Hvernig LU-kex og Egils orka urðu táknmyndir íslenskra þjóðernissinna

Orðtakið „lengst uppi“ hefur í vaxandi mæli verið notað meðal hægri- og þjóðernis­sinnaðra netverja á X. Vart hefur orðið við frasann og vísanir í hann í færslum Snorra Mássonar vara­formanns Miðflokksins. Þeir hafa tengt bæði útgáfu af Egils Orku og LU-kex við hugmynda­fræði sína.

Meðal hægri- og þjóðernis­sinnaðra notenda á samfélags­miðlinum X hefur orðið vart við mikla notkun orðtaksins „lengst uppi“, sem oft er skamm­stafað LU. 

Orðtakið er einkum áberandi í málflutningi Sverris Helga­sonar sem sagði sig úr stjórn ungliða­hreyfingar Miðflokksins fyrir skemmstu og skilgreinir sjálfan sig sem róttækan íhalds­mann og hefur meðvitað reynt að innleiða orðræðu bandarískra þjóðernis­sinna hérlendis.

Talsvert ber á andstæða frasanum „lengst niðri“, skamm­stafað LN. Þetta er fólk sem Sverrir og skoðana­bræður hans líta greini­legu hornauga. 

„Þeir sem eru LN (lengst niðri) hafa mjög sterka tilhneigingu til þess að reyna að draga þá sem eru LU (lengst uppi) niður á sama plan og þeir. Þeir kalla þetta ýmsum nöfnum, til dæmis inngeldingu, jafnrétti eða framfarir en þetta er sálræn nauðgun sem þeir eru að reyna að iðka,“ skrifar hann í færslu 7. nóvember.

„Lengst uppi“ sem hugarástand sigurvegarans

Orðalagið „lengst uppi“ hefur verið …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár