Sagt frá andláti móður sinnar „nánast í sömu andrá og jólin voru hringd inn“

Í bók­inni Mamma og ég, segir Kolbeinn Þor­steins­son frá sam­bandi sínu við móður sína, Ástu Sig­urð­ar­dóttur rit­höf­und. Á upp­vaxt­ar­ár­unum þvæld­ist Kolbeinn á milli heim­ila, með eða án móður sinnar, sem glímdi við ill­skilj­an­leg veik­indi fyrir lítið barn. Níu ára gam­all sat hann jarð­ar­för móður sinnar og átt­aði sig á því að draum­ur­inn yrði aldrei að veru­leika – draum­ur­inn um að fara aftur heim.

Sagt frá andláti móður sinnar „nánast í sömu andrá og jólin voru hringd inn“

„Eins und­ar­legt og það kann að virð­ast þá eru flest allar minn­ingar mínar um mömmu góðar,“ segir Kolbeinn Þor­steins­son, sem var að gefa frá sér bók­ina Mamma og ég, þar sem segir frá líf­inu þar til móðir hans lést þegar hann var níu ára gam­all, en hún hafði lengi barist við óreglu og þá djöfla sem fylgdu fíkn­inni. Bókin er til­einkuð alsystk­inum hans, en hann er næstyngstur þeirra fimm. Hálf­systk­ini eru síðan þrjú, eldri og yngri. Bókin er einnig til­einkuð móður hans, sem hann minn­ist með hlý­hug. „Þetta eru ekk­ert endi­lega merki­legar minn­ingar, en þetta eru minn­ingar sem ég á og þær eru meira og minna allar góðar. Hún var mamma mín og mamma okkar systk­in­anna. Þar sem hún var fannst mér gott að vera. Hjá henni vildi ég vera.“

Nema einu sinni. Móðir þeirra var undir eft­ir­liti barna­vernd­ar­yf­ir­valda og leit­aði skjóls með börnin í vanda­mönnum í Dals­mynni. Óróinn …

Kjósa
80
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðbjörg Guðmundsdóttir skrifaði
    Frábært viðtal.
    2
  • Guðný Bjarnadóttir skrifaði
    Gott viðtal við mann sem hefur reynt ýmislegt og lært af því og náð að þroskast. Takk fyrir bókina, er langt komin með hana.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár