Neyðarfundur Evrópuríkja vegna hótana Bandaríkjaforseta

Evrópa svarar fyrir sig vegna hót­ana Donalds Trump um refsi­að­gerðir gegn þeim sem styðja Grænland gegn yfir­töku.

Neyðarfundur Evrópuríkja vegna hótana Bandaríkjaforseta
Trump og Macron Frakk­lands­for­seti, Emmanúel Macron, er sagður vilja reisa tolla á móti refsi­tollum Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta. Mynd: AFP

Hátt­settir evr­ópskir diplómatar héldu í dag krísufund vegna hót­ana Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta um að beita refsi­tollum gegn Evr­ópu­ríkjum sem fall­ast ekki á yfir­töku hans á Græn­landi og inn­limun lands­ins í Banda­ríkin.

Þá hefur António Costa, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, boðað við­ræðu­fund um Græn­lands á næstu dögum.

Leið­togar Evrópu gagn­rýndu í dag opin­ber­lega hót­anir hans og vör­uðu við því að sam­skipti yfir Atl­ants­hafið væru í hættu.

Nokkur Evr­ópu­lönd – þar á meðal Danmörk, en Grænland er sjálf­stjórn­ar­svæði innan danska kon­ungs­rík­is­ins – sögð­ust „standa saman“ gegn hótun Trumps í gær um að leggja á þau allt að 25 pró­senta tolla nema Grænland yrði afhent Banda­ríkj­unum.

„Hótanir um tolla grafa undan sam­skiptum yfir Atl­ants­hafið og hætta er á nið­ur­spíral,“ vör­uðu Bretland, Danmörk, Finnland, Frakk­land, Holland, Noregur, Svíþjóð og Þýska­land við í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu.

Lars Løkke Rasmus­sen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, sagði í Noregi að úrslita­kostir Trumps ógn­uðu heims­skipan „eins og við þekkjum hana“ og fram­tíð hern­að­ar­banda­lags­ins NATO.

Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóri NATO, sagði í dag að hann hefði rætt við Trump um „örygg­is­á­standið á Græn­landi og norð­ur­slóðum“ og sagð­ist „hlakka til að til að hitta hann“ á Davos-ráð­stefn­unni í þess­ari viku. Hann tjáði sig ekki nánar um sam­tal þeirra.

Sendiherrar funda í Brussel

Sendi­herrar ESB hitt­ust í Brussel á sunnu­dag eftir að Evr­ópu­sam­bandið boð­aði til auka-alls­herj­ar­fundar í kjöl­far yfir­lýs­ingar Trumps.

Sam­bandið gerði samn­ing við Banda­ríkin í júlí um að flestar útflutn­ings­vörur ESB myndu sæta 15 pró­senta banda­rískum tolli. Óljóst var hvernig tollar Trumps myndu virka út frá þeim samn­ingi.

„Ég tel að þessi samn­ingur sé ekki mögu­legur við núver­andi aðstæður,“ sagði Johann Wadephul, utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, við ARD-sjón­varps­stöð­ina.

Aðstoð­ar­menn Emmanu­els Macron Frakk­lands­for­seta sögðu að hann myndi biðja ESB um að virkja „þving­un­ar­tæki“ gegn Banda­ríkj­unum, sem aldrei hefur verið notað áður, ef Trump stendur við við­bót­ar­tolla sína.

Þessi aðgerð gerir kleift að tak­marka inn­flutn­ing á vörum og þjón­ustu til ESB, mark­aðar 27 landa með sam­an­lagðan íbúa­fjölda upp á 450 millj­ónir.

Trump hefur ítrekað lýst yfir löngun sinni til að ná yfir­ráðum yfir Græn­landi síðan hann sneri aftur í Hvíta húsið fyrir annað kjör­tíma­bil.

Orðræða hans í þá átt hefur harðnað síðan hann fyr­ir­skip­aði hern­að­ar­að­gerð gegn Venes­ú­ela í byrjun þessa mán­aðar til að hand­sama leið­toga þess, Nicolas Maduro. Hann hefur síðar sagt „óásætt­an­legt“ að Banda­ríkin fái ekki Grænland.

„Fjárkúgun“

Trump og stjórn hans hafa haldið því fram að það myndi þjóna „þjóðar­ör­yggi“ Banda­ríkj­anna ef Grænland kæm­ist undir banda­ríska stjórn.

Hann og aðstoð­ar­menn hans hafa einnig haldið því fram að Danmörk – þótt NATO-banda­lags­ríki sé – gæti ekki varið Grænland ef Rússland eða Kína myndu ein­hvern tíma reyna að ráð­ast inn.

Danmörk og nokkur evr­ópsk NATO-banda­lags­ríki brugð­ust við með því að senda nýlega fámennan her­afla til Græn­lands á æfingu og í könn­un­ar­leið­angur, sem Banda­ríkj­unum var einnig boðið að taka þátt í.

Sást til nokk­urra þýskra her­manna fara um borð í flug­vél í dag til að yfir­gefa Grænland eftir stutta við­veru.

Í gær mót­mæltu þús­undir manna á Græn­landi og í Danmörku kröfu Banda­ríkj­anna.

„Make America Go Away“ stóð á der­húfum margra mót­mæl­enda, sem var til­vísun í slag­orð Trumps „Make America Great Again“.

Tollar stighækka

Trump brást við með hótun sinni um að leggja 10 pró­senta tolla á vörur sem koma til Banda­ríkj­anna frá Bret­landi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakk­landi, Þýska­landi, Hollandi og Finn­landi frá og með 1. febr­úar.

Þeir myndu hækka í 25 pró­sent frá 1. júní „þar til sam­komu­lag næst um full­komin og alger kaup á Græn­landi“, skrif­aði Trump á sam­fé­lags­miðil sinn, Truth Social.

Jafnvel Giorgia Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu og leið­togi hægri-öfga­flokks, einn nán­asti banda­maður Trumps í Evrópu, hrökk við eftir hót­un­ina.

„Ég tel að það væru mis­tök að leggja á nýjar refsi­að­gerðir í dag,“ sagði hún við blaða­menn í ferð til Seúl.

„Ég ræddi við Donald Trump fyrir nokkrum klukku­stundum og sagði honum hvað mér finnst,“ bætti hún við.

Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, kall­aði þetta „algjör­lega rangt“ og sagð­ist ætla að ræða ástandið við Trump „við fyrsta tæki­færi“.

David van Weel, utan­rík­is­ráð­herra Hollands, for­dæmdi hótun Trumps sem „óút­skýr­an­lega“ teg­und af „fjár­kúgun“.

Ótti við viðskiptastríð

Annie Genevard, land­bún­að­ar­ráð­herra Frakk­lands, var­aði við því að tollar myndu einnig skaða Banda­ríkin.

„Í þess­ari stig­mögnun tolla hefur (Trump) miklu að tapa líka, eins og hans eigin bændur og iðn­rek­endur,“ sagði hún við útvarps­stöðv­arnar Europe 1 og CNews.

Noregur, sem einnig var skot­mark tolla­hót­ana Trumps en er ekki aðili að ESB, líkt og Bretland, sagði að norsk yfir­völd væru ekki að íhuga hefnd­ar­að­gerðir gegn banda­rískum vörum að svo stöddu.

„Ég held að maður þurfi að stoppa og hugsa sig um svo hægt sé að koma í veg fyrir við­skipta­stríð sem myndi leiða til nið­ur­spírals,“ sagði Jonas Gahr Støre, for­sæt­is­ráð­herra Noregs, við NRK-sjón­varpið. „Enginn myndi vinna.“."

Heimsókn Lars Løkke Rasmus­sen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, til Noregs í gær var einn áfang­inn í ferða­lagi sem mun einnig ná til Bret­lands og Sví­þjóðar, til að ræða örygg­is­stefnu banda­lags­ins á norð­ur­slóðum.

Bandarískir þingmenn andmæla

Þingmenn beggja flokka í Banda­ríkj­unum hafa gagn­rýnt aðfarir og aðferðir Trumps um helg­ina. Mike Turner, þing­maður Repúblikana­flokks­ins frá Ohio, sagði í þætt­inum „Face the Nation“ á CBS að Trump hefði ekki heim­ild til að beita her­valdi til að leggja undir sig Grænland. Turner, sem er for­maður sendi­nefndar Banda­ríkj­anna á þingi NATO, sagði að hót­un­anir hans um að ráð­ast á landið hefði „valdið spennu innan banda­lags­ins“.

Turner var einnig efins um vald Trumps til að beita tollum sem vog­ar­afli í til­raun til að kaupa land­svæðið.

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna mun senn úrskurða um lög­mæti beit­ingar Trumps á tollum. Turner sagði að jafn­vel þótt Hæsti­réttur úrskurð­aði að Trump hefði heim­ild sam­kvæmt neyð­ar­lögum til að leggja þá á, væru samt tak­mörk fyrir því. „Jafnvel þótt hann yrði tal­inn hafa toll­heim­ild, þá tel ég ekki að hann hafi vald til að leggja á tolla í þeim til­gangi að þvinga aðrar þjóðir til að selja Banda­ríkj­unum land svo við getum stækkað við okkur,“ sagði Turner.

Mark Warner, öld­unga­deild­ar­þing­maður frá Virginíu og æðsti Demókrati í leyni­þjón­ustu­nefnd öld­unga­deild­ar­innar, sagði sömu­leiðis í þætt­inum „Face the Nation“ að engin virk ógn staf­aði nú af Rúss­landi eða Kína gagn­vart Græn­landi. „Eina öryggisógnin sem steðjar að Græn­landi um þessar mundir eru Banda­ríkin,“ sagði hann.

Scott BessentFjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna styður við­leitni til yfir­töku á Græn­landi.

Á móti sagði fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Scott Bessent, í sama þætti, í end­ur­sögn New York Times, að Kína og Rússland myndu ekki ráð­ast á Grænland, ef Banda­ríkin ættu það, og horfði þar með fram hjá til­gangi NATO, sem er banda­lag sjálf­stæðra ríkja með skuld­bind­ingu um sam­eig­in­legar varnir. „Það verða engin átök, því Banda­ríkin, einmitt núna, erum við heitasta land í heimi,“ sagði Bessent. „Evr­ópu­búar sýna veik­leika.“

Öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn John Cornyn, repúblikani frá Texas, hrós­aði síðan í þætt­inum  „Fox News Sunday“ Trump sem samn­inga­manni. Hann væri „full­kom­inn“ sem slíkur og skil­greindi Grænland sem „stra­tegískt mik­il­væga fast­eign.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár