Grænland og Bandaríkin þurfa að byggja upp „traust“ á ný

Mute Egede segir kröfur Donalds Trump um yfir­ráð yfir Græn­landi hafa skaðað sam­skiptin við Banda­ríkin. Græn­lenska þingið tekur nú til umræðu sam­komu­lag um tvær nýjar her­stöðvar Banda­ríkja­hers.

Grænland og Bandaríkin þurfa að byggja upp „traust“ á ný
Brostið „Eitthvað hefur brostið,“ sagði Egede við DR um spenn­una eftir að Donald Trump krafð­ist yfir­ráða yfir Græn­landi og úti­lok­aði ekki að beita her­valdi til þess. Mynd: Mads Claus Rasmussen / Ritzau Scanpix via AFP

Utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands sagði í morgun að kröfur Banda­ríkj­anna um yfir­ráð yfir Græn­landi hefðu rofið „traustið“ í sam­skiptum við stór­veldið og að end­ur­vekja þyrfti það.

Mute Egede utan­rík­is­ráð­herra sagði að það yrði „erfitt verk­efni“ að end­ur­heimta fullt traust.

„Þegar vinur hegðar sér svona — af virð­ing­ar­leysi — þarf að end­ur­vekja traustið“

Hann lét ummælin falla þegar þing Græn­lands, sem nýtur sjálf­stjórnar innan Dan­merkur, átti að taka til umræðu örygg­is­samn­ing við Banda­ríkin sem veitir þeim rétt til að reisa tvær nýjar her­stöðvar á Græn­landi.

„Eitthvað hefur brostið,“ sagði Egede við danska rík­is­út­varpið DR um þá spennu sem ríkt hefur und­an­farna mán­uði, eftir að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hélt því fram að Banda­ríkin þyrftu að ráða yfir Græn­landi og úti­lok­aði ekki að beita her­valdi til að ná yfir­ráðum þar.

„Traust hefur beðið alvar­legan hnekki. Þegar vinur hegðar sér svona — af virð­ing­ar­leysi — þarf að end­ur­vekja …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár