndi afhenda þeim þessi gögn vegna þess að þeir voru alger­lega í myrkr­inu um þessa menn“.

Af mbl.isStefán Einar Stef­áns­son birti frétt á mbl.is með fyr­ir­sögn­inni „Hótaði hryðju­verki og flutti til Íslands“, byggt á þeirri ályktun hans að mót­mæla­borð­inn væri hótun á vegum Hamas um kom­andi hryðju­verk. Maðurinn sem Stefán segir hóta hryðju­verki gerði það með því að standa fjórði frá vinstri á bak­við menn­ina sem halda á borð­anum. Á mynd­inni sést í and­lit Yassers Arafats, sem leiddi hreyf­ingu sem var í and­stöðu við Hamas.

„Þannig að stað­reyndin er sú að Morg­un­blaðið hefur nú, eins og áður, flutt fréttir af mönnum sem hafa tengsl við hryðju­verka­sam­tök,“ sagði Stefán Einar á Bylgj­unni í gær.

Andlitsrakti mann í viðtali við Heimildina

Annar þess­ara manna, sem Stefán Einar mynd­birti og ásak­aði, var háskóla­kenn­ari í bók­haldi og fjár­málum áður en hann flutti til Íslands. Stefán hafði séð mann­inn í við­tali við Heim­ild­ina í víð­tækri umfjöllun um fólkið sem flúði Gaza. Maðurinn, Fouad al-Nawajha, sagði draum sinn að fá fjöl­skyldu sína til sín, en hún var og er stödd í Egypta­landi þar sem ekki hafði feng­ist fjöl­skyldu­sam­ein­ing. Stefán Einar not­aði ljós­mynd­ina í við­tal­inu í Heim­ild­inni til að rekja Fouad með and­lits­grein­ing­ar­tækni. 

Nið­ur­stöð­urnar af rann­sókn sinni kynnti Stefán Einar í fyrr­greindu við­tali við Bjarna Bene­dikts­son. Þar varp­aði hann upp mynd af mót­mælum í Khan Yunis 14. júní 2022. „Þarna sést í mann sem heitir Fouad al-Nawajha … Hann er staddur hér á Íslandi og búinn að vera í rúmt ár.“ 

Ástæðan fyrir því að Stefán Einar áskaði hann um tengsl við hryðju­verka­sam­tök var að hann fann mynd af honum þar sem hann var staddur á mót­mælum á bak­við hóp sem hélt á stórum mót­mæla­borða. Á borð­anum sagði: „Við stöndum ekki kyrr yfir svelti og skorti barn­anna okkar … Spreng­ingin er yfir­vof­andi“.

Þátt­ar­stjórn­and­inn birti hins vegar ekki fleiri myndir af sömu mót­mælum, sem Heim­ildin hefur fundið. Þær sýna að Fouad er staddur á mót­mælum við hús­næði Palest­ínu­flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar sem statt er eldra fólk, hreyfi­haml­aðir, konur og börn. Tilefni mót­mæl­anna er að skera átti niður aðstoð til flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna á Gazasvæðinu.

Stefán Einar full­yrti að bein tengsl væru á milli mót­mæla­borð­ans, sem Fouad stóð nálægt, og hryðju­verka­árása 16 mán­uðum síðar. „Og við vitum í dag hver vís­unin þar var. Það var í voða­verkin og fjöldamorðin 7. októ­ber 2023,“ sagði hann við Bjarna Bene­dikts­son og gekk á eftir svörum frá Bjarna um hvað hann ætl­aði að gera í mál­inu.

Mótmælin í Khan Yunis 14. júní 2022Eins og sést á mynd­unum halda mót­mæl­end­urnir á spjöldum merktum Frels­is­hreyf­ingu Palest­ínu (PLO) og for­set­anum Mahmoud Abbas, sem teng­ist ekki Hamas-sam­tök­unum. Þar eru skila­boð á arab­ísku sem þýdd eru á mis­tæka ensku. Á næstneðstu mynd­inni sést Fouad al-Nawajha standa næst­lengst til hægri á bak­við menn­ina sem halda á borð­anum, en á öðrum myndum af sama stað virð­ist hann hafa fært sig annað.

Röng ályktun um Hamas-tengsl

Með ein­földum hætti má greina strax að mót­mælin sem Fouad var við­staddur, ásamt hópi fólks, voru ekki á vegum Hamas-sam­tak­anna. Á borð­anum sem Stefán Einar byggir hryðju­verka­á­sak­anir sínar á sést and­lit Yassers Arafats, fyrr­ver­andi leið­toga Palest­ínu­manna, sem var leið­togi Fatah-hreyf­ing­ar­innar og Frels­is­sam­taka Palest­ínu (PLO), en starf­aði ekki innan Hamas. Fatah-hreyf­ingin er póli­tískur and­stæð­ingur Hamas. 

Auk þess er mynd af Mahmoud Abbas, for­seta Palest­ínu, á borð­anum, sem sést þó ekki í þætti Stefáns. Abbas hefur verið harður gagn­rýn­andi Hamas-sam­tak­anna og aðferða þeirra. Arafat hlaut frið­ar­verð­laun Nóbels 1994 fyrir aðkomu sína að frið­ar­samn­ingum við Ísrael.

Þetta gengur beint gegn ályktun og full­yrð­ingu Stefáns Einars um að mót­mæla­borð­inn sýni fram á tengsl nær­staddra við Hamas-sam­tökin eða hryðju­verka­árás þeirra 16 mán­uðum síðar, sem þekkt er að var leyni­lega skipu­lögð af Hamas.

Þá sést á myndum af mót­mæl­unum að skila­boð á mót­mæla­spjöldum eru klaufa­lega orðuð, en þó er ljóst að á minnsta kosti tveimur þeirra er varað við að ill með­ferð á flótta­fólki geti leitt til þess að reiði blossi upp. Á einu spjaldi sem ung stúlka heldur á segir að sökn­uður flótta­manna eftir heima­landi sínu sé eld­ur­inn sem „lætur eld­fjöll krauma“.

Margir hafa varað við afleið­ingum þess að rífa fólk upp með rótum, enda geti hern­að­ar­á­tök ýft upp and­stöðu meðal mann­fjöld­ans, líkt og gerð­ist í Írak, Sýrlandi, Palest­ínu og víðar.

Í kringum mót­mælin 14. júní í Khan Yunis voru umræður um nákvæm­lega þetta. Daginn eftir sagði AFP frétta­stofan frá því að mann­úð­ar­sam­tökin Human Rights Watch skil­greindu Gaza-svæðið sem „fang­elsi undir beru lofti“ vegna aflok­ana Ísra­els­manna og Egypta. Þá var vitnað til rann­sóknar Save the Children um að eftir þau 15 ár sem Ísrael hefði við­haldið aflokun Gaza greindust 80 pró­sent barna með „þung­lyndi, sorg og ótta“, sem var hækkun úr 55 pró­sent fjórum árum áður.

Ástandið átti hins vegar eftir að versna enn til muna. Eftir hryðju­verka­árás Hamas 7. októ­ber 2023, þar sem 1.200 Ísraelar voru drepnir, sem Stefán Einar tengdi mót­mæl­end­urna í Khan Yunis við, voru um 75 þús­und manns drepin og þar af 21 þús­und börn. 

Stórir hlutar Khan Yunis eru nú rústir einar.

Segir hvorki lögreglu né Stefán hafa rætt við sig

Í sam­tali við Heim­ild­ina full­yrðir Fouad al-Nawajha að Stefán Einar hafi ekki haft sam­band við hann áður en hann birti ásak­anir á hendur honum og þar með hafi hann ekki fengið tæki­færi til að útskýra mál sitt, áður en ásak­an­irnar voru bornar fram og bornar undir for­sæt­is­ráð­herra í þætti Stefáns á mbl.is fyrir þing­kosn­ing­arnar 2024.

Fouad segir lög­regl­una ekki hafa haft sam­band við sig. „Ég er viss um að lög­reglan veit hver ég er og ég kom með skil­ríki frá palest­ínskum yfir­völdum í Ramallah, sem ég fór með beint til Útlend­inga­stofn­unar,“ segir hann.

Fouad al-NawajhaFouad al-Nawajha á sjö börn. Þrátt fyr­ir að flest­ir land­ar hans hafi þeg­ar feng­ið að sam­ein­ast fjöl­skyld­um sín­um hér á landi er Fouad ekki á með­al þeirra. Hann fékk ekki vernd hér á landi fyrr en eft­ir að lög­um um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu var breytt.

Mótmæltu niðurskurði í flóttamannahjálp

Fouad útskýrir hvernig kom til að hann mót­mælti 14. júní 2022, sem leiddi til ásak­ana á hendur honum hér­lendis tveimur árum síðar.

„Það barst beiðni frá Flótta­manna­stofnun og Flótta­manna­ráði Frels­is­sam­taka Palest­ínu um að koma saman í júní 2022 vegna nið­ur­skurðar á mat­væla­að­stoð hjá Palest­ínu­flótta­manna­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNRWA), sem Banda­ríkin hygð­ust fram­kvæma. Þetta varð til þess að ég, sem flótta­maður, fór út og mót­mælti þessum nið­ur­skurði,“ segir hann.

Hann segir Stefán Einar hafa not­fært sér orða­lagið „spreng­ing“ á borð­anum sem hann stóð við til að ásaka hann rang­lega. „Þegar þetta orða­sam­band var skrifað á arab­ísku var það til að gefa til kynna að áfram­hald­andi hung­ursneyð og dráp á börnum með hungri og að svipta Palest­ínu­menn rétti sínum til aðstoðar frá UNRWA og flótta­manna­stofn­un­inni muni knýja fólk til að grípa til aðferða sem gera það ofbeld­is­fyllra, að ýta fólki út í hung­ursneyð muni skapa vanda­mál. Hvers getur þú vænst af því að svelta börnin þín? En ég hafna algjör­lega í einu og öllu að vera sýndur á þennan hátt og beittur fölskum ásök­unum,“ segir hann.

Þá segir hann Stefán hafa sýnt af sér aug­ljósa ófag­mennsku sem auð­velt sé að sýna fram á.

„Ég vil vekja athygli á einu mjög mik­il­vægu. Ég er ungi mað­ur­inn við slag­orð Frels­is­sam­taka Palest­ínu (PLO), um mál­efni palest­ínskra flótta­manna, og Hamas til­heyrir ekki þeim sam­tökum, sem eru hinn lög­mæti og eini full­trúi palest­ínsku þjóð­ar­innar. Hvernig er hægt að lýsa þeim sem taka þátt í þess­ari mót­mæla­stöðu sem með­limum Hamas? Slagorð Frels­is­sam­taka Palest­ínu? Þetta er skýr og aug­ljós sönnun fyrir ófag­mennsku blaða­manns­ins.“

Forðaðist að fara meðal fólks

Eftir ásak­anir Stefáns Einars seg­ist Fouad ekki hafa þorað að nota Strætó um skeið. „Ég var hræddur um að rekast á ein­hvern sem tryði því sem Stefán sagði um mig,“ segir hann.

Fouad hefur meðal ann­ars starfað við þrif á Íslandi frá því hann kom hingað sem flótta­maður. Masters­rit­gerð hans árið 2014 fjall­aði hins vegar um verð­mats­að­ferðir á hluta­bréfum í palest­ínsku kaup­höll­inni. Hann útskrif­að­ist með masters­gráðu í bók­haldi og fjár­málum frá Íslamska háskól­anum í Palest­ínu og starf­aði sem háskóla­kenn­ari.

„Ég starf­aði sem fyr­ir­les­ari í Opna háskól­anum í Jer­úsalem [Jerusalem Open Uni­versity] og Palest­ínu­há­skóla í Gaza [Uni­versity of Palestine],“ segir Fouad.

Breyt­ingar á stefnu stjórn­valda í síð­ustu rík­is­stjórn komu í veg fyrir að hann næði fjöl­skyldu sinni heim í fjöl­skyldu­sam­nein­ingu. „Ég er maður sem hlakkar til að verða fyr­ir­mynd fyrir börnin mín og mitt fólk. Svo mér er sama um lygar og for­dóma þessa blaða­manns.“

„Ég þekki sjálfan mig og ég er ekki það sem Stefán sagði mig vera.“

Þegar Heim­ildin ræddi við Fouad í gær var hann staddur á Akureyri í heim­sókn hjá séra Jónu Lísu Þor­steins­dóttur presti, sem hefur stutt flótta­menn frá Palest­ínu. Hún bar honum vel sög­una. „Hann er við­kvæmur og hefur gengið í gegnum margt,“ segir hún.

„Hún er eins og íslensk móðir mín,“ segir hann.

Svaraði fyrir ásakanir um falsfréttir

Í við­tal­inu við Bylgjuna í gær svar­aði Stefán Einar fyrir  gagn­rýni á Morg­un­blaðið vegna þess að umfjöllun blaðs­ins um hryðju­verka­tengsl var borin til baka af lög­reglu. Þegar spyrill beindi því til hans að Morg­un­blaðið hefi verið kallað „fals­frétta­mið­ill“ vegna frétt­ar­innar, sagði Stefán Einar: 

„Það er eins og hver annar dagur.“

Hann bætti við: „Þó standa þessar fréttir fyrir sínu og málið talar sínu máli, eins og maður segir.“

Hann sagði heim­ild­ar­menn innan lög­reglu hafa „talað skýrt um þetta mál.“

Hins vegar komi ótti lög­reglu­manna í veg fyrir umræðu. Stefán hefur áður vitnað til þess að ótti fólks komi í veg fyrir að yfir­lýs­ingar hans séu stað­festar. Það gerði hann í júlí í fyrra þegar yfir­læknir fæð­ing­ar­deildar Land­spít­al­ans sagði lýs­ingar Stefáns Einars „koma starfs­fólki kvenna­deildar í opna skjöldu“, en hann hafði lýst „stand­andi vanda­máli“ vegna kven­fyr­ir­litn­ingar og yfir­gangi frá hópi karl­manna á fæð­ing­ar­deild­inni: „Gríð­ar­lega ljót fram­koma gagn­vart starfs­fólki og mjög ljót fram­koma gagn­vart kon­unum með nýfædd börn, vegna þess að þetta eru hópar manna sem fyr­ir­líta konur,“ hafði hann sagt. „Þetta er veru­leik­inn, en heil­brigð­is­starfs­fólkið myndi aldrei mæta í svona við­tal og ræða opin­skátt um það. Það ætlar ekki að lenda í þessum hnífa­mönnum eða þessum yfir­gangs­seggjum, sem telja að þeir geta komið hér eins og fínir menn og vaðið yfir sam­fé­lagið á skítugum skónum.“

Stefán Einar hefur líka dreift fals­fréttum í þætti sínum Spurs­málum og á sam­fé­lags­miðlum varð­andi múslíma. Í des­em­ber birti hann brot úr tveimur mynd­böndum sem hann sagði rang­lega sýndu hópa múslima reyna að trufla jóla­mark­aði, „sýna vald sitt“ og „sýna hinum kristna meiri­hluta hverjir það eru sem ráða“.

Stað­reynda­vakt erlendra fjöl­miðla stað­festi þó að þetta væri rangt og mynd­böndin hafi verið tekin úr sam­hengi. Annað hafi verið frá viku­legum mót­mælum stuðn­ings­fólks Palest­ínu og hitt af nýárs­fögn­uði á Ítalíu. 

Þrátt fyrir vörn sína fyrir umfjöllun Morg­un­blaðs­ins um Hamas-liða á Höfða­torgi við­ur­kenndi Stefán Einar að hann þekkti ekki til máls­at­vika í við­tal­inu við Bylgjuna í gær. „Ég tek fram að ég hef ekki komið per­sónu­lega að þessum frétta­flutn­ingi, en ég hef fulla ástæðu sem fyrr til þess að treysta Morg­un­blað­inu í þessu máli.“

Spurður hvers vegna lög­reglan hafn­aði frétta­flutn­ingi Morg­un­blaðs­ins svar­aði hann:

„Ég get auð­vitað ekk­ert leitað inn í hug­ar­heim þess­ara manna, hins vegar átta ég mig á því, og það er reyndar aðstaða sem blaða­menn finna sig í einnig, að menn ótt­ast þessa hópa. Það hefur verið mik­ill upp­gangur mafíu­starf­semi á Íslandi frá Albaníu og síðan í gegnum Palest­ínu, bæði í gegnum Svíþjóð og svo beint frá Palest­ínu, og þetta eru hópar sem meðal ann­ars hafa flutt inn fólk sér­stak­lega frá Svíþjóð til að kveikja í lög­reglu­bílum lög­reglu­manna, fara að heim­ilum þeirra og ógna þessu fólki.“

Hann gagn­rýndi lög­regl­una og sagði hana þurfa að skýra mál sitt.

„Maður hálf­skelfur á fót­unum fyrir því að lög­reglan skuli stíga fram með þessum hætti og mér finnst að menn verði að gera frek­ari grein fyrir sínu máli á þeim vett­vangi, miklu frekar heldur en á Morg­un­blað­inu“.

Í dag hélt Morg­un­blaðið áfram að stað­hæfa um Hamas-tengsl palest­ínskra brota­manna og sagði í frétt, þar sem rætt var við Guðrúnu Haf­steins­dóttur, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að „grunur léki á um að hluti þeirra manna sem hand­teknir voru á Höfða­torgi nýverið vegna ofbeld­is­verka tengd­ist palest­ínsku hryðju­verka­sam­tök­unum Hamas.“ Þá segir Morg­un­blaðið að  yfir­lýs­ingar lög­reglu „stang­ist á við trausta heim­ild­ar­menn“ innan lög­reglu. Í frétt­inni kemur fram að lög­reglu­menn hafi rætt við Morg­un­blaðið og „furðað sig á yfir­lýs­ing­unni“ frá lög­reglu um að ekk­ert benti til Hamas-tengsla. Þannig hafi lög­reglu­menn séð merki Hamas í efni í síma mann­anna sem hand­teknir voru eftir upp­gjörið í und­ir­heimum á Höfða­torgi.

„Ég er ekki rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og ég tala ekki fyrir hönd þess, en ég þekki hins vegar vinnu­brögðin og ég þekki sam­starfs­menn mína þar,“ sagði Stefán Einar. „Auðvitað verður fjöl­miðlum á. Það getur gerst á vett­vangi Morg­un­blaðs­ins eins og ann­ars staðar, en ég hef ekki ástæðu til þess að ætla að það sé málið þarna.“

Í kjöl­farið benti hann á fyrri umfjöllun sína um meint hryðju­verka­tengsl palest­ínska háskóla­kenn­ar­ans Fouad al-Nawajha. 

Sjálfur segir Fouad aug­ljóst að frá­sagnir Stefáns Einars af honum séu án nokk­urra stoða. 

„Vinir mínir á Íslandi ráð­lögðu mér að fara eftir lög­unum og fara fyrir dóm­stóla með Stefán. En ég hafn­aði því. Mig vantar ekki meiri vanda­mál. Ég vil bara lifa í friði.“

Stefán Einar hefur ekki svarað spurn­ingum Heim­ild­ar­innar um verk­lags­reglur Morg­un­blaðs­ins og stað­reyndir máls­ins.

Kjósa
111
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Stefán Einar Stefánsson er ekki bara guðfræðingur og viðskipta-"siðfræðingur" heldur líka frímúrari.

    Auk þess hefur hann stundað "rannsóknir" í frímúrara"fræðum" í "rannsóknar"stúkunni Snorra :-) :-) :-) :-)

    SES: "Musteri Salomons og Frímúrarareglan".

    Niðurstöður "rannsóknanna" eru leyndó geymdar í læstum hirslum reglunnar :-) :-)

    Það er erfitt að hafa skoðun á þessum rannsóknum vegna þess að niðurstöðurnar eru leyndó.

    Leyndarhyggjan í kringum þetta er að mínu mati sprenghlægileg - mann grunar að menn skammist sín fyrir "rannsóknirnar".

    :-) :-) :-)
    0
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    Ég þoli ekki fólk eins og Stefán Einar. Það jaðrar við ofnæmi … ég fæ næstum líkamleg útbrot þegar ég hlusta á hann tala. Þrái að stinga skítugum sokk upp í hann til að stoppa bullið…
    Hér er frétt um saklausa ömmu í Ameríku sem lendir í að mynd af henni ruglast við aðra í forriti eins og Stebbi er að tala um … 😎
    https://nypost.com/2026/03/29/us-news/tennessee-grandma-jailed-for-5-months-after-ai-flagged-her-for-bank-fraud-in-state-she-never-visited/
    2
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ég velti fyrir mér hvaða fólk skipaði svokallaða verðlaunanefnd á þessum tímapunkti og hvort sé ekki fullástæða til að skipta því fólki út og upplýsa um nöfn viðkomandi, vonandi tekur einhver blaðamaður með sómakennd það verkefni að sér. Ps. Öfga-hægrið í landinu fjármagnar viðbjóðinn/drulluna, einsog sést þegar dæmdur hlaðvarpari sem stjórnar Þjóðmáli leysir út 10-milljón arðgreiðslu. Takk fyrir vandaða frétt af þessum falsfréttaflutningi moggasnepilsinns Heimildar-starfsfólk.
    12
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Hvort sem þessir ofbeldismenn séu hamasliðar eður ei, þá á að vísa þeim hið snarasta úr landi. Ég gef lítið fyrir ruglið og bullið í þessum Stefáni, hann er bara ein fígúra sjallamanna.
    -2
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Umræddur nafngreindur blaðamaður hefði betur átt að sitja á strák sínum að fullyrða eitthvað vafasamt og jafnvel glæpsamlegt án minnstu sannana. Hann hefur gerst brotlegur í starfi sem varða kann hann ekki aðeins álitshnekki í starfi sínu fyrir ófagleg vinubrögð, heldur einnig að vera tilefni málsóknar. Það ætti að vera tiltölulega auðvelt fyrir meðalgóðan júrista að fá ummæli blaðamanns þessa dauð og ómerk. Háar skaðabætur gætu þess vegna verið afleiðing vegna ámælisverðrar framkomu þessa blaðamanns.
    Í vandaðri og góðri blaðamennsku ber ætíð að gæta hófs í hvívetna og fullyrða aldrei meira en tilefni gefur til. Þessi ofbeldisverk í bílakjallara voru framin af ofbeldisfullum einstaklingum sem ekki hefur verið unnt að sýna fram á að séu í tengslum við erlend hermdarsamtök.
    10
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Alltaf er hófsemi betri en upphlaup í fréttamennsku.
    9
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Stefán Einar vantar ekkert nema appelsínugult brúnkukrem í andlitið og gull klósett til að sitja á meðan meðan hann drullar út á veraldarvefinn.
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár