Raunverulegur hagvöxtur mun minni á Íslandi en í ESB

Lítill hag­vöxtur hefur verið á Íslandi síð­ustu fimm ár ef tekið er til­lit til mann­fjölg­unar. Samhliða henni hefur álag á inn­viði auk­ist veru­lega og fast­eigna­verð tvö­fald­ast að raun­virði.

Raunverulegur hagvöxtur mun minni á Íslandi en í ESB
Efna­hags­líf drifið af mann­fjölgun Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, sam­sett af Vinstri grænum, Fram­sókn­ar­flokki og Sjálf­stæð­is­flokki, tók við árið 2017. Á tíma­bili hennar hefur hag­vöxtur á mann verið afar lít­ill. Mynd: Heiða Helgadóttir

slenskt efna­hags­líf hefur vaxið umfram mörg við­mið­un­ar­lönd síð­ustu ár, en stöðnun hefur leynst undir yfir­borð­inu.

Hag­vöxtur á Íslandi hefur mælst ágætur síð­ustu ár. Raun­hag­vöxtur, að teknu til­liti til verð­lags, hefur verið 2,6% að með­al­tali árin 2020 til 2024, tvö­falt meiri en í Evr­ópu­sam­band­inu og örlítið meiri en í Banda­ríkj­unum.

Það segir hins vegar ekki alla sög­una. Þegar tekið er til­lit til mann­fjölg­unar, sem hefur verið mikil á Íslandi síð­ustu ár vegna inn­flutn­ings fólks, er hag­vöxtur á Íslandi minna en þriðj­ungur af því sem hefur verið í Evr­ópu­sam­band­inu að með­al­tali. Hag­vöxtur á mann var aðeins 0,3% að með­al­tali á ári síð­ustu fimm árin á Íslandi, en hann var 2,1% í Danmörku, 1,8% í Banda­ríkj­unum og 1% í Evr­ópu­sam­band­inu. 

Þetta kemur fram í stöðu­grein­ingu Stjórn­ar­ráðs Íslands fyrir atvinnu­stefnu Íslands, sem nú er komin í sam­ráð.

Fjölgun innfluttra fylgir „verulegt álag“

Síðustu 15 árin hafa svipt­ingar í efna­hags­líf­inu birst í því að hús­næði hefur hækkað þrefalt í verði að nafn­virði, en tvö­falt að raun­virði. Þetta hefur skert aðgengi almenn­ings að hús­næði, sem ekki á það fyrir. Orsakir þess eru aukn­ing útleigu íbúða til ferða­manna og fólks­fjölgun, sem stafar að miklu leyti af þörf fyrir starfs­fólk í ferða­þjón­ustu.

Sömu orsaka­þættir hafa skapað álag á þjóð­veg­ina, en umferð um Þjóðveg 1 jókst um 80% á síð­ustu 15 árum. Fjöldi barna á grunn- og leik­skóla­aldri sem eru með erlent rík­is­fang hefur þre­fald­ast. 

Heil­brigð­is­kerfið hefur ekki náð að halda í við fólks­fjölgun. Þannig hefur sjúkrrýmum á hverja 100 þús­und íbúa fækkað um 30% frá því sem mest var árið 2007.

Staðnað hagkerfi

Hagkerfi Íslands óx mikið á öðrum ára­tugi ald­ar­innar, en veru­lega hefur hægt á. Þannig var hag­vöxtur á mann 1,1% frá 2010 til 2024 að með­al­tali, en féll svo. Það var engu að síður enn lægra en í Evr­ópu­sam­band­inu á sama tíma­bili.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Langstærstur hluti mannfjölgunar á Íslandi er vegna innflutnings fólks frá ESB. Fréttin segir því í raun að með þessu fylgir jafnframt innflutningur lægri hagvaxtar á mann frá ESB. Andhverfan á því hlýtur þá að vera sú að fyrir hvern ESB ríkisborgara sem flytur til Íslands með lægri hagvöxt í farteskinu, eykst hagvöxtur á mann í ESB sem því nemur. Efni fréttarinnar er með öðrum orðum staðfesting á því sem oft hefur verið bent á að hagvöxtur í ESB er svo miklu minni en á Íslandi að það mælast marktæk áhrif af því í hagvexti á hvern innfluttan einstakling þaðan. Með því að taka það á sig er Ísland jafnframt að efla hagvöxt á mann í ESB. Þetta vekur upp þá spurningu hvort kannski ætti að íhuga að senda þeim reikning fyrir mismuninum?
    -11
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Hætta að flytja inn verkafólk í stórum stíl og hrekja menntafólk úr landi á sama tíma.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár