Grænlendingar bregðast við og banna fasteignakaup útlendinga

Græn­lenska þingið sam­þykkti lög sem girða fyrir upp­kaup erlendra aðila á fast­eignum og rétti til land­nýt­ingar eftir ágengni frá Banda­ríkj­unum.

Grænlendingar bregðast við og banna fasteignakaup útlendinga
Vilja taka yfir Grænland Vara­for­seti Banda­ríkj­anna heim­sótti Grænland síð­asta vetur beint í kjöl­far yfir­lýs­inga Banda­ríkja­for­seta um nauð­syn þess að taka yfir landið. Mynd: AFP

Græn­lenska þingið hefur sam­þykkt lög sem tak­marka rétt útlend­inga til að eiga fast­eignir í land­inu. Þetta ger­ist í kjöl­far auk­ins áhuga banda­rískra fjár­festa á danska yfir­ráða­svæð­inu sem Donald Trump for­seti girn­ist og segir Banda­ríkin þurfa að yfir­taka með ein­hverjum hætti.

Lögin voru sam­þykkt seint í gær með 21 atkvæði en sex þing­menn sátu hjá.

Ein­stak­lingar sem ekki eru danskir rík­is­borg­arar og erlend fyr­ir­tæki munu aðeins mega kaupa fast­eignir eða land­notk­un­ar­rétt­indi ef þau hafa verið með fasta búsetu og greitt alla sína skatta á Græn­landi síð­ast­liðin tvö ár.

„Fólk með danskan rík­is­borg­ara­rétt getur keypt fast­eignir og land­notk­un­ar­rétt­indi á Græn­landi,“ segir í nýju lög­unum.

Fyrr á þessu ári sýndi könnun danska dag­blaðs­ins Politi­ken að áhugi Banda­ríkja­manna á að eign­ast fast­eignir á Græn­landi færi vax­andi.

Frá því að Trump sneri aftur í Hvíta húsið í jan­úar hefur hann ítrekað sagt að Banda­ríkin þurfi á þess­ari auð­linda­ríku eyju, sem er hern­að­ar­lega mik­il­væg, að halda af örygg­is­á­stæðum og hefur neitað að úti­loka vald­beit­ingu til að tryggja hana.

Nýja lög­gjöfin þýðir að aðeins fólk og fyr­ir­tæki frá Græn­landi, Færeyjum og Danmörku munu mega kaupa fast­eignir og rétt til land­nýt­ingar á Græn­landi.

Samkvæmt Politi­ken og græn­lenska miðl­inum Sermitsiaq var deilt um hvort krafa um búsetu ætti að ná til fimm ára eða tveggja ára, eins og reyndin varð. Hægt er að sækja um und­an­þágu frá regl­unum til ráð­herra.

Nýju lögin eiga að taka gildi 1. jan­úar.

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár