Laus við óttann

Helena Rut Ólafs­dóttir lifði af gróft lík­am­legt ofbeldi föður síns til margra ára. Málið vakti mik­inn óhug á sínum tíma en aldrei hafði fallið þyngri dómur í barna­vernd­ar­máli á Íslandi. Helena neitar að leyfa ofbeld­inu að skil­greina sig og ætlar sér stóra hluti í líf­inu. Hún gagn­rýnir væga dóma fyrir ofbeldi gegn börnum og ætlar að verða lög­reglu­kona.

Níu ára gömul var Helena Rut Ólafs­dóttir fyr­ir­vara­laust sótt í skól­ann og sagt að hún mætti ekki fara ein heim. Konan, sem hafði um nokk­urt skeið veitt Helenu og eldri systk­inum hennar tveimur félags­legan stuðn­ing eftir skóla, reyndi sitt besta að sann­færa barnið um að allt yrði í lagi, en Helena gerði sér ekki almenni­lega grein fyrir því sem var að ger­ast fyrr en bíll­inn stað­næmd­ist fyrir utan heim­ili hennar í Mos­fellsbæ. Veðrið var þung­búið þennan mánu­dag í miðjum febr­ú­ar­mán­uði og regnið féll á bíl­rúð­una. Flest börn yrðu hrædd við að sjá ein­kenn­is­klædda lög­reglu­menn standa fyrir utan æsku­heim­ili sitt, en ekki Helena. Hún vissi að nú þyrfti hún ekki lengur að lifa í ótta – lög­reglan var komin til þess að bjarga henni. 

Bróðir hennar og systir voru einnig fyrir utan heim­ilið, ásamt starfs­manni barna­verndar og eig­in­konu afa hennar sem var þar ásamt dóttur sinni. Faðir Helenu var far­inn. Hann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár