Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna

„Okk­ur finnst okk­ur vera ógn­að,“ sagði Hans Brøn­lund, formað­ur bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þeg­ar Græn­lend­ing­ar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tæk­is á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins seg­ir leyfi til að setja bún­að á svæð­ið kom­ið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands seg­ir eng­ar leyf­is­veit­ing­ar hafa orð­ið.

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
Grænlendingar mótmæla Fyrirtæki frá Texas stefnir á olíuleit á Austur-Grænlandi (myndin sýnir mótmæli gegn áformum Bandaríkjaforseta í Nuuk í júní) Mynd: Esther

Um hundrað manns, þriðjungur íbúa, í þorpinu Ittoqqortoormiit á austurströnd Grænlands mótmæltu á mánudag áformum bandaríska fyrirtækisins Greenland Energy Company um olíuleit í nánd við þorpið. Stuðningsmenn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hafa reynt að nota mögulegan olíufund á Grænlandi til þess að styðja við hugmyndir Trumps um að Bandaríkin taki yfir landið. Í síðustu viku ítrekaði forsetinn þau áform á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins, NATO, í Ankara.

Greenland Energy Company er einkarekið fyrirtæki í Texas-fylki og stefnir á olíuleit við Nunap Qeqqa-skaga (Jameson-land) við Kangertittivaq (Scoresbysund), lengsta fjörð heims. Ittoqqortoormiit liggur norðan megin við mynni fjarðarins.

„Núna erum við í þeirri stöðu að okkur finnst okkur vera ógnað og að við séum hunsuð og við biðjum vinsamlegast um hjálp ykkar og stuðning,“ sagði Hans Brønlund, formaður bæjarráðs Ittoqqortoormiit, í síðustu viku þegar efnt var til mótmælanna. 

„Sem betur fer mætti ​​ fullt af fólki. Ég bjóst alls ekki við þessu. Næstum allur bærinn …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Ferðaþjónusta á hjara veraldar:  Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
ErlentGrænlandsmálið

Ferða­þjón­usta á hjara ver­ald­ar: Græn­lend­ing­ar læra af mis­tök­um Ís­lend­inga

Græn­land vill að ferða­þjón­usta standi und­ir fjöru­tíu pró­sent­um af út­flutn­ings­tekj­um lands­ins ár­ið 2035. At­hygli al­þjóða­sam­fé­lags­ins hef­ur beinst að þess­ari stærstu eyju heims og sér­fræð­ing­ar segja Banda­ríkja­for­seta hafa auk­ið áhuga á land­inu líkt og eld­gos­ið við „Eyja­fjalla­jök­ul“ gerði hér. Heim­ild­in rýndi í þró­un ferða­þjón­ust­unn­ar á Græn­landi sem hef­ur lært af ávinn­ing­um og mis­tök­um ná­granna­rík­is­ins Ís­lands.

Mest lesið

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
3
EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur „blas­ir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­band­ið og hvað mynd­um við fá til baka? Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði, fer yf­ir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætl­að er að nettófram­lag Ís­lands gæti ver­ið á bil­inu sex til 15 millj­arð­ar á ári, en pró­fess­or­inn tel­ur efna­hags­leg­an ávinn­ing meiri en út­gjöld­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár