Þýskir hermenn heim með Icelandair

Könn­un­ar­leið­angri þýskra her­manna á Græn­landi er lokið.

Þýskir hermenn heim með Icelandair
Þýskir her­menn Farnir heim að loknum könn­un­ar­leið­angri til Græn­lands. Mynd: AFP

Hermenn úr þýska hernum, Bundeswehr, fóru um dag borð í flug­vél Icelandair sem var á leið frá Nuuk-flug­velli til Kefla­víkur. Þannig lauk könn­un­ar­leið­angri her­mann­anna fimmtán til Græn­lands, sem spratt af hót­unum Donalds Trump Banda­ríkja­for­seti til að yfir­taka landið. 

Samkvæmt upp­ýs­ingum blaða­manna Heim­ild­ar­innar, sem staddir eru í Nuuk, var klappað fyrir þýsku her­mönn­unum í gær. Sagði þýskur blaða­maður, sem staddur er í Nuuk, að þetta væri vænt­an­lega eitt fárra skipta sem klappað hefur verið fyrir þýskum her­mönnum á síð­ari árum.

Í dag fund­uðu evr­ópskir diplómatar á krísufundi um ástandið og leið­togar Evr­ópu­ríkja svör­uðu hót­unum Banda­ríkja­for­seta.

„Nið­ur­stöður könn­un­ar­leið­ang­urs­ins verða metnar á næstu dögum, sagði tals­maður hers­ins.

Her­menn­irnir komu til lands­ins ásamt sænskum, frönskum og norskum full­trúum, auk þess sem Land­helg­is­gæslan íslenska sendi tvo full­trúa. Þýsku her­menn­irnir dvöldu aðeins í 44 klukku­stundir á Græn­landi, sam­kvæmt frá­sögn Bild, en fram­haldið verður metið.

Tals­maður Hvíta húss­ins, Karoline Leavitt, gerði lítið úr leið­angrinum. „For­set­inn hefur lagt fram for­gangs­röðun sína með skýrum hætti, að hann vilji að Banda­ríkin eign­ist Grænland.“ Þá hefur Hvíta húsið lýst við­ræðum danska, græn­lenska og banda­ríska utan­rík­is­ráð­herr­anna, ásamt vara­for­seta Banda­ríkj­anna, sem tækni­legum við­ræðum um útfærslu á yfir­töku­samn­ingi, gegn harðri neitun Græn­lands og Dan­merkur.

Danir hafa á móti boðað stór­fellda aukn­ingu útgjalda og við­veru til varnar Græn­landi, en Trump hefur setið fastur við sinn keip og segir betra að eiga Grænland en leigja, með til­vísun í fast­eigna­geir­ann.

Á flug­vell­inum í NuukHermenn biðu brott­farar á nýja alþjóða­flug­vell­inum í Nuuk í dag.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár