Þöglu eigendur atvinnulífsins

Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru stærstu eig­endur skráðra fyr­ir­tækja á Íslandi en minni hlut­hafar með hug á skamm­tíma­gróða eru oft í for­ystu þeirra. Sjóð­irnir eiga fyr­ir­tæki sem keppa á sama mark­aði en hag­fræð­inga greinir á um hvort slíkt hamli sam­keppni. Heim­ildin kort­leggur eign­ar­hald almenn­ings í gegnum sjóð­ina í íslenskum fyr­ir­tækjum.

Almennir borg­arar á Íslandi eiga óbeint stóran hlut í stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins í gegnum aðild sína að líf­eyr­is­sjóðum lands­ins.

Hrein eign líf­eyr­is­sjóð­anna í árs­lok nam 8.240 millj­örðum króna, eða um 179% af vergri lands­fram­leiðslu í fyrra. Það gerir um það bil 21 milljón króna á hvern íbúa lands­ins. Fá lönd geta stært sig af líf­eyr­is­sjóðum af slíkri stærð en það eru helst Danmörk, Kanada, Sviss og Holland sem við getum borið okkur saman við. 

Fyrir vikið eru sjóð­irnir stærstu leik­end­urnir á íslenskum verð­bréfa­mark­aði. Til dæmis má nefna að sjóð­irnir eiga um þrjá fjórðu af hlutafé í Högum, félag­inu sem rekur mat­vöru­versl­an­irnar Bónus og Hagkaup, bens­ín­stöðvar Olís, inn­flutn­ings­fyr­ir­tækið Banana, tísku­vöru­versl­un­ina Zöru, mat­ar­pakka­þjón­ust­una Eldum rétt og fleiri fyr­ir­tæki.

Sjóð­irnir eiga sömu­leiðis nær þrjá fjórðu af hlutafé í Festi, öðru félagi sem er öfl­ugt á smá­sölu­mark­aði. Það á mat­vöru­versl­un­ina Krónuna, bens­ín­stöðvar N1, raf­tækja­versl­un­ina Elko, apó­tek Lyfju og Bakkann vöru­hótel meðal ann­ars.

Það …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hér er mikið skrifað um samkeppni á Íslandi ? Það er engin samkeppni á Íslandi og hefur ekki verið í áratugi, og þurfti ekki eignarhald í lífeyrissjóði til að sýna okkur það ? Það eru svo margir ,,klíkuklúbbar" þar sem
    , , samráð" eru stunduð !
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár