Mynd: Daníel Starrason

„Það er ekki hægt að dæma látinn mann“

Selma Klara Gunn­ars­dóttir kynnt­ist manni á stefnu­móta­for­rit­inu Tinder síð­asta sumar. Sól­ar­hrings vef­spjall átti hins vegar eftir að taka á sig dökka mynd þegar mað­ur­inn sótti Selmu um miðja nótt, fór með hana heim til sín og braut gegn henni. Selma kærði mann­inn fyrir nauðgun strax dag­inn eftir, en mað­ur­inn lést hins vegar áður en gefin var út ákæra. Sumir telja mann­inn hafa fengið mak­leg mála­gjöld en Selmu finnst ósann­gjarnt að hann hafi fengið að deyja, á meðan hún þurfi að lifa áfram með sárs­auk­ann sem hann olli henni.

„Takk fyrir góðan hitt­ing,“ var það síð­asta sem Selma heyrði þegar hún steig út úr bíl manns­ins sem nokkrum mín­útum áður þrengdi svo að hálsi hennar að hún missti nærri því með­vit­und og hélt henni svo fast niðri að hún hlaut mar­bletti og bólgur víða um lík­amann. Eftir að hún lok­aði bíl­hurð­inni stóð hún um stund graf­kyrr á gang­stétt­inni og fylgd­ist með bílnum keyra í burtu. Þegar hann var horf­inn úr aug­sýn tók hún á sprett og hljóp eins hratt og hún gat heim til vinar síns, þar sem hún gisti í heim­sókn sinni í höf­uð­borg­inni. Þetta var einnig í síð­asta skipti sem Selma sá mann­inn, því nokkrum mán­uðum síðar komst hún að því að hann hefði lát­ist. 

Bauð henni strax í heimsókn

Manninum hafði hún kynnst á stefnu­móta­for­rit­inu Tinder einum og hálfum sól­ar­hring áður. Selma, sem býr á Akureyri, var nýkomin til Reykja­víkur í frí um mitt síð­asta sumar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár