Svæði

Akureyri

Fréttir

Lögreglan á Akureyri boðar blaðamenn í yfirheyrslu

Rannsóknar­lögreglu­maður frá Lögreglunni á Akureyri er á leið til Reykja­víkur til að yfirheyra blaðamenn vegna umfjöllunar þeirra um aðferðir svokallaðrar „skæruliða­deildar“ Samherja, sem rægði blaðamenn. Lögreglan veitir blaða­manni Stundarinnar stöðu grunaðs manns og telur umfjöllunina hegningar­lagabrot gegn friðhelgi einka­lífsins sem varðar allt að eins árs fangelsi.
FréttirSamherjaskjölin

Töluðu sig saman um að taka yfir Dropbox Jóhannesar

„Það þarf að loka netfanginu hans og endur­stilla lykil­orðið á dropbox reikningnum til að læsa hann úti af því,“ sagði Ingvar Júlíusson, fjármála­stjóri Samherja á Kýpur, í skila­boðum til Örnu McClure, innan­húslögfræðings útgerð­ar­innar, og Aðalsteins Helga­sonar lykil­starfsmanns. Jón Óttar Ólafsson rekur nákvæmlega hvernig hann braust inn á Dropbox uppljóstr­arans í Namibíu­málinu í yfir­lýsingu sinni til dómstóla.
RannsóknHeimavígi Samherja

Áhrif Namibíu­málsins á íbúa Akureyrar: „Fólki þykir almennt rosalega vænt um Samherja“

Hvaða áhrif hefur það á 20 þúsund manna samfélag á Íslandi þegar stærsta fyrir­tækið í bænum, útgerð sem veitir rúmlega 500 manns vinnu og styrkir góð málefni um allt að 100 milljónir á ári, er miðpunktur í alþjóðlegri spillingar- og sakamála­rannsókn sem teygir sig víða um heim? Stundin spurði íbúa Akureyrar að þessari spurningu og kannaði viðhorf íbúa í Eyjafirði og á Íslandi öllu til Samherja­málsins í Namibíu. Rúmt ár er liðið frá því málið kom upp og nú liggja fyrir ákærur í Namibíu gegn meðal annars Samherja­mönnum og embætti héraðs­saksóknara og skatt­rannsóknar­stjóri eru með málið til meðferðar á Íslandi.

37 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár