Rósa fékk um 30 milljónir í laun á 11 mánuðum frá hinu opinbera

Rósa Guð­bjarts­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gegndi fleiri en einu starfi á sama tíma. Hún hætti störfum fyrir bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar í lok októ­ber, og fellur þar með um 900 þús­und í launum.

Rósa fékk um 30 milljónir í laun á 11 mánuðum frá hinu opinbera
Rósa Guð­bjarts­dóttir Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar átti gott ár tekju­lega, en fellur nú um 900 þús­und í launum. Mynd: Hafnarfjarðarbær

Rósa Guð­bjarts­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, var með hærri laun en for­maður eigin flokks og for­sæt­is­ráð­herra, fyrir að sitja bæði á þingi, sem for­maður bæj­ar­ráðs og stjórn­ar­maður í Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga. Hún lauk störfum hjá Hafn­ar­firði í lok októ­ber, og fellur þar með um tæpa milljón í tekjum.

Alls fékk Rósa um 30 millj­ónir að minnsta kosti fyrir öll þessi störf á síð­ustu ell­efu mán­uðum. Á tíma­bili var hún að auki á tvö­földum launum, fékk tæpar 5,8 millj­ónir króna fyrir störf sín í des­em­ber síð­ast­liðnum, þegar hún var bæði bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar og á þing­fara­kaupi. Ef aðeins störf hennar fyrir Hafn­ar­fjörð og þing eru tekin saman, eru árs­laun for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um fjórum millj­ónum lægri en Rósu. Guðrún Haf­steins­dóttir fær greiddar 2,4 millj­ónir á mán­uði bæði fyrir þing­mennsku og for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknuim eða 28 millj­ónir yfir árið. Þing­fara­kaup er rétt um 1,6 milljón en var 1,5 milljón …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Þetta væri væntanlega ekki hægt ef hún hefði verið á tímakaupi á öllum þessum stöðum. Hverjum datt eginlega í hug að finna upp mánaðarkaupið?
    0
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Sparnaðarráð Rósu fyrir Alþingi og sveitarstjórnir:
    1. Það má fækka mannskapnum um helming.

    Þarna er hugsjónamanneskja á ferð,
    verkin sýna merkin.
    1
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Og hún skammast sýn ekki
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár