„Ownaðu þennan stimpil, þú ert rasista king“

Sverrir Helgason sagði sig í vik­unni úr stjórn Ungra Mið­flokks­manna eftir umdeild ummæli. Sverrir hefur talað út frá því sem kallað hefur verið trölla­menn­ing sem gengur út á að miðla skoð­unum um kyn­þætti og vald­beit­ingu í bún­ingi kald­hæðni.

„Ownaðu þennan stimpil, þú ert rasista king“
Þolir ekki vókið Sverrir talar gjarnan gegn hug­tak­inu vók. „Við eigum ekki að láta woke-libbamiðl­ana stýra því hvað við ræðum og hvernig við högum okkur. Við eigum ekki að láta stjórn­ast af aðstæðum heldur taka stjórn á þeim,“ skrif­aði hann nýlega á sam­fé­lags­miðlum.

Fyrr í vik­unni var greint frá því að Sverrir Helgason, vara­maður í ung­liða­hreyf­ingu Mið­flokks­ins, hefði sagt sig úr stjórn­inni.

„Þar sem ég vil fá að halda áfram að tjá mig og ögra eins og mig langar til án þess að það kasti rýrð á það góða starf sem á sér stað hjá ungum Mið­flokks­mönnum þá segi ég stöðu minni þar lausri,“ skrif­aði hann á sam­fé­lags­mið­il­inn X aðfara­nótt mið­viku­dags ásamt skjá­skoti af frétt mbl.is um málið.

Eldfimar skoðanir og kaldhæðni

Sverrir er gríð­ar­lega virkur á X þar sem hann fjallar um ýmis hugð­ar­efni sín sem eru tals­vert langt til hægri á hinu póli­tíska rófi, en sjálfur hefur hann sagst vera rót­tækur íhalds­maður.

Sverrir aðhyllist kyn­þátta­raun­sæi sem kveður á um það að ólíka kyn­þætti greini um hvað ákveðna líf­fræði­lega þætti varðar, til dæmis greind. Hug­mynda­fræðin hefur oft verið tengd við líf­fræði­lega kyn­þátta­for­dóma en erfða­fræði nútím­ans hafnar þeirri hug­mynd …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jsem soukromý investor, který nabízí přímé osobní půjčky – žádné banky, žádní zprostředkovatelé, žádná zbytečná zpoždění. Ať už potřebujete finanční prostředky na podnikání, konsolidaci dluhů nebo naléhavé osobní výdaje, nabízím vám:
    Jasné podmínky a fixní sazby
    Rychlé schválení a výplata v ten samý den
    Žádné skryté poplatky ani nekonečné papírování
    Flexibilní smlouvy přizpůsobené vaší situaci
    Jsem k dispozici 24 hodin denně, 7 dní v týdnu, abych vám pomohl získat potřebnou podporu. Spolehlivý, přímočarý a férový.
    parizektomas908@gmail.com
    Nečekejte – zajistěte si půjčku ještě dnes a převezměte kontrolu nad svými financemi!
    0
  • IS
    Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Kenni mig hvorki við Miðflokk né Sverri. En hef óþol gagnvart rangfærslum og afvegaleiðingum. Hvorki Heimilidin né Mbl né Visir né RÚV uppfylltu 26. fjölmiðlalaga í umfjöllun um málið skv. mínum skilningi. Grein sem segir m.a. "uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni [í fréttum og fréttatengdu efni] 1) og gæta þess að mismunandi sjónarmið komi fram, jafnt karla sem kvenna."

    Mbl sagði manninn ekki neita að vera rasisti án nokkurra sannanna í frétt, hvar maðurinn sagði „Það myndi ekki trufla mig þó ég væri kallaður það... Ekki neitt". Í framhaldi rætt að "margir séu kallaðir rasistar í dag og að innistæðan sé oft takmörkuð." Ergó: fólk kallar aðra rasista gjarnan án þess að sýna fram á það eða hafa forsendur til.

    Vísir fullyrti að maðurinn gengist við rasisma en birti ekkert sem sýndi slíkt.. Viktor Orri fullyrti út frá frétt manninn segja suma kynþætti "óæðri" og ofbeldishneigða án þess að nokkuð slíkt kæmi fram í fréttinni.
    RÚV ræddi erfðamál, genamál við stjórnmálafræðing, en ekki erfðafræðing og hegðunarfræðing (behavioral scientist) eins og eðlilegra væri.
    Og Heimild étur þetta allt upp. Allir fjölmiðlarnir klikkuðu á 26. gr. Almenningur tapar, upplýsist ekki sem skyldi, og er att saman. Smelluveiðar fyrir fjölmiðla, og athygli almennings beint frá hagsmunum sínum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár