Íslandsbanki festir niður sögulega háa vexti eftir dóm

Með­al­vextir fastra verð­tryggðra hús­næð­is­lána Íslands­banka hafa verið um 3,6% frá 2012 en eru nú fastir í 4,75% með lág­markið í 3,5%, eftir við­brögð bank­ans við vaxta­dómi Hæsta­réttar.

Íslandsbanki festir niður sögulega háa vexti eftir dóm
Jón Guðni Ómarsson Banka­stjóri Íslands­banka varð fyrstur til að bregð­ast við vaxta­dómi Hæsta­réttar með nýju fyr­ir­komu­lagi verð­tryggðra hús­næð­is­lána. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Eftir hlé á veit­ingu verð­tryggðra hús­næð­is­lána í kjöl­far vaxta­dóms Hæsta­réttar í síð­asta mán­uði, hefur Íslands­banki nú riðið á vaðið með nýja útfærslu lána­skil­mála sem sækja má um strax. Fastir vextir verð­tryggðra lána verða 4,75% til fimm ára af nýjum lánum, líkt og fyrir dóm­inn. Þeir vextir eru þó sögu­lega háir. Að með­al­tali hafa vextir sömu lána verið um 3,6% frá árinu 2012 hjá Íslands­banka, en nú boðar bank­inn að ekki verði farið niður fyrir 3,5% en allt upp í 5,25%.

Breytilegir vextir 10,85%

Óverð­tryggð hús­næð­is­lán með breyti­legum vöxtum voru 10,25%, en verða núna 10,85%, eða hærri en nokkru sinni fyrr hjá Íslands­banka frá því sem gögn sýna aftur til árs­ins 2012. Þau eru þó ekki veitt lengur, nema til fyrstu kaupa. Samkvæmt núgild­andi vaxta­töflu bank­ans eru þeir reikn­aðir sem stýri­vextir að við­bættu 3,35% álagi. 

Hins vegar býður Íslands­banki fasta óverð­tryggða vexti til fimm ára með 8,15% vöxtum, …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Þeir nýju skilmálar sem Íslandsbanki kynnir nú til sögunnar eru fljótt á litið enn ólöglegri en þeir sem voru dæmdir ólöglegir 14. október og fleiri nýjum ólöglegum atriðum hefur verið bætt við! Meðal annars svokölluðu vaxtagólfi sem hefur verið dæmt ólöglegt á Spáni samkvæmt nákvæmlega sömu reglum og gilda hér á landi á grundvelli EES samningsins.

    Þessi nýju lán eru alls ekki á föstum vöxtum heldur breytilegum eins og var staðfest fyrir átta árum síðan með dómi Hæstaréttar Íslands í máli gegn Íslandsbanka sjálfum!

    Að auglýsa eða kynna lán ranglega með föstum vöxtum sem er raunverulega með breytilegum vöxtum er sjálfstætt og nýtt lögbrot sem er nú þegar fullframið!

    Þessum raðlögbrjótum virðist ekki vera við bjargandi heldur forherðist þeir ef eitthvað er.

    https://www.facebook.com/groups/heimilin/permalink/10164270224389289/
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár