Skattakóngur á 42 ára gömlum Benz: Velgengnin kostaði hjónabandið

Sigurður Elías Guðmundsson, sem er tekju­hæstur á Suður­landi, minnir á að mikill tími fari í farsæla uppbyggingu á rekstri og því fylgi miklar fórnir einnig. Þannig hafi reksturinn kostað hann hjóna­bandið.

Þriðji
Þriðji Sigurður Elías er í þriðja sæti yfir þau tekju­hæstu á Suð­ur­landi. Mynd: MBL / Sigurður Bogi

„Ég er bara sveita­drengur og hef verið að burðast með það að berja þetta upp í 25 ár,“ segir Sigurður Elías Guðmundsson, hótel­eigandi í Vík í Mýrdal, en hann er afar umsvifa­mikill í ferða­þjónustu í þorpinu. Það kom honum á óvart þegar blaða­maður tilkynnti honum að hann væri einn tekju­hæsti einstaklingurinn á Suður­landi þetta árið en heildar­tekjur Sigurðar voru rétt tæpar 430 milljónir. 

„Það er best að kannast ekkert við þetta,“ sagði hann og hló lágt þegar blaða­maður spurði hvort upphæðin kæmi honum á óvart. 

Vinnan á hug og hjarta Sigurðar Elíasar sem ekur um á 42 ára gömlum Benz og skipuleggur enn frekari stækkun á hótel­rekstri sínum, en 165 starfs­menn eru í vinnu hjá honum. Hann rekur tvö hótel í bænum og nær um sex mánaða nýtingu þegar kemur að gistinóttum, sem hann telur að sé lengsta tímabilið sem nokkurt hótel á lands­byggðinni nær að nýta. Þá …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár