Grænland og ESB innsigla samstarf

„Gríðarlegar“ fjár­festingar frá Evrópu­sambandinu boðaðar á Grænlandi, sem verður „sífellt mikil­vægara fyrir ESB“.

Ursula von der Leyen
Ursula von der Leyen Forseti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­ráðs­ins heim­sækir Grænland. Mynd: AFP

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, heldur til Grænlands í dag í tveggja daga heimsókn til að ítreka stuðning sambandsins við þetta næsta nágranna­land Íslands og sjálf­stjórnar­svæði Danmerkur, sem Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur augastað á.

Á mánudag er fyrir­hugað að hún undirriti sameiginlega yfir­lýsingu Evrópu­sambandsins og Grænlands.

„Grænland verður sífellt mikil­vægara fyrir ESB sem hlið að norðurslóðum og vegna land­pólitískrar legu sinnar, mikil­vægra hráefna og hlutverks í öryggis­málum á norðurslóðum,“ sagði Marc Jacobsen, fræði­maður við danska varnarmála­háskólann, í samtali við AFP-frétta­stofuna.

Trump hélt því afdráttar­laust fram fyrr á þessu ári að Banda­ríkin þyrftu að ráða yfir eyjunni víðáttu­miklu á norðurslóðum af þjóðar­öryggis­ástæðum, þótt hann útilokaði að lokum að innlima hana með valdi.

Vinnu­hópur á vegum Danmerkur, Grænlands og Banda­ríkjanna hefur síðan fundað reglulega til að ná samkomu­lagi um samstarf til framtíðar.

Í kjölfar hótana Trumps lýstu Evrópu­ríki almennt yfir stuðningi við Danmörku og …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Hvar ætlar næstum gjaldþrota Evrópsamband að finna fé til að verja í "gríðarlegar fjárfestingar" á Grænlandi? Kannski með skattlagningu á aðildarríki ESB?

    Grænland var fyrsta ríkið til að segja sig úr ESB eftir þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1982.

    Grænland er ekki í Evrópu heldur Norður Ameríku. Hvað þykist ESB eiga upp á dekk þar?
    -6
    • SHP
      Sveinbjörn Hermann Pálsson skrifaði
      Fjárfestingar, eins og felst í orðinu, skila sér til baka. Kannski eru evrópskir aðilar að fara að halda í námugröft? Það er ekki gefið að þetta séu peningar hins opinbera.
      Og Grænland má tilheyra þeim sem þau vilja. Taktu eftir að ESB er vel tekið a Grænlandi, ólíkt bandarískum erindrekum.
      3
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      49. gr. sáttmálans um Evrópusambandið:

      "Sérhvert Evrópuríki, sem virðir þau gildi sem um getur í 2. gr. og einsetur sér að stuðla að þeim, getur sótt um að gerast aðili að Sambandinu. ..." ATH: "Evrópuríki" er lykilorðið.

      Grænland er í Norður Ameríku, ekki Evrópu.

      Afríkuríkið Marokkó sótti um aðild að Evrópubandalaginu árið 1987 en var synjað á þeim grundvelli að það væri ekki Evrópuríki.

      Nýlegir atburðir varðandi Ísland hafa þó sýnt að ESB er ekki alltaf samkvæmt sjálfu sér...

      Þessi ferð Ursulu til Grænlands núna er greininlega fyrst og fremst í þeim tilgangi að senda skilaboð til Washington, hvað sem yfirlýstum tilgangi líður að öðru leyti.
      0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      https://www.mbl.is/frettir/erlent/2026/09/06/yfir_100_milljardar_i_beinan_studning_til_graenland/

      "Með tveggja daga heimsókn sinni hyggst von der Leyen senda þau skilaboð að Grænland tilheyri Evrópu fremur en Bandaríkjunum." - Kann hún ekki að lesa landakort?

      "Framkvæmdastjórnin hefur lagt til að tvöfalda beina aðstoð ESB við Grænland í 530 milljónir evra (74,5 milljarða íslenskra króna) í næstu fjárlögum sambandsins fyrir tímabilið 2028–2034.

      Þá herma heimildir Financial Times að von der Leyen leggi til viðbótarstuðning upp á 200 milljónir evra, eða tæplega þrjátíu milljarða íslenskra króna, í heimsókn sinni."

      Semsagt "aðstoð" (ekki fjárfesting) á kostnað skattgreiðenda Evrópusambandsríkja.

      Þar höfum við það.
      0
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      1. Hvaðan vilt þú vita að ESB er gjaldþrota? Það á frekar við um BNA.
      2. Grænland var fyrst numið af norrænum mönnum (Inuitar komu seinna) og hefur lengi verið tengt Danmörku, menningarlegu tengslin hins vegar eru norðurslóðamenning frumbyggja sem BNA hafa mjög lítið við að gera, helst bara í Alaska.
      Í jarðfræðilegum skilningi er Grænland auðvitað á Norðurameríkuflekanum - en við Ísland sundurslitið land.
      3. Hvað þýkist ESB upp á dekk þar? ESB stendur saman þrátt fyrir marga ágreininga - og það truflar bæði Trump og Putin, þess vegna þolir hvorugur ESB.
      4. Að Marokko (og Tyrkland) hafa ekki fengið inngöngu í ESB er að stórum hluta líka af því þar er ekki lýðræðisstjórn sem fullnægjar kröfum ESB.
      0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Tómas Maríuson.

      1. Hvort Bandaríkin séu gjaldþrota kemur málinu ekki við. Fréttin er um það að ESB ætli að senda Grænlendingum fé úr vösum skattgreiðenda í ESB, ekki Bandaríkjunum.

      2. Ég er að tala um nútímann en ekki forna fortíð og í nútímanum er Grænland ekki í Evrópu eins og mörkin milli heimsálfa eru skilgreind. Um það verður ekki deilt. Ef þú vilt hins vegar byggja tilkall til Grænlands á grundvelli landsnámsréttar, þá ætti það auðvitað að tilheyra Íslandi og Ísland hvorki er né ætlar sér í ESB.

      3. Hvergi í TFEU kemur fram að það sé í verkahring ESB að pirra leiðtoga þjóðríkja.

      4. Þegar aðildarumsókn Marokkó var synjað var sérstaklega tekið fram að það væri vegna þess að það væri ekki Evrópuríki, en ekki að það væri vegna stjórnarfars.

      Vissulega er stjórnarfar ástæða þess að Tyrklandi hefur ekki verið hleypt inn, en 47. gr. TFEU útilokar ekki aðild þess af landfræðilegum ástæðum því það er bæði Evrópuríki og Asíuríki. Hér er því ólíku saman að jafna enda er enginn hluti Grænlands í Evrópu.

      Af sömu ástæðu stæði 47. gr. TFEU þó ekki í vegi fyrir inngöngu í ESB ef Grænland tilheyrði Íslandi og það væri vilji Íslendinga (sem Grænlendingar væru þá líka).
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár