Tíu mest lesnu viðtöl Stundarinnar á árinu

Dóttir barn­a­níð­ings, Guðrún Kjart­ans­dóttir, segir frá því hvernig hún reyndi að verja systur sínar fyrir föður sínum, Emil Thor­ar­ins­sen lýsir því hvernig konan hans hvarf inn í djúpt þung­lyndi sem dró hana að lokum til dauða og Lilja Alfreðs­dóttir veitir inn­sýn í líf hennar og störf í Seðla­bank­anum og á vett­vangi stjórn­mál­anna. Þetta eru mest lesnu við­töl árs­ins.

Tíu mest lesnu viðtöl Stundarinnar á árinu

1 „Vona að pabbi fái þann dóm sem hann verðskuldar“

Guðrún Kjart­ans­dóttir greindi frá mis­notkun föður síns í við­tali við Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur í haust, en faðir Guðrúnar hafði þá nýlega verið færður í gæslu­varð­hald vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dótt­ur­inni. Guðrún ákvað þá að stíga fram ásamt móður sinni, Katrínu Magn­ús­dóttur, í von um að stjórn­völd end­ur­skoði mis­bresti í kerf­inu svo betur sé hægt að vernda börn. 

„Það er sárt að hugsa til þess að pabbi hafi bara getað fundið sér nýja konu, eign­ast önnur börn og eng­inn stopp­aði hann af,“ sagði Guðrún meðal ann­ars.

 

2 „Konan mín vildi deyja“

Emil Thoraren­sen, fyrr­ver­andi útgerð­ar­stjóri á Eski­firði, greindi frá þeim miklu raunum sem fjöl­skylda hans gekk í gegnum þegar eig­in­kona hans glímdi við fæð­ing­ar­þung­lyndi, en þung­lyndið leiddi að lokum til dauða hennar. Dóttir þeirra á nú í sömu glímu. 

„Hún þráði að deyja þegar sjúk­dóm­ur­inn ágerð­ist og gerði ekki ófáar til­raunir til þess að það yrði að veru­leika. Þótt hún væri að segj­ast ætla að fyr­ir­fara sér þá var það í raun­inni ákall um að fá hjálp,“ segir Emil um eig­in­konu sína.

 

3 „Það var öskrað á mig og mér hótað“

Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði meðal ann­ars frá störfum sínum í Seðla­banka Íslands í hrun­inu og óvæntu sím­tali frá Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni í við­tali við Reyni Trausta­son á árinu. 

„Þetta var seint um kvöld. Ég var að lesa fjár­mála­stöð­ug­leika­skýrslu 2016, vor­út­gáfu, þegar Sig­mundur Davíð hafði sam­band við mig og spurði hvort ég gæti hugsað mér að taka sæti í rík­is­stjórn­inni. Það kom mér á óvart. Ég tók að mér að verða utan­rík­is­ráð­herra með það að leið­ar­ljósi að standa mig fyrir land og þjóð.“ 

 

4 „Það er ekki hægt að dæma látinn mann“

Selma Klara Gunn­ars­dóttir sagði frá því á árinu hvernig það var að kom­ast að því að mað­ur­inn sem hún hafði kært fyrir nauðgun væri lát­inn.

„Sumir sögðu að ég ætti að vera fegin, því nú muni ég aldrei þurfa að mæta honum aftur. Aðrir sögðu að þetta væri besti dóm­ur­inn sem hann hefði getað fengið, að deyja. En mér leið ekki þannig. Ég vildi klára málið. Ég vildi mæta fyrir dóm og segja honum hvernig mér væri búið að líða og segja frá minni upp­lifun. Segja honum hvað hann hefði í raun og veru tekið mikið frá mér.“ 

 

5 Laus við óttann

Fyrr í þessum mán­uði steig Helena Rut Ólafs­dóttir fram í við­tali við Stundina og sagði frá því hvernig hún lifði af gróft lík­am­legt ofbeldi föður síns til margra ára. Málið vakti mik­inn óhug á sínum tíma en aldrei hafði fallið þyngri dómur í barna­vernd­ar­máli á Íslandi.

„Hann hót­aði okkur stöðugt líf­láti og ég var alltaf hrædd um líf mitt,“ segir Helena. „Ég vissi ekki hvort ég yrði til á morgun eða dag­inn þar á eftir. Þess vegna þorði ég aldrei að segja neitt, ég var svo hrædd.“ 

 

6 „Við ætlum ekki að leyfa honum að vinna“

Mikil reiði bloss­aði upp snemma í sumar þegar í ljós kom í ljós að Robert Downey, marg­dæmdur barn­a­níð­ingur, hefði fengið upp­reist æru. Í kjöl­farið steig Nína Rún Bergs­dóttir, einn brota­þola hans, fram í við­tali í Stund­inni ásamt for­eldrum sínum þar sem þau greindu frá áhrif­unum sem brotin höfðu á fjöl­skyld­una.

„Það er eins og áfallið sé komið aftur og lík­am­inn fer ósjálfrátt í ástandið sem hann var í þegar ég var fjórtán ára gömul,“ sagði Nína Rún.

 

7 Sjálfboðaliði ósáttur eftir leynilegt ástarsamband við sjötugan stjórnarformann Sólheima

Selma Özgen, fyrr­ver­andi sjálf­boða­liði á Sól­heimum, steig fram í við­tali við Hólm­fríði Helgu Sig­urð­ar­dóttur á árinu. Selma átti í ást­ar­sam­bandi við stjórn­ar­for­mann Sólheima, Pétur Svein­bjarn­ar­son, sem er 42 árum eldri en hún. Mikið valda­misvægi var á milli þeirra tveggja og segir Selma að hún hafi fengið þau skila­boð að hún yrði látin fara frá Sól­heimum ef hún tjáði sig um sam­bandið, en hún var háð Sól­heimum með land­vist­ar­leyfi. 

„Þetta var það mál sem mig lang­aði helst að segja frá, því það lá á mér, en Pétur sagði alltaf: Ef ein­hver fréttir af okkur, þá verður þú látin fara frá Sól­heimum,“ sagði hún meðal ann­ars. Þess má geta að Pétur hætti sem stjórn­ar­for­maður Sólheima stuttu eftir umfjöll­un­ina.

 

8 „Mér fannst erfitt að bera þessa skömm“

Esther Ýr Stein­ars­dóttir sagði frá því í við­tali hvernig það var að vera barn fanga, en móðir hennar var hand­tekin fyrir fíkni­efna­smygl þegar Esther var í tíunda bekk. „Mamma hamr­aði á því að þetta hefði ekk­ert með mig að gera. Ég ætti ekki þessa skömm, eng­inn hefði rétt á því að dæma mig út frá því sem hún gerði. Líklega hjálp­uðu þessi skila­boð til lengri tíma litið en það tók mig tíma að tengja við það. Hún kenndi mér líka að það skiptir engu máli hvernig fólk dæmir mig því ef ég er ekki það sem sagt er nær það ekki lengra. Sem er satt, svo lengi sem þú brotnar ekki undan umtal­inu getur þú hafið þig upp yfir það.“ 

 

9 „Mér fannst lítið gert úr minni upplifun“

Halla Ólöf Jóns­dóttir er einnig einn brota­þola Roberts Downey, sem fékk lög­manns­rétt­indi sín á ný á þessu ári eftir að hafa fengið upp­reist æru. Robert var dæmdur fyrir brotin gegn Höllu nokkrum árum eftir að hafa verið dæmdur fyrir brot gegn fjórum öðrum stúlkum. Honum var hins vegar ekki gerð nein refs­ing fyrir að brjóta á Höllu. 

„Að vissu leyti var ég fegin að þetta hefði farið í gegn,“ segir Halla. „Í því fólst ákveðin við­ur­kenn­ing á því að hann hefði brotið á mér og að það hafi verið nóg af sönn­un­ar­gögnum til þess að sak­fella hann. En mér fannst þetta ekki sann­gjarn dómur. Mér fannst lítið gert úr minni upp­lifun og hafði það alltaf á til­finn­ing­unni að verið væri að taka hans hags­muni fram yfir mína.“

 

10 Útlendingastofnun rekur fórnarlamb mansals úr landi

Stundin ræddi við ung níger­ísk hjón í sumar, Sunday og Joy, en þeim hafði verið gert að yfir­gefa landið ásamt sjö ára dóttur þeirra, Mary. Joy er fórn­ar­lamb man­sal og Sunday hrakt­ist frá heima­land­inu vegna póli­tískra ofsókna, en engu að síður stóð til að senda þau aftur til Nígeríu. 

„Ef þið viljið ekki hafa mig hér á landi gefið þá dóttur minni, Mary, tæki­færi, Hún er ekki fædd né upp­alin í Nígeríu. Hún er fædd á Ítalíu og er núna ham­ingju­söm því hún sækir skóla hér á Íslandi og er farin að tala íslensku. Ég er svo stoltur af henni. Allt sem ég geri í dag geri ég fyrir dóttur mína. Okkar bíður dauð­inn í Nígeríu og ég get ekki leyft því að ger­ast,“ sagði Sunday í við­tali við Stundina.

Þess má geta að fjöl­skyldan er nú komin með dval­ar­leyfi hér á landi eftir að Alþingi sam­þykkti í haust lög til bráða­birgða sem gerðu fjöl­skyldum í þeirra stöðu kleift að fá dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár