Þýskir hermenn heim með Icelandair

Könn­un­ar­leið­angri þýskra her­manna á Græn­landi er lok­ið.

Þýskir hermenn heim með Icelandair
Þýskir hermenn Farnir heim að loknum könnunarleiðangri til Grænlands. Mynd: AFP

Hermenn úr þýska hernum, Bundeswehr, fóru um dag borð í flugvél Icelandair sem var á leið frá Nuuk-flugvelli til Keflavíkur. Þannig lauk könnunarleiðangri hermannanna fimmtán til Grænlands, sem spratt af hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseti til að yfirtaka landið. 

Samkvæmt uppýsingum blaðamanna Heimildarinnar, sem staddir eru í Nuuk, var klappað fyrir þýsku hermönnunum í gær. Sagði þýskur blaðamaður, sem staddur er í Nuuk, að þetta væri væntanlega eitt fárra skipta sem klappað hefur verið fyrir þýskum hermönnum á síðari árum.

Í dag funduðu evrópskir diplómatar á krísufundi um ástandið og leiðtogar Evrópuríkja svöruðu hótunum Bandaríkjaforseta.

„Niðurstöður könnunarleiðangursins verða metnar á næstu dögum, sagði talsmaður hersins.

Hermennirnir komu til landsins ásamt sænskum, frönskum og norskum fulltrúum, auk þess sem Landhelgisgæslan íslenska sendi tvo fulltrúa. Þýsku hermennirnir dvöldu aðeins í 44 klukkustundir á Grænlandi, samkvæmt frásögn Bild, en framhaldið verður metið.

Talsmaður Hvíta hússins, Karoline Leavitt, gerði lítið úr leiðangrinum. „Forsetinn hefur lagt fram forgangsröðun sína með skýrum hætti, að hann vilji að Bandaríkin eignist Grænland.“ Þá hefur Hvíta húsið lýst viðræðum danska, grænlenska og bandaríska utanríkisráðherranna, ásamt varaforseta Bandaríkjanna, sem tæknilegum viðræðum um útfærslu á yfirtökusamningi, gegn harðri neitun Grænlands og Danmerkur.

Danir hafa á móti boðað stórfellda aukningu útgjalda og viðveru til varnar Grænlandi, en Trump hefur setið fastur við sinn keip og segir betra að eiga Grænland en leigja, með tilvísun í fasteignageirann.

Á flugvellinum í NuukHermenn biðu brottfarar á nýja alþjóðaflugvellinum í Nuuk í dag.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Snúningshurð stjórnmála og hagsmuna
5
Greining

Snún­ings­hurð stjórn­mála og hags­muna

Bjarni Bene­dikts­s­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hef­ur störf hjá Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins rúmu ári eft­ir að hann vék úr stjórn­mál­um. Pró­fess­or seg­ir það kall­að „snún­ings­hurð“ þeg­ar stjórn­mála­menn fara í stöð­ur hjá hags­muna­vörð­um eða starfs­menn hags­muna­sam­taka eru ráðn­ir inn í stjórn­kerf­ið. Þetta sé al­gengt á Ís­landi en stjórn­mála­menn seg­ist oft eiga erfitt með að finna vinnu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
2
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Ari naut skattfríðinda í Portúgal
5
Stjórnmál

Ari naut skatt­fríð­inda í Portúgal

Ari Edwald, sem skip­ar fyrsta sæti á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík, fékk stöðu sér­fræð­ings við flutn­inga lög­heim­il­is til Portúgal sem veitti hon­um ým­is skatt­fríð­indi. Hann gekk í des­em­ber frá kaup­um að íbúð í Garða­bæ fyr­ir 183 millj­ón­ir króna en flutti í gær lög­heim­ili sitt í leigu­íbúð lög­manns í mið­borg­inni. „Það er bráða­birgð­ar­ráð­stöf­un,“ seg­ir Ari.
Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
6
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár