Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Grænlendingar mótmæla
Græn­lend­ingar mót­mæla Fyr­ir­tæki frá Texas stefnir á olíu­leit á Austur-Græn­landi (myndin sýnir mót­mæli gegn áformum Banda­ríkja­for­seta í Nuuk í júní) Mynd: Esther

Um hund­rað manns, þriðj­ungur íbúa, í þorp­inu Ittoqqortoormiit á aust­ur­strönd Græn­lands mót­mæltu á mánu­dag áformum banda­ríska fyr­ir­tæk­is­ins Greenland Energy Company um olíu­leit í nánd við þorpið. Stuðn­ings­menn Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta hafa reynt að nota mögu­legan olíufund á Græn­landi til þess að styðja við hug­myndir Trumps um að Banda­ríkin taki yfir landið. Í síð­ustu viku ítrek­aði for­set­inn þau áform á leið­toga­fundi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, NATO, í Ankara.

Greenland Energy Company er einka­rekið fyr­ir­tæki í Texas-fylki og stefnir á olíu­leit við Nunap Qeqqa-skaga (Jameson-land) við Kangertittivaq (Scoresbysund), lengsta fjörð heims. Ittoqqortoormiit liggur norðan megin við mynni fjarð­ar­ins.

„Núna erum við í þeirri stöðu að okkur finnst okkur vera ógnað og að við séum hunsuð og við biðjum vin­sam­leg­ast um hjálp ykkar og stuðn­ing,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, í síð­ustu viku þegar efnt var til mót­mæl­anna. 

„Sem betur fer mætti ​​ fullt af fólki. Ég bjóst alls ekki við þessu. …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár