Miðstöð fyrir flugvallarrútur neðanjarðar við Miklubrautargöng

Stýri­hópur á vegum Reykja­vík­ur­borgar skoðar fýsi­leika þess að ný sam­göngu­mið­stöð Reykja­víkur verði við enda Miklu­braut­ar­gangna þegar þau rísa. Þar yrði lyk­il­skipti­stöð Borg­ar­línu og mið­stöð fyrir lang­ferða­bíla til og frá Keflavík.

Miðstöð fyrir flugvallarrútur neðanjarðar við Miklubrautargöng
Mikla­braut Mynd: Jón Trausti Reynisson

Stýri­hópi verður falið að kanna raun­hæfni hug­mynda um sam­göngu­mið­stöð Reykja­víkur í og við vest­ur­enda Miklu­braut­ar­ganga.

Þetta var sam­þykkt á fundi borg­ar­ráðs í gær. Útfærslur að Miklu­braut­ar­göngum og hug­mynd að sam­göngu­mið­stöð við vest­ur­enda gang­anna liggja fyrir og mun hóp­ur­inn skoða betur umfang verk­efn­is­ins og fýsi­leika stað­setn­ing­ar­innar.

Miklu­braut­ar­göng yrðu 2,8 km löng jarð­göng milli Snorra­brautar og austur fyrir Grens­ás­veg og eru fyr­ir­huguð fyrir árið 2038.

„Lyk­il­skipti­stöð Borg­ar­línu og nýs leið­ar­kerfis Strætó yrði þar á yfir­borði en undir yfir­borði yrði mið­stöð lang­ferða­bíla, þ.m.t. rútu­ferða milli Reykja­víkur og Kefla­vík­ur­flug­vallar,“ segir í erind­is­bréfi stýri­hóps­ins. „Áður hefur verið gert ráð fyrir sam­göngu­mið­stöð á Umferð­ar­mið­stöðv­ar­reit en hann yrði þá þró­aður með öðrum hætti. Sam­göngu­mið­stöð við Miklu­braut­ar­göng hefði mun sterk­ari teng­ingu við lyk­il­skipti­stöð almenn­ings­sam­gangna og myndi nýta hol­rými sem mynd­ast í tengslum við vest­ari gangna­munn­ann.“

Hópurinn mun kanna afstöðu Vega­gerð­ar­innar og Betri sam­gangna, félags­ins sem heldur utan um Borg­ar­línu­verk­efnið, og rýna fjár­hags­lega þætti máls­ins. …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár